Tólf mánaða hefnd

Ísra­elski her­inn hefur drepið tugi þús­unda palest­ínskra borg­ara síð­ustu tólf mán­uði. Stríði var lýst yfir í fyrsta sinn í ára­tugi eftir að Hamas gerðu árás á Ísrael 7. októ­ber. Daginn eftir boð­aði Benjamín Net­anjahú, for­sæt­is­ráð­herra Ísraels, „mis­kunn­ar­laust stríð gegn Hamas.“

Tólf mánaða hefnd
Á flótta Palest­ínskar mæður og börn flýja heim­ili sín í kjöl­far loft­árása Ísra­els­hers á Gazaborg 11. októ­ber 2023. Mynd: AFP

Frá því að stríð Ísraels á Gaza hófst form­lega 8. októ­ber á síð­asta ári hafa fleiri látið lífið þar en í nokkrum öðrum átökum í meira en tvo ára­tugi í heim­inum. Í mars, þegar hálft ár var liðið af árásum, höfðu fleiri börn lát­ist á Gaza en í öllum öðrum átökum í heim­inum fjögur árin þar á undan. Nú hefur fjöldi barna sem lát­ist hafa í stríð­inu hækkað veru­lega. 

Með Heim­ild­inni sem kom út á föstu­dag fylgir auka­blað þar sem nöfn allra þeirra barna sem vitað er til að hafi misst lífið í stríð­inu eru birt. Það eru 11.355 nöfn palest­ínskra barna og 40 nöfn ísra­el­skra barna. Upp­lýs­ing­arnar byggja á gögnum frá heil­brigð­is­yf­ir­völdum á Gaza og ísra­elska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. 

Stríði var lýst yfir sem við­bragði við árás Ham­asliða og ann­arra vopn­aðra hópa á Gazaströndinni á Ísrael þann 7. októ­ber. …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Þau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórnmálunum“
ÚttektÞau sem flúðu Gaza

„Mér finnst vera hræðsla í stjórn­mál­unum“

Bæj­ar­stjór­inn Gunnar Axel Axelsson, sem var sjálf­boða­liði á Vest­ur­bakk­anum fyrir nokkrum árum, seg­ist telja að stjórn­mála­menn þori ekki að segja hug sinn allan um mál­efni Palest­ínu af ótta við ásak­anir um gyð­inga­hatur. Alþjóða­stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Magnea Mar­in­ós­dóttir hefur verið kölluð tals­kona Hamas, þegar hún ræðir um ára­tuga­langan aðdrag­and­ann að 7. októ­ber 2023 í fjöl­miðlum. Það kæfi umræð­una.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár