Þögult auðmagn og þögult vald
Greining

Þögult auð­magn og þög­ult vald

Ríkasta eina pró­sent heims­ins hefur breytt neyslu­mynstri sínu og farið frá því að kepp­ast við að sýna hver er rík­astur með lífs­stíl, snekkjum og merkja­vöru, yfir í að fjár­festa í menntun, heilsu og lang­lífi. Félags­fræð­ingur segir það gert til að aðgreina sig, bæði frá almenn­ingi og öðrum sem bera það utan á sér að eiga pen­inga. Það þykir þeim allra rík­ustu ekki lengur smart.
Sá yngsti erfði jörð og áratuga fjölskyldudeilur
GreiningHátekjulistinn 2023

Sá yngsti erfði jörð og ára­tuga fjöl­skyldu­deilur

Þegar Þor­steinn Hjalte­sted, eig­andi Vatns­enda, lést árið 2018 erfði eldri sonur hans, þá aðeins sextán ára, jörð­ina sam­kvæmt erfða­skrá frá 1938. Magnús Pétur Hjalte­sted, yngsti maður á hátekju­lista Heim­ild­ar­innar, hafði engar launa­tekjur í fyrra og greiddi því hvorki tekju­skatt né útsvar, en var með um 46,5 millj­ónir í fjár­magnstekjur.
Heimilin hafa aldrei tekið jafn mikið af verðtryggðum íbúðalánum í einum mánuði
Greining

Heimilin hafa aldrei tekið jafn mikið af verð­tryggðum íbúða­lánum í einum mán­uði

Sífellt fleiri heim­ili eru að skipta úr óverð­tryggðum lánum yfir í verð­tryggð lán til að lækka mán­að­ar­lega greiðslu­byrði sína. Algjör spreng­ing varð í þess­ari þróun í júlí þegar umfang verð­tryggðra lána sem voru tekin var rúm­lega tvö­falt meira en mán­uð­inn áður. Á sama tíma er kaup­samn­ingum að fækka um næstum þriðj­ung milli ára.
Einungis þriðjungur ætlar að kjósa ríkisstjórnarflokkana sem hafa hríðfallið í vinsældum
Greining

Einungis þriðj­ungur ætlar að kjósa rík­is­stjórn­ar­flokk­ana sem hafa hríð­fallið í vin­sældum

Tveir stjórn­ar­flokka hafa tapað um helm­ingi fylgis síns það sem af er kjör­tíma­bili og sá þriðji hátt í þriðj­ungi. Sam­an­lagt fylgi allra þriggja er ein­ungis 7,1 pró­sentu­stigi yfir fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem mælist með 26,1 pró­sent. Engin tveggja flokka stjórn er mögu­leg en stærstu miðju­flokk­arnir ættu að óbreyttu marga mögu­leika á stjórn­ar­myndun.
Líklegast að verða ríkur ef þú ert karl, áttir í útgerð, heitir Jón og býrð á Nesinu
GreiningHátekjulistinn 2023

Lík­leg­ast að verða ríkur ef þú ert karl, áttir í útgerð, heitir Jón og býrð á Nesinu

Hér er birtur listi yfir það eina pró­sent Íslend­inga sem hafði mestar tekjur á síð­asta ári. Listinn byggir á grein­ingu Heim­ild­ar­innar á álagn­ing­ar­skrá Skatts­ins sem gerð er aðgengi­leg almenn­ingi og fjöl­miðlum í nokkra daga á ári í ágúst­mán­uði.  Það er ýmis­legt sem vekur athygli þegar listi sem þessi er skoð­aður. Eitt er að hann sýnir okkur allt aðra mynd en...
Miklu betur borgað að gæta hagsmuna atvinnulífsins en launafólks
GreiningHátekjulistinn 2023

Miklu betur borgað að gæta hags­muna atvinnu­lífs­ins en launa­fólks

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins fékk rúm­lega 4,1 milljón á mán­uði fyrir hags­muna­gæslu og stjórn­ar­for­mennsku í banka á síð­asta ári. Helsti hags­muna­vörður sjáv­ar­út­vegs­ins var með hærri laun í fyrra en fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins. Formaður stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins var með tæp­lega 40 pró­sent af launum hennar á mán­uði á árinu 2022. Heim­ildin birtir lista yfir launa­kjör helstu hags­muna­varða atvinnu­lífs og for­ystu­fólks innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar.
Ellefu karlar, tvær konur og tveir sem heita Jón Sigurðsson á listanum yfir launahæstu forstjórana
GreiningHátekjulistinn 2023

Ellefu karlar, tvær konur og tveir sem heita Jón Sig­urðs­son á list­anum yfir launa­hæstu for­stjór­ana

For­stjóra­launin eru í flestum til­fellum betri hjá þeim fyr­ir­tækjum sem ekki eru skráð á markað, og eru í eigu erlendra aðila. Alls voru 13 for­stjórar með meira en átta millj­ónir króna á mán­uði í laun á síð­asta ári. Það tók þann sem var með hæstu launin um ell­efu daga að vinna sér inn mið­gildi heild­ar­launa allra Íslend­inga á einu ári. Heim­ildin birtir lista yfir launa­hæstu for­stjóra lands­ins.
Haraldur þénaði 46 milljónir á mánuði en launin voru samt helmingi lægri en árið áður
Greining

Haraldur þén­aði 46 millj­ónir á mán­uði en launin voru samt helm­ingi lægri en árið áður

Tveir Íslend­ingar þén­uðu yfir 100 millj­ónir króna á mán­uði í laun á árinu 2021. Sá sem var með hæstu launa­tekjur á land­inu á árinu 2021 þén­aði ein­ungis um fjögur pró­sent af þeim í fyrra en var samt með marg­föld reglu­leg íslensk heild­ar­laun. Hinn, Haraldur Ingi Þor­leifs­son, var enn með hæstu launa­tekjur allra Íslend­inga á síð­asta ári, og borg­aði yfir 250 millj­ónir króna í skatta.
F-16 þotur til Úkraínu: Af hverju vill Zelensky hálfrar aldar gamlar þotur?
Greining

F-16 þotur til Úkraínu: Af hverju vill Zelensky hálfrar aldar gamlar þotur?

Banda­ríkja­þing sam­þykkti í gær (fimmtu­dag­inn 17. ágúst) að Dönum og Hol­lend­ingum væri heim­ilt að láta Úkra­ínu­mönnum í té her­þotur af gerð­inni F-16 en þær eru fram­leiddar í Banda­ríkj­unum. Því er fagnað í Úkraínu þótt þar hefðu margir kosið að þessi ákvörðun hefði verið tekin mun fyrr. Í marga mán­uði hafa Úkra­ínu­menn beðið vest­ræna banda­menn sína um þessar F-16 þotur. Rússar...
Heimilin greiða niður óverðtryggðu lánin og færa sig í verðtrygginguna
Greining

Heimilin greiða niður óverð­tryggðu lánin og færa sig í verð­trygg­ing­una

Lands­menn hafa aldrei áður verið með jafn mikið af verð­tryggðum lánum hjá bönkum. Krónu­tala þeirra hefur hækkað vegna þess að heim­ili skipta yfir í þau til að lækka greiðslu­byrði og vegna þess að verð­bætur leggj­ast á höf­uð­stól þeirra. Þær verð­bætur eru umtals­verðar þegar verð­bólga er jafn há og hún hefur verið und­an­farið.

Mest lesið undanfarið ár