Situr eftir í óvissu Steinunn Hjart­ar­dóttir er ósátt við vinnu­brögð barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar sem greip til neyð­ar­ráð­stöf­unar í lögum til þess að setja dóttur hennar í fóstur. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Þið eruð að ræna barninu mínu“

For­eldrar barna með fjöl­þættan vanda standa eftir ráða­lausir og örvænt­inga­fullir, þegar full­reynt er með þau fáu úrræði sem eru í boði. Ríkið hefur ekki gert þjón­ustu­samn­ing við Vinakot, einka­rekið með­ferð­ar­úr­ræði fyrir börn með fjöl­þættan vanda, og ekki ríkir jafn­ræði eftir sveit­ar­fé­lögum hvort börn fái þjón­ustu þaðan. Barna­vernd­ar­nefnd Hafn­ar­fjarðar greip nýverið til neyð­ar­ráð­stöf­unar í lögum til að fjar­lægja stúlku úr Vinakoti og koma henni í fóstur. Móðir stúlkunnar talar um mis­beit­ingu á valdi.

„Þið eruð að ræna barn­inu mínu,“ segir örvænt­inga­full móðir, Steinunn Hjart­ar­dóttir, á hljóð­upp­töku sem Stundin hefur undir höndum. Orðunum beinir hún að starfs­mönnum barna­vernd­ar­nefndar Hafn­ar­fjarðar sem þennan sama dag greip til neyð­ar­ráð­stöf­unar í lögum til að fjær­lægja dóttur Stein­unnar af Vinakoti, einka­rek­ins með­ferð­ar­úr­ræðis fyrir börn með fjöl­þættan vanda, til þess að koma henni í fóstur. Samkvæmt lögum er úrræð­inu beitt þegar barn er talið í bráðri hættu, en ljóst er að það átti ekki við í þessu til­viki. Vinakot er hins vegar dýrt úrræði og grunar Stein­unni að það hafi einmitt verið hár kostn­aður sem hafi legið að baki þess­ari ómildu ákvörðun. 

For­stöðu­kona Vinakots segir ekk­ert jafn­ræði ríkja um þetta eina úrræði sem hún viti til að sér­hæfi sig í með­ferðum fyrir börn með fjöl­þættan vanda. Mála­flokk­ur­inn sé á herðum sveit­ar­fé­lag­anna, sem séu mis­burðug og með ólíkar áherslur. „Það gerir það að verkum að það er mis­jafnt eftir því hvar þau búa hvaða úrræði standa þeim til boða,“ segir hún. 

Blaða­maður Stund­ar­innar fór á stjórn­ar­fund Oln­boga­barna, hlust­aði á reynslu­sögur mæðra sem eiga börn með fjöl­þættan vanda og fékk að heyra hvað brennur á þeim. Fyrst og fremst segja þær skorta úrræði og að eina úrræðið sem sé í boði sé ekki nógu aðgengi­legt. Ríkið þurfi að gera þjón­ustu­samn­ing við Vinakot eða setja á lagg­irnar sam­bæri­legt úrræði. Þá þurfi að grípa mikið fyrr inn í með við­eig­andi úrræðum í stað þess að setja vægu til­fellin neðst í bunk­ann og bíða eftir að þau verði alvar­leg.

Send í sveit

Steinunn seg­ist hafa vitað það strax í leik­skóla að dóttir hennar væri öðru­vísi en önnur börn. Snemma hafi hegð­un­ar­vandi gert vart við sig og þá var hún seinni í þroska en jafn­aldrar hennar. Samt sem áður var ekki talin þörf á að senda hana í grein­ingu. Það var ekki fyrr en í fimmta bekk að hún var greind með ADHD og les­blindu. Síðar bætt­ust við þung­lyndi, kvíði og ódæmi­gerð ein­hverfa. Nám hefur ætíð vaf­ist fyrir henni og í fimmta bekk byrj­aði hún að skrópa í skól­anum. „Ég þrjóskað­ist of lengi við að fá hana til að læra og mæta í skól­ann,“ segir Steinunn. „Við nán­ast slóg­umst. Það var við­var­andi stríðs­á­stand á heim­il­inu, því ég taldi mig þurfa að sjá til þess að hún sinnti 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár