Verðið á bensíni lækkar mun hægar en innkaupaverð olíufélaganna

Álagning íslensku olíu­fé­lag­anna á hvern seldan bens­ín­lítra er nú um 17,2 pró­sent eftir að hafa verið nokkuð stöðugt í kringum 20 pró­sent frá síð­asta hausti. Í fyrra­sumar var hún í kringum tíu pró­sent.

Verðið á bensíni lækkar mun hægar en innkaupaverð olíufélaganna

Í lok jan­úar í fyrra, skömmu áður en stríðið í Úkraínu skall á, var við­mið­un­ar­verð á bens­íni á Íslandi 266,9 krónur á lítra. Í kjöl­far stríðs­ins rauk heims­mark­aðs­verð á olíu upp. Frá jan­ú­ar­lokum og fram í byrjun júní­mán­aðar 2022 hækk­aði það um 30,8 pró­sent. Við­mið­un­ar­verðið á bens­ín­stöðvum á Íslandi hækk­aði nán­ast í sama takti. 

Síðan um mitt ár í fyrra og fram til dags­ins í dag hefur heims­mark­aðs­verð á tunnu af hrá­olíu lækkað um 30 pró­sent. Það er nú orðið lægra en það var fyrir stríð. Sama má segja um inn­kaupa­verð íslensku olíu­fé­lag­anna á olíu, sem ákvarð­ast einkum af heims­mark­aðs­verði og gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal.

Við­mið­un­ar­verð á seldum bens­ín­lítra á Íslandi hefur hins vegar ekki haldið í við þessa þróun. Það hefur ein­ungis lækkað um 8,3 pró­sent. Smá­sölu­verð á seldum lítra af bens­íni á Íslandi er enn 17 pró­sent hærra en það var í upp­hafi árs í fyrra, …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Hvergi nema á Íslandi fær fákeppnis-fyrirtæki að hafa frjálsa álagningu á vöru og þjónustu, það er fullt tilefni fyrir samkeppnisstofnun af þessu tilefni að rannsaka hvort nýtt samráð olíufélagana sé til staðar, já eða hætti gamla samráðið aldrei og lifir góðu lífi og malar á kostnað neytanda, svo það sé sagt þá hefur nýfrjálshyggju-fólkið fjársvelt samkeppnisstofnun líkt og annað eftirlit í landinu.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár