Hópur Feður og börn frá Palest­ínu. Öll eiga þau harm­sögu að baki. Samt horfa þau til fram­tíðar. Mynd: Golli

Þrír feður. Gjörólíkur veruleiki

Þrír feður frá sama landi standa á Aust­ur­velli. Einn þeirra getur ómögu­lega hætt að brosa. Fjöl­skylda hans er komin hingað til lands. Annar er brúna­þungur og orð um hryll­ing­inn sem fjöl­skylda hans, sem enn er víðs fjarri, hefur gengið í gegnum flæða úr munni hans. Sá þriðji virð­ist algjör­lega dof­inn en reynir að tjá harm sinn. Öll hans fjöl­skylda er látin.

Frá því að stríð braust út fyrir botni Mið­jarð­ar­hafs í októ­ber fyrir ári síðan og fram til loka sept­em­ber höfðu 260 palest­ínskir rík­is­borg­arar fengið hér að vera. 86 þeirra komu til lands­ins af sjálfs­dáðum og lögðu fram umsókn um alþjóð­lega vernd. Hinir 174 eru fjöl­skyldu­með­limir fólks sem þegar var statt hér á landi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Útlend­inga­stofnun.

Lítill hluti af þessum hóp, um 20 manns, hitti blaða­menn og ljós­mynd­ara Heim­ild­ar­innar á Aust­ur­velli síð­ast­lið­inn þriðju­dag. Fólkið var þangað komið til þess að segja frá veru­leika sínum, fjöl­skyldu­með­lima og vina sem enn eru á Gaza-svæð­inu. Að lýsa þeim veru­leika að fullu er þó ómögu­legt, sagði Asad Kaware.

„Engin orð geta lýst þessu,“ sagði hann. Hingað kom hann ásamt eig­in­konu sinni og dóttur fyrir fimm mán­uðum, en fyrir áttu þau hér son­inn Yazan Kaware og fengu að koma hingað á …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórnmálunum“
ÚttektÞau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórn­mál­unum“

Bæj­ar­stjór­inn Gunnar Axel Axelsson, sem var sjálf­boða­liði á Vest­ur­bakk­anum fyrir nokkrum árum, seg­ist telja að stjórn­mála­menn þori ekki að segja hug sinn allan um mál­efni Palest­ínu af ótta við ásak­anir um gyð­inga­hatur. Alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Magnea Mar­in­ós­dóttir hefur verið kölluð tals­kona Hamas, þegar hún ræðir um ára­tuga­langan aðdrag­and­ann að 7. októ­ber 2023 í fjöl­miðlum. Það kæfi umræð­una.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár