Mynd: Kristinn Magnússon

Gekk í sjóinn eftir frávísun frá geðdeild

Íslend­ingar eru heims­meist­arar í geð­lyfja­notkun en auka­verk­anir vegna þeirra geta verið mjög alvar­legar. Stjórn­völdum hefur ítrekað verið bent á ósam­ræmið í nið­ur­greiðslu á heil­brigð­is­þjón­ustu hér á landi, án árang­urs. Dæmi eru um að fólk sé á geð­lyfjum í mörg ár án þess að fá rétta grein­ingu eða að hafa nokkurn tíma hitt sál­fræð­ing eða geð­lækni, þótt klínískar leið­bein­ingar kveði á um að sál­fræði­með­ferð eigi að vera fyrsta val. Með­al­tími hjá sál­fræð­ingi kostar á bil­inu 8 til 15 þús­und krónur og hefur efna­m­inna fólk ekki aðgengi að þeirri þjón­ustu.

Það eina sem Hildur Rún Helgu­dóttir hugs­aði um, þar sem hún stóð í grjót­inu niðri í Gróttu og horfði út á hafið, var hversu mikið hana lang­aði til að deyja. Hún gerði sér grein fyrir að hennar yrði sárt saknað, en fannst ósann­gjarnt að hún þyrfti að lifa fyrir aðra. Af hverju mátti hún ekki bara deyja? Hún tók fyrsta skrefið út í vatnið og hélt síðan áfram að ganga þar til sjór­inn umlukti hana. Nú yrði hún loks­ins frjáls.

Tveimur vikum áður en Hildur Rún gekk í sjó­inn leit­aði hún á bráða­mót­töku geðsviðs Land­spít­al­ans vegna sjálfs­vígs­hugs­ana. Henni var vísað frá. „Þegar ég kom var ég fyrst beðin um að fylla út spurn­inga­lista þar sem var meðal ann­ars spurt hvað væri að hrjá mig og hvort ég hefði gert eitt­hvað til þess að skaða mig. Ég fyllti út list­ann og skil­aði honum inn. Tæpum hálf­tíma síðar tók geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur á móti mér. Hún spurði mig hvers vegna mér liði svona illa, en ég hafði nátt­úr­lega engin svör. Mér leið bara illa.“ 
Á þessum tíma voru tveir mán­uðir þar til Hildur Rún átti að fara til Sviss að vinna á bónda­býli en hún hafði skráð sig í gegnum fyr­ir­tækið Nínukot. Hún segir hjúkr­un­ar­fræð­ing­inn hafa hvatt sig til þess að vera jákvæð og hugsa til þess að hún væri að fara til Sviss. Hún hefði sann­ar­lega eitt­hvað til að hlakka til og ætti ekki að vilja enda líf sitt. „Ég ját­aði bara öllu sem hún sagði. Það voru mín varn­ar­við­brögð.“

Hafði áhyggjur af jarðarfararkostnaði

Eftir stutt spjall við geð­hjúkr­unar­fræð­ing var Hildur Rún send heim. „Mér leið eins og fífli,“ segir hún. „Fyrir að hafa leitað þangað þegar það var greini­lega ekk­ert að mér.“

Tveimur vikum síðar gekk hún í sjó­inn. „Ég var nýkomin heim úr sum­ar­bú­stað­ar­ferð með vinum mínum og vin­konum. Ég skemmti mér mjög vel í ferð­inni, en það var eitt­hvað innra með mér sem sagði að nú væri komið að þessu. Mér fannst ég hafa þjáðst nógu lengi og eiga það skilið að losna. Ég fór heim, grét smá og safn­aði í mig kjarki. Það tók svo­lít­inn tíma. Svo skrif­aði ég mömmu bréf þar sem ég sagði að mér þætti þetta leitt. Ég hafði 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár