Mynd: Shutterstock

Ég beiti manninn minn ofbeldi

„Ég veit að það sem ég geri er rangt, ósann­gjarnt og meið­andi. Ég veit að ég er að gera öðrum það sem ég þoldi ekki að mér væri gert. En mér finnst ég ekki geta hamið mig,“ skrifar Sigga, íslensk kona á þrí­tugs­aldri sem hefur vakið athygli fyrir að skrifa undir dul­nefni um bata­ferli sitt sem ger­andi and­legs ofbeldis. Sál­fræð­ingur telur algeng­ara að konur beiti and­legu ofbeldi í ást­ar­sam­böndum, en fáir tali um það vegna skammar og ótta við við­brögð ann­arra. Þá sé ofbeldi sem karlar beita maka sinn yfir­leitt mun áþreif­an­legra og sýni­legra. Karlar geri sér ekki alltaf grein fyrir and­lega ofbeld­inu.

Sak­leys­is­leg ágrein­ings­efni á borð við hvernig eigi að ganga frá þvotta­burst­anum geta orðið til þess að Sigga missir stjórn á skapi sínu. Hún hækkar róm­inn, notar niðr­andi orð um maka sinn og kallar hann öllum illum nöfnum fyrir það eitt að gera eitt­hvað með öðrum hætti en hún hefði sjálf gert það. Allt þarf að vera eftir hennar höfði. Hún stjórnar. Stundum lætur hún óánægju sína í ljós með því að fara afsíðis í fýlu, hún hafnar honum og neitar að virða hann við­lits.  

Það vakti tals­verða athygli þegar Sigga hóf að skrifa opin­skátt, en undir dul­nefni, um eigin bresti sem ger­andi and­legs ofbeldis í síð­asta mán­uði. Henni finnst vanta almenna umræðu um konur sem ger­endur í ofbeld­is­málum og hún bindur vonir við að bloggið muni hjálpa öðrum, bæði ger­endum og þolendum. „Með því að gera þetta undir nafn­leynd get ég verið algjör­lega heið­ar­leg, því ég get það ekki ef ég opin­bera mig. Það er bara minn karakter. Ég gæti aldrei verið jafn ein­læg. Þetta er mín leið til að segja allt og útskýra allt þetta dót sem ég hef aldrei sagt neinum,“ segir hún í sam­tali við Stundina. 

Opinberuð og berskjölduð

Röð atburða réði því að Sigga átt­aði sig á því að hún væri ger­andi í ofbeld­is­sam­bandi. Fyrsta kveikjan var sjón­varps­við­tal við Dofra Her­manns­son leik­ara, sem steig fram í Stund­inni í des­em­ber síð­ast­liðnum og sagð­ist hafa verið beittur ofbeldi af hálfu fyrr­ver­andi eig­in­konu sinnar. „Það við­tal stakk mig,“ segir Sigga. „Ég gat aðeins horft á hluta af við­tal­inu og þá varð ég að slökkva á sjón­varp­inu. Þetta kom svo djúpt við mig.“

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár