Bótakrafa Vinnslustöðvarinnar vegna makrílkvóta hefur lækkað um þriðjung en er samt 1,2 milljarðar

Fyrir fjórum árum ákváðu sjö útgerðir að stefna íslenska rík­inu vegna þess að þær töldu sig hafa orðið fyrir fjár­tjóni vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra. Alls vildu þær fá 10,2 millj­arða króna úr sam­eig­in­legum sjóðum. Þegar fjöl­miðlar greindu frá umgangi krafna þeirra reis upp gagn­rýn­is­alda og fimm útgerðir hættu við. Tvær tengdar útgerðir héldu hins vegar áfram mála­rekstri og krefj­ast enn að ríkið greiði þeim 1,2 millj­arða króna í skaða­bætur.

Bótakrafa Vinnslustöðvarinnar vegna makrílkvóta hefur lækkað um þriðjung en er samt 1,2 milljarðar
Haldið til streitu Sigugeir Brynjar Krist­geirs­son, fram­kvæmda­stjóri Vinnslu­stöðv­ar­innar, sést hér í pontu á aðal­fundi hennar í síð­asta mán­uði. Vinnslu­stöðin hagn­að­ist um 2,7 millj­arða króna á árinu 2022. Mynd: Vinnslustöðin

Vinnslu­stöðin í Vest­manna­eyjum og dótt­ur­fé­lag hennar, Huginn, hafa lækkað kröfur sínar um skaða­bætur frá íslenska rík­inu vegna fjár­tjóns sem útgerð­irnar telja sig hafa hafa orðið fyrir vegna mak­ríl­kvóta sem fór ekki til þeirra á árunum 2011 til 2018. 

Sumarið 2019, þegar stefn­urnar voru lagðar fram, krafð­ist Vinnslu­stöðin þess að ríkið greiddi sér um 982 millj­ónir króna og Huginn krafð­ist þess að fá 839 millj­ónir króna. Báðar útgerð­irnar fóru einnig fram á að ríkið greiddi þeim hæstu mögu­legu drátt­ar­vexti, að hluta til frá sumr­inu 2015. Heild­ar­krafa þess­ara tengdu útgerða á hendur íslenska rík­inu var því upp á rúm­lega 1,8 millj­arða króna auk afar hárra drátt­ar­vaxta. 

Með bók­unum sem Huginn lagði fram í jan­úar í fyrra og Vinnslu­stöðin í febr­úar síð­ast­liðnum er kröfu­gerðin lækkuð sam­tals um 598 millj­ónir króna, eða þriðj­ung. Nú fara útgerð­irnar fram á að rík­is­sjóður greiði þeim rúm­lega 1,2 millj­arða króna auk máls­kostn­aðar og drátt­ar­vaxta. Þetta var gert eftir …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár