Mynd: Pressphotos

Svona eykur Sigmundur Davíð völd sín

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur sífellt aukið völd sín frá því hann tók við sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann hefur fært stofn­anir undir for­sæt­is­ráðu­neytið, ráð­stafað opin­beru fé án þess að fag­legt ferli liggi fyrir og breytt lögum sem geti leitt til „auk­innar spill­ingar og frænd­hygli í stjórn­sýslu íslenska rík­is­ins“. Stundin fór yfir umdeildar ákvarð­anir Sig­mundar Davíðs sem eru til þess fallnar að auka völd og vægi for­sæt­is­ráð­herra.

Nú sé ég eftir því að hafa ekki verið búinn að tryggja for­sæt­is­ráð­herra vald til að gefa öllum frí með skömmum fyr­ir­vara þegar til­efni er til. Reyndar sagði ég lands­liðs­strák­unum eftir leik­inn að allir veit­inga- og skemmti­staðir yrðu opnir fyrir þá í nótt eins lengi og þeir vildu. Eftir á að hyggja hafði ég form­lega séð lík­lega ekki vald til þess heldur.“ Þetta skrif­aði Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra þegar karla­lands­lið Íslands í knatt­spyrnu tryggði sér sæti í loka­keppni EM í haust. Þó svo að hug­leið­ing­arnar hafi verið settar fram í gamni blasir við alvar­legri und­ir­tónn því Sig­mundur Davíð hefur smátt og smátt aukið völd sín og vægi frá því hann sett­ist í ráð­herra­stól.

Vill geta tekið lönd og mannvirki eignanámi

Sig­mundur Davíð hyggst til að mynda leggja fram til­lögu um laga­breyt­ingar á Alþingi sem gerir honum, sem ráð­herra, heim­ilt að taka „eign­ar­námi lönd, mann­virki og rétt­indi til að fram­kvæma frið­lýs­ingu“. Þessar til­lögur eru liður í því að auka vald hans sem for­sæt­is­ráð­herra yfir ásýnd byggðar en í kjöl­far þess að Sig­mundur Davíð tók við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu var for­ræði Minja­stofn­unar flutt frá mennta­mála­ráðu­neyti yfir í ráðu­neyti Sig­mundar.

Sig­mundur Davíð hefur þegar fengið sam­þykkta laga­breyt­ingu á Alþingi sem gerir honum kleift að úrskurða byggð svæði á Íslandi sér­stök vernd­ar­svæði. Samkvæmt lög­unum getur for­sæt­is­ráð­herra fyr­ir­skipað Minja­stofnun að „útbúa til­lögu um að til­tekin byggð, sem að mati ráð­herra hefur varð­veislu­gildi á lands­vísu, verði gerð að vernd­ar­svæði í byggð.“. Þá kemur 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár