Þrír feður. Gjörólíkur veruleiki
ÚttektÞau sem flúðu Gaza

Þrír feður. Gjör­ó­líkur veru­leiki

Þrír feður frá sama landi standa á Aust­ur­velli. Einn þeirra getur ómögu­lega hætt að brosa. Fjöl­skylda hans er komin hingað til lands. Annar er brúna­þungur og orð um hryll­ing­inn sem fjöl­skylda hans, sem enn er víðs fjarri, hefur gengið í gegnum flæða úr munni hans. Sá þriðji virð­ist algjör­lega dof­inn en reynir að tjá harm sinn. Öll hans fjöl­skylda er látin.
Sigmundur Davíð skríður inn í breiðan faðminn
ÚttektBaráttan um íhaldsfylgið

Sig­mundur Davíð skríður inn í breiðan faðm­inn

Fylgi virð­ist leka frá Sjálf­stæð­is­flokki yfir til Mið­flokks í stríðum straumum. Sjúk­dóms­grein­ing margra Sjálf­stæð­is­manna er að flokk­ur­inn þurfi að skerpa á áherslum sínum til hægri í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. Deildar mein­ingar eru uppi um það hversu lík­legt það er til árang­urs. Heim­ildin rýnir í stöðu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Hvaða kosti á þessi forni risi íslenskra stjórn­mála? Hefur harð­ari tónn Bjarna Bene­dikts­sonar í útlend­inga­málum vald­eflt Sigmund Davíð Gunn­laugs­son í sam­fé­lags­um­ræð­unni?
Erlendu heilbrigðisstarfsfólki fjölgar hratt: „Við getum alls ekki án þeirra verið“
ÚttektInnflytjendurnir í framlínunni

Erlendu heil­brigð­is­starfs­fólki fjölgar hratt: „Við getum alls ekki án þeirra verið“

Fólk sem kemur erlendis frá til þess að vinna í íslenska heil­brigð­is­kerf­inu hefur margt hvert þurft að færa fórnir til þess að kom­ast hingað. Tvær konur sem Heim­ildin ræddi við voru aðskildar frá börn­unum sínum um tíma á meðan þær komu undir sig fót­unum hér. Hópur erlendra heil­brigð­is­starfs­manna fer stækk­andi og heil­brigð­is­kerfið getur ekki án þeirra verið, að sögn sér­fræð­ings í mannauðs­málum.
Ætluðu til Ameríku en festust á Íslandi
ÚttektFólkið í neyðarskýlinu

Ætluðu til Ameríku en fest­ust á Íslandi

Fyrir klukkan tíu á morgn­anna pakka þeir föggum sínum niður og setja þær í geymslu. Þeir líta eftir lög­regl­unni og fara svo af stað út, sama hvernig viðrar. Þeir mæla göt­urnar til klukkan fimm á dag­inn, þangað til svefn­stað­ur­inn opnar aftur. Tilvera þessa svefn­staðar er ekki tryggð. Flosnað hefur úr hópnum sem þar sefur á síð­ustu mán­uðum og líka bæst við.
Fótboltamaðurinn sem ætlaði að verða pípari en endaði í neyðarskýlinu
ÚttektFólkið í neyðarskýlinu

Fót­bolta­mað­ur­inn sem ætl­aði að verða píp­ari en end­aði í neyð­ar­skýl­inu

Hann útskrif­að­ist úr íslensku­námi frá Tækni­skól­anum, var byrj­aður að æfa fót­bolta með Þrótti og að læra pípar­ann þegar fót­unum var kippt undan honum. Húsnæðið var tekið af honum, heil­brigð­is­þjón­ustan og vasa­pen­ing­arnir líka. Nú gistir hann á sófa vinar síns eða í neyð­ar­skýli Rauða kross­ins. Framtíð þess hefur ekki verið tryggð.
Klárar hvern einasta veikindadag í meðgönguveikindi
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Klárar hvern ein­asta veik­inda­dag í með­göngu­veik­indi

Fyrir tæpum 34 árum stóð Sigrún Jóns­dóttir í pontu á Alþingi og krafð­ist þess að ófrískar konur fengju svo­kallað með­göngu­or­lof við 36. viku með­göngu svo þær þyrftu ekki að ganga á veik­inda­rétt­inn sinn. Nú, 34 árum síðar, er dóttir Sigrúnar, Jóna Þórey Pét­urs­dóttir, einmitt í þeim sporum að klára veik­inda­rétt­inn sinn vegna veik­inda á með­göngu. Þegar hún kemur aftur á vinnu­markað eftir orlof mun hún ekki eiga neinn veik­inda­rétt inni.
Lögð inn á spítala eftir bréf frá Fæðingarorlofssjóði
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Lögð inn á spít­ala eftir bréf frá Fæð­ing­ar­or­lofs­sjóði

Íslenskir for­eldrar sem Heim­ildin hefur rætt við segja frá harka­legum köntum á kassa­laga kerfi sem fær þau til að hugsa sig tvisvar um frek­ari barn­eignir. Læknir og bráða­tæknir sem eign­uð­ust nýlega son voru bæði komin aftur út á vinnu­markað þremur mán­uðum eftir barns­burð. Um tíma leit út fyrir að móð­irin fengi ekki fæð­ing­ar­or­lof.
Sér erfiðleika foreldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“
ÚttektKerfi sem bregst barnafjölskyldum

Sér erf­ið­leika for­eldra og hugsar: „Þetta vil ég ekki“

Ingunn Lára Krist­jáns­dóttir er rúm­lega þrí­tug og hefur aldrei fundið löngun til barn­eigna. Hún telur að inn í það spili ónógur stuðn­ingur við barna­fjöl­skyldur í íslensku sam­fé­lagi. Aðjunkt í félags­fræði segir ástæð­urnar fyrir fallandi fæð­ing­ar­tíðni gríð­ar­lega flóknar en að kerfið hafi að hluta brugð­ist fjöl­skyldum, ekki síst mæðrum.
Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.

Mest lesið undanfarið ár