Fæðing er persónulegur viðburður

Svandís Svav­ars­dóttir, þing­kona Vinstri­hreyf­ing­ar­innar - græns fram­boðs og fyrr­ver­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra er fjög­urra barna móðir. Ekkert barn­anna fædd­ist á spít­ala. Tvö fyrstu átti hún á fæð­ing­ar­heim­il­inu við Eiríks­götu, og tvö seinni á heim­ili sínu við Hjarð­ar­haga.

Svandís: „Ég tók þá ákvörðun að eiga mín börn utan sjúkra­húsa, kannski fyrst og fremst af því að mér fannst mik­il­vægt að fæð­ing væri per­sónu­legur, fjöl­skyldu­við­burður. Ég var í grunn­inn ekki spennt fyrir þeirri nálgun að þetta væri spít­ala­verk­efni, eða ein­hvers konar heil­brigð­is­vandi sem þyrfti að leysa, heldur væri þetta miklu frekar gleði­leg stund í lífi fjöl­skyld­unnar. 
Á þessum tíma var fæð­ing­ar­heim­ilið í Reykja­vík ennþá til, og var opið fyrir óhefð­bund­ari nálg­unum í fæð­ingum. Þarna var heim­il­is­legra and­rúms­loft, öðru­vísi fæð­ing­ar­stofa og færri sæng­ur­konur. Þar átti ég eitt barn 1984, og svo annað 1986. 

Svo þegar ég átti von á mínu þriðja barni, 1996, var fæð­ing­ar­heim­ilið ekki lengur til. Þá fór ég í það að tala við konur, og eins og konur eru, þá tala þær um þessa hluti, sem og aðra sem við­koma kvenna­heilsu; með­göngu, fæð­ingu, sæng­ur­legu, brjósta­gjöf og allt þetta. Þá kynnt­ist ég þess­ari hug­mynda­fræði á bak­við heima­fæð­ing­una, sem snýst um það að fæð­ingin sé 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár