Endalok Þjóðkirkjunnar

Þjóð­kirkjan stendur ekki lengur undir nafni sem kirkja þjóð­ar­innar. Rúmur fjórð­ungur lands­manna stendur nú utan Þjóð­kirkj­unnar og hefur hlut­fallið farið stig­lækk­andi und­an­farin ár. Ef þróun síð­ustu ára helst óbreytt eru ein­ungis um tutt­ugu ár þar til minna en helm­ingur lands­manna verður í Þjóð­kirkj­unni. Ríkið greiðir laun 138 presta en stöðu­gildi sál­fræð­inga á heilsu­gæslum lands­ins eru ein­ungis 15. Sál­gæslu­hlut­verk presta er því enn umtals­vert. For­sæt­is­ráð­herra vill efla kristni­fræði­kennslu í skólum.

Á sama tíma og for­stjóri Land­spít­al­ans lýsir yfir þungum áhyggjum vegna skorts á fjár­magni til spít­al­ans er lagt til innan Þjóð­kirkj­unnar að alls verði 150 millj­ónum króna varið í verk­efni til að efla nýliðun í kirkj­unni. Með auknum fjár­fram­lögum til kirkj­unnar er nú búið að aft­ur­kalla allar aðhalds­kröfur sem gerðar voru til hennar frá og með 2009 og hefur starfs­hópur á vegum inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins lagt til að kirkjan fái end­ur­greiddan þann nið­ur­skurð sem hún tók á sig umfram aðrar stofn­anir eftir hrun. Sú upp­hæð nemur um 660 millj­ónum króna. Að sögn for­stjóra Land­spít­al­ans er enn langt í að spít­al­inn nái þeirri stöðu sem hann var í fyrir hrun en umræðan um einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu hefur aftur á móti sjaldan verið hávær­ari. For­svars­menn innan heil­brigð­is­kerf­is­ins furða sig á for­gangs­röð­un­inni.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir Þjóð­kirkj­una hafa sýnt umburð­ar­lyndi og gefið eftir af því fjár­magni sem hún á rétt á sam­kvæmt lögum. Hann segir kirkj­una ekki hafa fengið nægj­an­legar þakkir fyrir fórn­fýsi sína. Þrátt fyrir stöðuga fækkun innan Þjóð­kirkj­unnar vill Sig­mundur Davíð auka vægi hennar í sam­fé­lag­inu og hefur meðal ann­ars talað fyrir því að kristni­fræði­kennsla verði tekin upp að nýju í skólum. 
Stundin kort­lagði fjölda presta eftir land­svæðum, auk heim­il­is­lækna og sál­fræð­inga. Ríkið greiðir laun 138 presta, auk bisk­ups, vígslu­bisk­upa og starfs­manna Bisk­ups­stofu, en ein­ungis eru 15 sál­fræð­ingar að störfum á heilsu­gæslum á lands­vísu. Í ljós kom að almenn­ingur á mun greið­ari aðgang að sál­gæslu hjá presti en sál­fræð­ingi, sér­stak­lega á lands­byggð­inni. Þar er sál­gæslu­hlut­verk presta enn umtals­vert. Þeir eru fengnir til þess að til­kynna and­lát, veita sálu­hjálp á erf­iðum stundum og eru jafn­vel með hjóna­bands­ráð­gjöf.

150 milljónir í nýliðun

Í byrjun þessa árs voru 73,8 pró­sent þjóð­ar­innar skráð í Þjóð­kirkj­una. Hlut­fallið var 85,4 pró­sent árið 2005 og 90,5 pró­sent árið 1996, þegar núgild­andi lög um Þjóð­kirkj­una voru sam­þykkt. Gera má ráð fyrir að hlut­fallið haldi, að öllu óbreyttu, áfram að lækka en innan við sex­tíu pró­sent barna sem fædd­ust á Íslandi í fyrra voru skráð í Þjóð­kirkj­una við fæð­ingu. Ef ekk­ert breyt­ist verður rúmur helm­ingur þjóð­ar­innar utan Þjóð­kirkj­unnar innan 22 ára, en ef breyt­ingar á borð við afnám sjálf­krafa skrán­ingu barna í trú­fé­lög verða sam­þykktar eru líkur á að hnign­unin verði mun hrað­ari.

Nú þegar rúm­lega fjórð­ungur þjóð­ar­innar stendur utan Þjóð­kirkj­unnar benda margir á að tæp­ast sé hægt að kalla hana kirkju þjóð­ar­innar og rétt­ast sé að skilja að ríki og kirkju. Kirkjan hefur ákveðið að bregð­ast við þess­ari þróun og á nýliðnu kirkju­þingi lagði starfs­hópur fram áætlun um hvernig megi efla nýliðun í Þjóð­kirkj­unni. Í skýrslu starfs­hóps­ins segir meðal ann­ars að kirkjan sé orðin horn­reka hjá RÚV og lítt áber­andi á öðrum fjöl­miðlum, trú­ar­leg van­þekk­ing sé farin að bitna illa á menn­ing­ar­læsi almenn­ings meðal ann­ars vegna vand­ræða­gangs skóla­kerf­is­ins er kemur að and­legum mál­efnum og þá hafi Þjóð­kirkjan ekki megnað að brjót­ast í gegnum almennt skeyt­ing­ar­leysi til þess að kenna þjóð­inni í heild um „fagn­að­ar­er­indið, játn­ingar og náð­ar­meðul“. „Verði ekki brugð­ist við er lík­legt að þróun til 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár