Svona sleppa álfyrirtækin við að borga skatta á Íslandi
ÚttektÁlver

Svona sleppa álfyr­ir­tækin við að borga skatta á Íslandi

Norðurál hefur greitt 74 millj­arða í fjár­magns­kostnað, mest til eigin móð­ur­fé­lags, á sama tíma og fyr­ir­tækið hefur skilað bók­færðum hagn­aði upp á 45 millj­arða króna. Indriði Þor­láks­son, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, segir fyr­ir­tækið nota „fléttu“ til að kom­ast hjá skatt­greiðslum á Íslandi. Öll álfyr­ir­tækin þrjú beita ýmsum aðferðum til að eiga í sem mestum við­skiptum við móð­ur­fé­lög sín og önnur tengd fyr­ir­tæki. Álfyr­ir­tækin segja að um eðli­leg lán vegna fjár­fest­inga sé að ræða. Unnið er að breyt­ingum á skatta­lögum í fjár­mála­ráðu­neyt­inu sem eiga að girða fyrir óeðli­leg við­skipti tengdra fyr­ir­tækja.
Endalok Þjóðkirkjunnar
Úttekt

Endalok Þjóð­kirkj­unnar

Þjóð­kirkjan stendur ekki lengur undir nafni sem kirkja þjóð­ar­innar. Rúmur fjórð­ungur lands­manna stendur nú utan Þjóð­kirkj­unnar og hefur hlut­fallið farið stig­lækk­andi und­an­farin ár. Ef þróun síð­ustu ára helst óbreytt eru ein­ungis um tutt­ugu ár þar til minna en helm­ingur lands­manna verður í Þjóð­kirkj­unni. Ríkið greiðir laun 138 presta en stöðu­gildi sál­fræð­inga á heilsu­gæslum lands­ins eru ein­ungis 15. Sál­gæslu­hlut­verk presta er því enn umtals­vert. For­sæt­is­ráð­herra vill efla kristni­fræði­kennslu í skólum.
„Þið eruð að ræna barninu mínu“
Úttekt

„Þið eruð að ræna barn­inu mínu“

For­eldrar barna með fjöl­þættan vanda standa eftir ráða­lausir og örvænt­inga­fullir, þegar full­reynt er með þau fáu úrræði sem eru í boði. Ríkið hefur ekki gert þjón­ustu­samn­ing við Vinakot, einka­rekið með­ferð­ar­úr­ræði fyrir börn með fjöl­þættan vanda, og ekki ríkir jafn­ræði eftir sveit­ar­fé­lögum hvort börn fái þjón­ustu þaðan. Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar greip nýverið til neyð­ar­ráð­stöf­unar í lögum til að fjar­lægja stúlku úr Vinakoti og koma henni í fóstur. Móðir stúlkunnar talar um mis­beit­ingu á valdi.
Hvernig ISIS varð til í bandarískum fangabúðum
Úttekt

Hvernig ISIS varð til í banda­rískum fanga­búðum

Helstu leið­togar ISIS kynnt­ust í banda­rísku fanga­búð­unum Bucca í Írak. Fyrr­ver­andi her­for­ingjar úr her Saddams Hussein og öfga­fullir ísla­mistar náðu saman í fang­els­inu og úr varð ban­vænn kok­teill. Fyrr­ver­andi fangi líkir búð­unum við verk­smiðju sem fram­leiddi hryðju­verka­menn. Fangar skrif­uðu síma­númer hvers ann­ars innan á amer­ískar boxer nær­buxur.
Líf eftir barnsmissi á meðgöngu
Úttekt

Líf eftir barns­missi á með­göngu

Réttur for­eldra er tals­vert ólíkur eftir því hvenær barn deyr. For­eldrar sem fæða and­vana barn eiga rétt á þremur sam­eig­in­legum mán­uðum í fæð­ing­ar­or­lofi, en for­eldrar barns sem deyr skömmu eftir fæð­ingu eiga hins vegar rétt á fullu fæð­ing­ar­or­lofi. „Hið and­lega bata­ferli er af sama meiði hvort sem barnið lést í móð­ur­kviði eða stuttu eftir fæð­ingu,“ segir Páll Valur Björns­son, sem vill breyta kerf­inu.
Líf eftir barnsmissi
Úttekt

Líf eftir barns­missi

Eftir margra ára bar­áttu með lang­veiku barni, og þeirri félags­legu ein­angrun sem felst í umönn­un­ þess, eru for­eldrar skildir eftir í lausu lofti við barns­missi. Enga opin­bera reglu­gerð er að finna á Íslandi í dag sem skil­greinir rétt­indi for­eldra við and­lát barns og dæmi eru um að for­eldrar skrái sig í nám eða á atvinnu­leysis­bætur því þeir treysta sér ekki strax á vinnu­markað. Engin endur­hæf­ing stendur til boða fyrir for­eldra sem hafa misst börn sín.
Fólksflótti úr borginni
Úttekt

Fólks­flótti úr borg­inni

Íbúða­verð hefur hækkað um rúm 40 pró­sent á síð­ast­liðnum fjórum árum og leigu­verð sömu­leiðis. Ungt fólk á sér litla von um að kaupa íbúð án aðstoðar og fáum tekst að safna sér fyrir útborgun á grimmum leigu­mark­aði. Stundin ræddi við ungt fólk sem hefur gef­ist upp á hús­næð­is­mark­að­inum í þétt­býl­inu og flutt út á land. Þar greiðir það jafn­vel minna á mán­uði fyrir stór ein­býl­is­hús en það gerði fyrir litlar leigu­í­búðir í Reykja­vík.
Bankarnir græddu  1,4 milljónir á hvern Íslending
Úttekt

Bank­arnir græddu 1,4 millj­ónir á hvern Íslend­ing

Hagnaður íslensku við­skipta­bank­anna þriggja á hvern lands­mann er tals­vert meiri en hagn­aður stóru bank­anna á Norður­lönd­unum. Tveir þeirra græddu um 90 þús­und á hvern Íslend­ing hvor um sig. Sam­an­lagður hagn­aður íslensku bank­anna var rúm 4 pró­sent af lands­fram­leiðslu í fyrra en 8 pró­sent í Banda­ríkj­unum. Stundin skoð­aði hagnað bank­anna á liðnum árum í nor­rænu sam­hengi og fékk full­trúa þeirra til að tjá sig um hagn­að­ar­töl­urnar.
Við mættum brjáluðu hafinu, en erum nú komin í skjól
Úttekt

Við mættum brjál­uðu haf­inu, en erum nú komin í skjól

Þúsundir sýr­lenskra flótta­manna koma til höf­uð­borgar Þýska­lands í viku hverri. Kanslari Þýska­lands hefur gefið það út að engin tak­mörk séu fyrir því hversu mörgum flótta­mönnum landið getur tekið á móti. Þessir nýju íbúar Berlínar koma sumir hverjir saman í menn­ing­ar­mið­stöð­inni Salam í úthverfi borg­ar­innar. Þar er spilað, sungið og skegg­rætt um stjórn­mál. Þrátt fyrir erf­ið­leika og óvissu eftir langt og strangt ferða­lag er þakk­læti ofar­lega í huga þessa fólks.
Svona eykur Sigmundur Davíð völd sín
Úttekt

Svona eykur Sig­mundur Davíð völd sín

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur sífellt aukið völd sín frá því hann tók við sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann hefur fært stofn­anir undir for­sæt­is­ráðu­neytið, ráð­stafað opin­beru fé án þess að fag­legt ferli liggi fyrir og breytt lögum sem geti leitt til „auk­innar spill­ingar og frænd­hygli í stjórn­sýslu íslenska rík­is­ins“. Stundin fór yfir umdeildar ákvarð­anir Sig­mundar Davíðs sem eru til þess fallnar að auka völd og vægi for­sæt­is­ráð­herra.
Engeyjarættin: Þræðir stjórnmála og einkahagsmuna
Úttekt

Eng­eyj­a­rættin: Þræðir stjórn­mála og einka­hags­muna

Fjár­fest­arnir í Engeyjar­fjöl­skyld­unni, náin skyld­menni Bjarna Bene­dikts­sonar, hafa gert hag­stæða við­skipta­samn­inga við íslenska ríkið í rík­is­stjórn­ar­tíð Sjálf­stæðis­flokks­ins á síð­ustu tveimur árum. Faðir Bjarna keypti SR-mjöl í umdeildri einka­væð­ingu fyrir röskum tutt­ugu árum. Nú stendur til að hefja stór­fellda einka­væð­ingu á rík­is­eignum og lýsa ýmsir yfir áhyggjum af því að sölu­ferlið kunni að verða ógagn­sætt.
Leiðin að Stjórnstöðinni
Úttekt

Leiðin að Stjórn­stöð­inni

Ný Stjórn­stöð ferða­mála mun kosta ríkið 70 millj­ónir á ári en á sama tíma fæst ekki fjár­veit­ing í stór verk­efni hjá Ferða­mála­stofu. Stóru málin eru enn óleyst. Guðfinna S. Bjarna­dóttir, fyrr­ver­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fór fyrir tveimur stýri­hópum og tekur þátt í að inn­leiða nýja ferða­mála­stefnu. Hún hefur alls fengið greiddar 22 millj­ónir frá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu og Ferða­mála­stofu. Þá hefur reynst erfitt að útfæra leiðir til gjald­töku í grein­inni.
Gekk í sjóinn eftir frávísun frá geðdeild
Úttekt

Gekk í sjó­inn eftir frá­vísun frá geð­deild

Íslend­ingar eru heims­meist­arar í geð­lyfja­notkun en auka­verk­anir vegna þeirra geta verið mjög alvar­legar. Stjórn­völdum hefur ítrekað verið bent á ósam­ræmið í nið­ur­greiðslu á heil­brigð­is­þjón­ustu hér á landi, án árang­urs. Dæmi eru um að fólk sé á geð­lyfjum í mörg ár án þess að fá rétta grein­ingu eða að hafa nokkurn tíma hitt sál­fræð­ing eða geð­lækni, þótt klínískar leið­bein­ingar kveði á um að sál­fræði­með­ferð eigi að vera fyrsta val. Með­al­tími hjá sál­fræð­ingi kostar á bil­inu 8 til 15 þús­und krónur og hefur efna­m­inna fólk ekki aðgengi að þeirri þjón­ustu.
Ísland á krossgötum í nýju góðæri
Úttekt

Ísland á kross­götum í nýju góð­æri

Á Íslandi ríkir nú góð­æri og eru ýmsar hag­tölur farnar að minna á stöð­una á árunum fyrir hrun. Stundin fékk hóp sér­fræð­inga til að velta efna­hags­á­stand­inu á Íslandi fyrir sér og bera það saman við góð­ærið sem ríkti fyrir hrunið 2008. Eitt af því sem bent er á að er að staðan á Íslandi nú sé sum­part sam­bæri­leg við árin 2002 og 2003 á Íslandi; árin fyrir hina gegnd­ar­lausu stækkun og skuld­setn­ingu íslenska banka­kerf­is­ins.

Mest lesið undanfarið ár