Hvað segja þingmenn, er nauðsynlegt að skjóta þá?

Að minnsta kosti 40% þing­manna eru and­vígir áfram­hald­andi hval­veiðum og 13% hlynntir. Sex þing­menn, m.a. tveir ráð­herrar og þrír aðrir þing­menn stjórn­ar­flokk­anna, lýsa ákveðnum efa­semdum um fram­haldið en gefa þó ekki upp skýra afstöðu. „Per­sónu­lega tel ég ekki sjálf­gefið að þessar veiðar haldi áfram,“ segir for­sæt­is­ráð­herra.

Hvað segja þingmenn, er nauðsynlegt að skjóta þá?

25 af 39 þing­mönnum sem svör­uðu fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar um afstöðu til hval­veiða eru and­vígir því að þeim verði haldið áfram í sumar eða 40 pró­sent alls þing­heims. Átta þing­menn sem svör­uðu eru hlynntir veið­unum og sex gáfu ekki afger­andi svar. Lýstu sumir efa­semdum og settu ákveðna fyr­ir­fara um fram­haldið. 24 þing­menn svör­uðu ekki fyr­ir­spurn­inni eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína. Flestir þeirra sitja á þingi fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Fram­sókn­ar­flokk­inn.

Tilefni þess að Heim­ildin kann­aði afstöðu þing­manna til hval­veiða nú er nýút­gefin eft­ir­lits­skýrsla Mat­væla­stofn­unar þar sem fram kom m.a. að fjórð­ungur þeirra tæp­lega 150 lang­reyða sem veiddar voru við Ísland í fyrra voru skotnar oftar en einu sinni. Yfir helm­ingur allra dýr­anna drapst ekki sam­stundis og mörg háðu langt og kval­ar­fullt dauða­stríð. Sum voru elt lengi eftir fyrsta skot, jafn­vel í fimm klukku­stundir. Þá eru dæmi um veiðar í myrkri, að skutlar hafi ekki sprungið við snert­ingu og að dýrin hafi verið hæfð í bægsli. Ellefu kýr voru kelfdar og ein var mjólk­andi sem þýðir að hún hefur verið með afkvæmi á spena.

Spurning Heim­ild­ar­innar var eft­ir­far­andi: Ertu hlynnt/ur því eða and­víg/ur að hval­veiðar verði stund­aðar við Ísland í sumar?

Óskað var eftir per­sónu­legri afstöðu hvers þing­manns, burt­séð frá því hvort við­kom­andi teldi hægt að aft­ur­kalla gild­andi leyfi Hvals hf. til veið­anna. Fyr­ir­spurnin var send í tölvu­pósti sem fylgt var eftir með ítrekun nokkrum dögum seinna. Í kjöl­farið var reynt að hringja í þá sem ekki höfðu svarað. Alþing­is­menn eru 63 og svar­hlut­fallið var því 62 pró­sent.

Ísland er eitt þriggja ríkja í heim­inum sem stundar hval­veiðar í hagn­að­ar­skyni og það eina sem leyfir veiðar á lang­reyði, næst stærsta spen­dýri jarðar. Hvalur hf. hefur eitt fyr­ir­tækja leyfi til hval­veiða í ár. Það leyfi var gefið út árið 2019. Mat­væla­ráð­herra hefur sagt að hún telji sér ekki heim­ilt að svipta fyr­ir­tækið leyfi til veið­anna án þess að skapa rík­inu skaða­bóta­skyldu. Þessa afstöðu gagn­rýna þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar.

DýraníðInga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vita hvernig hægt sé að meta þján­ingar hvala til fjár.

„Ef ég væri mat­væla­ráð­herra myndi ég vita hvert vald­svið mitt væri og ég myndi ein­fald­lega banna hval­veiðar á stund­inni og hefði verið búin að því,“ segir Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, við Heim­ild­ina. Hún telur það rangt hjá mat­væla­ráð­herra að ekki séu heim­ildir til að svipta Hval hf. veiði­leyf­inu. „Hún er ráð­herra. Hún trónir efst í þessum strúktúr.“ Að mati Ingu væri hægt að stöðva veið­arnar á mörgum for­sendum, m.a. vegna almanna­hags­muna, að áfram­hald­andi veiðar muni skaða ímynd lands­ins og að veið­arnar séu ekki sjálf­bærar, „svo ég tali nú ekki um að þetta er dýra­níð“.

Mögulega höfði for­svars­menn Hvals hf. skaða­bóta­mál. „Ég veit ekki hvernig hægt er að meta það til fjár, að koma í veg fyrir að fleiri hvalir líði þessar þján­ingar,“ segir Inga. 

„Við erum ekki bara að drepa þá – það er verið að pynta þá til dauða.“
Inga Sæland,
for­maður Flokks fólks­ins

Allir þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar svör­uðu fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar utan Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins. Tveir þing­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokka sögð­ust hlynntir veið­unum en 21 var and­vígur.

Allir þing­menn Pírata og Við­reisnar eru and­vígir hval­veiðum við Íslands­strendur. „Ég hef verið alfarið and­víg hval­veiðum í mörg ár,“ segir Arndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir, þing­maður Pírata. Ástæðan sé sú að ekki sé hægt að stunda þær á mann­úð­legan hátt.

Þjáning og pínaSigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar, segir eðli­legt að nýta með sjálf­bærum hætti nytja­stofna en að veiðar megi ekki kalla þján­ingu og pínu yfir dýr.

Sigmar Guð­munds­son, þing­maður Við­reisnar segir að á sama tíma og það sé „eðli­leg­asti hlutur í heimi“ að nýta með sjálf­bærum hætti auð­lindir og nytja­stofna „hljótum við að gera þær kröfur að veiðar kalli ekki þján­ingu og pínu yfir dýr“.

Fimm af sex þing­mönnum Flokks fólks­ins eru á sama báti. Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður flokks­ins, seg­ist áður hafa verið tví­stíg­andi gagn­vart hval­veiðum. Nú sé það henni hins vegar ljóst að aðferð­irnar eru mun verri en hún gat ímyndað sér. „Ég er því ekki tví­stíg­andi lengur, heldur algjör­lega and­víg því að hval­veiðar verði stund­aðar við Ísland í sumar.“

Einn vara­þing­maður Flokks fólks­ins, Sigurjón Þórð­ar­son, seg­ist hlynntur þeim, en  vil að tekið verði til­lit til nið­ur­stöðu eft­ir­lits­skýrslu MAST „til þess að tryggja að veið­arnar gangi betur fyrir sig“.

Ekki áherslumál

Fimm af sex þing­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar eru mót­fallnir áfram­hald­andi veiðum en for­mað­ur­inn, Kristrún Frosta­dóttir, gaf ekki afger­andi svar. „Þetta er ekki mál sem ég sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar legg áherslu á núna. En það þarf að skoða betur veit­ingu þess­ara leyfa,“ svar­aði hún.

Annar tveggja þing­manna Mið­flokks­ins, Bergþór Ólason, svar­aði fyr­ir­spurn­inni á þá leið að hann væri fylgj­andi áfram­hald­andi hval­veiðum. „Það er sjálf­sagt mál, hér eftir sem hingað til, að auð­lindir lands­ins séu nýttar með sjálf­bærum hætti.“

Ekki sjálf­gefiðKatrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VInstri grænna segir ekki sjálf­gefið að hval­veiðum verði fram­haldið.

Sex þing­menn Vinstri grænna svör­uðu fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar. Fjórir sögð­ust and­vígir veið­unum og tveir, Svandís Svav­ar­dóttir mat­væla­ráð­herra og Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra, lýstu efa­semdum sínum án þess þó að gefa afger­andi svar. „Þau mynd­bönd sem birst hafa, sem sýna raun­veru­leika þess­ara veiða eru slá­andi og vekja upp spurn­ingar um fram­tíð þess­arar atvinnu­greinar,“ segir Svandís. „Per­sónu­lega tel ég ekki sjálf­gefið að þessar veiðar haldi áfram,“ segir Katrín for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna.

Sex af sautján þing­mönnum Sjálf­stæð­is­flokks svör­uðu og voru fjórir þeirra hlynntir hval­veiðum. „Ég set stór spurn­inga­merki við veiðar á hvölum, ekki bara í sumar heldur almennt,“ sagði hins vegar Friðjón R. Frið­jóns­son vara­þing­maður sem situr nú á þingi í fjar­veru Hildar Sverr­is­dóttur. „Á meðan ég efast um lög­mæti þess að aft­ur­kalla leyfið til hval­veiða í sumar er ég ekki stuðn­ings­maður þess að það verði end­ur­nýjað.“

Dýra­vel­ferðBryndís Har­alds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir dýra­vel­ferð mik­il­væga þegar komi að sjálf­bærum veiðum.

Sam­flokks­kona hans, Bryndís Har­alds­dóttir, er á svip­uðum nótum, seg­ist hlynnt því að nytja­stofnar séu nýttir á sjálf­bæran hátt en „dýra­vel­ferð er ekki síður mik­il­væg í því sam­hengi og nýleg skýrsla kallar á yfir­ferð þess­ara mála“. 

Þrír þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins svör­uðu. Tveir sögð­ust hlynntir veið­unum en einn var á báðum áttum. „Ég eig­in­lega veit það ekki,“ sagði Stefán Vagn Stef­áns­son, spurður um afstöðu sína. „Ég er almennt hlynntur hval­veiðum en það þarf að horfa til þess sem fram kemur í þess­ari skýrslu.“

Hér að neðan eru svör þing­manna sem bár­ust við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar.


Andrés Ingi Jónsson

þingmaður Pírata

Andvígur hval­veiðum í sumar, and­vígur hval­veiðum eftir sum­arið.

Eft­ir­lits­skýrslan sem MAST var að birta stað­festir bara það sem öllum sem vilja vita hefur verið ljóst í háa herr­ans tíð: Það er ekki hægt að stunda hval­veiðar með mann­úð­legum hætti. Þegar sú nið­ur­staða liggur skýr fyrir – og bæt­ist ofan á öll rökin sem fyrir voru gegn hval­veiðum – er óskilj­an­legt að ráð­herra víki sér undan því að gera nokkuð fyrir sum­arið. Ef sér­fræð­ingar ráðu­neyt­is­ins segja að kerfið leyfi henni ekki að gera það (túlkun sem ég er reyndar ósam­mála), þá er það hennar hlut­verk sem ráð­herra að breyta kerf­inu. Og til þess hefur hún haft 18 mán­uði í emb­ætti.


Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir

þingmaður Pírata

Ég hef verið alfarið and­víg hval­veiðum í mörg ár, eða allt frá því ég gaf mér tíma til að kynna mér hvers vegna það er svona mikil and­staða við þær á heims­vísu. Það er vegna þess að hval­veiðar er ekki hægt að stunda á mann­úð­legan hátt. Það er ekki hægt. Dýrin eru ofan í sjónum, ill­sjá­an­leg og á hreyf­ingu, og þau eru of stór til þess að hægt sé að tryggja að þau eigi skjótan og sárs­auka­lausan dauð­daga. Íslend­ingar fundu upp (að mér skilst) þessa „frá­bæru“ tækni, sprengiskut­ul­inn, til þess að láta þeim blæða örlítið hraðar út, en dauð­dag­inn er sárs­auka­fullur og skelfi­legur engu að síður. Dýrið kvelst alltaf. Þetta er algjör við­bjóður. Hvalir eru spen­dýr; greind, for­vitin og til­finn­inga­rík eins og við.

AndvígArndís Anna Krist­ín­ar­dóttir Gunn­ars­dóttir: Þetta er algjör við­bjóður.

Skýrsla Mat­væla­stofn­unar var sann­ar­lega slá­andi, en hún sagði okkur nákvæm­lega ekki neitt sem við vissum ekki nú þegar. Það er algjör­lega ömur­legt að ráð­herra vinstri grænna sé að vakna fyrst núna og þyk­ist ekk­ert geta gert. Hún stóð sjálf að samn­ingu álykt­unar fyrir 8 árum síðan þar sem þetta kom allt saman fram. Hún sat í rík­is­stjórn þegar þessi samn­ingur var gerður og hún situr í rík­is­stjórn í dag og hún vissi allan tím­ann hvernig í pott­inn er búið.


Ágúst Bjarni Garðarsson

þingmaður Framsóknarflokksins

Ég er almennt hlynntur sjálf­bærum veiðum og það gildir um veiðar á hval eins og öðrum veiðum á nytja­stofnum sjávar.


Ásthildur Lóa Þórsdóttir

þingmaður Flokks fólksins

Í gegnum tíð­ina hef ég verið tví­stíg­andi gagn­vart hval­veiðum og séð bæði kosti og galla við að halda þeim áfram enda hafði ég enga hug­mynd að verið væri að murka úr þeim lífið með þeim hætti sem þessi skýrsla sýnir fram á.

Veiði­að­ferð­irnar eru mun verra en ég hafði getað ímyndað mér og hljóta að flokk­ast undir dýra­níð af verstu sort. Þær eru algjör­lega óverj­andi og ótrú­legt ef þessar upp­lýs­ingar nægja ekki til að banna hval­veiðar án tafar.

Ég er því ekki tví­stíg­andi lengur, heldur algjör­lega and­víg því að hval­veiðar verði stund­aðar við Ísland í sumar.


Bergþór Ólason

þingmaður Miðflokksins

Ég er fylgj­andi áfram­hald­andi hval­veiðum. Það er sjálf­sagt mál, hér eftir sem hingað til, að auð­lindir lands­ins séu nýttar með sjálf­bærum hætti. 


Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir

þingmaður Vinstri grænna

Ég er ekki hlynnt hval­veiðum yfir höfuð, hvorki áður né í sumar. Tek þó fram að þeim þarf að hætta með réttum hætti og byggja á lög­mætum sjón­ar­miðum.


Björn Leví Gunnarsson

þingmaður Pírata

Andvígur.


Bryndís Haraldsdóttir

þingmaður Sjálfstæðisflokks

Ég er hlynnt því að við Íslend­ingar nýtum okkar auð­lindir og nytja­stofna á sjálf­bæran hátt í sam­ræmi við ráð­legg­ingar vís­ind­anna. Dýra­vel­ferð er ekki síður mik­il­væg í því sam­hengi og nýleg skýrsla kallar á yfir­ferð þess­ara mála.


Friðjón Friðjónsson

varaþingmaður Hildar Sverrisdóttur þingmanns Sjálfstæðisflokks

Stórt spuninga­merkiFriðjón R. Frið­jóns­son, vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Ég set stór spurn­inga­merki við veiðar á hvölum, ekki bara í sumar heldur almennt. Það kvala­stríð hvala sem kemur fram í mynd­böndum dregur ekki úr efa­semdum mínum um gildi þeirra. Þá eru mögu­leg dauða­stríð ann­arra villtra teg­unda sem veiddar eru hér við og á landi ekki rétt­læt­ing á því sem lítur út fyrir að vera grimmi­leg með­ferð.

Á meðan ég efast um lög­mæti þess að aft­ur­kalla leyfið til hval­veiða í sumar er ég ekki stuðn­ings­maður þess að það verði end­ur­nýjað án umfangs­mik­illar og yfir­veg­aðrar grein­ingar á því til hvers við eigum að standa í þessum veiðum. Þar verði að horfa til þess hvort þau til­vik sem birst hafa í fréttum séu venja eða und­an­tekn­ing.

Það er líka atvinnu­frelsi í land­inu sem er mik­il­vægt að virða. En allir þeir sem stunda dráp á dýrum í atvinnu­skyni þurfa að sýna fram á að það sé gert eins vel og hratt og hægt er og dauða­stríð sé ekki dregið á lang­inn.


Gísli Rafn Ólafsson

þingmaður Pírata

Mjög and­vígur [hval­veiðum]. Tel mik­il­vægt að leyfi til veiða verði aft­ur­kallað hið snarasta, jafn­vel þó það skapi skaða­bóta­skyldu fyrir rík­is­sjóð, þar sem ég tel að efna­hags­leg áhrif áfram­hald­andi hval­veiða á orð­spor Íslands verði mun meiri en sá kostn­aður sem hlýst af aft­ur­köllun leyf­is­ins.


Guðbrandur Einarsson

þingmaður Viðreisnar

Ég er and­vígur því að hval­veiðar verði stund­aðar við Íslands­strendur.
Að stunda slíkar veiðar á þann hátt sem gert hefur verið er ekki í neinu sam­ræmi við hug­myndir mínar um dýra­vel­ferð.


Guðmundur Ingi Kristinsson

þingmaður Flokks fólksins

Ég er á móti hval­veiðum og þær á að stöðva strax. Eins  með blóð­mer­a­níðið og aðrar illa með­ferðir á dýrum.


Guðrún Hafsteinsdóttir

þingmaður Sjálfstæðisflokks

Ég er hlynnt því að hval­veiðar verði stund­aðar við Ísland í sumar.


Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir

þingmaður Framsóknarflokks

HlynntHafdís Hrönn Haf­steins­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Ég er hlynnt hval­veiðum við Íslands­strendur. Skapar atvinnu og gjald­eyr­is­tekjur fyrir Ísland. Gerum þetta rétt og vel. Land­bún­aður er aldrei fal­leg iðja fyrir þeim sem ekki hafa fengið að kynn­ast land­bún­aði eða sjáv­ar­út­vegi. Vönduð og örugg mat­væla­fram­leiðsla á sjó og landi er eitt­hvað sem ég mun alltaf styðja.


Halldóra Mogensen

þingmaður Pírata

Það er ekk­ert sem rétt­lætir að halda hval­veiðum áfram. Það sam­ræm­ist hvorki lofts­lags- né dýra­vel­ferð­ar­sjón­ar­miðum. Ég er mjög and­víg.


Hanna Katrín Friðriksson

þingmaður Viðreisnar

Ég er and­víg hval­veiðum og vil sjá mat­mæla­ráð­herra stöðva fyr­ir­hug­aðar veiðar við Ísland í sumar. Til við­bótar við mik­il­væg dýra­vernd­un­ar­sjón­ar­mið er umdeil­an­legt hvort veið­arnar borgi sig efna­hags­lega. Nýjar vís­inda­legar nið­ur­stöður um mik­il­vægi hvala til vernd­unar líf­ríkis og lofts­lags eru svo síð­asti naglinn í lík­kistu þess­ara veiða að mínu mati. Ósjálf­bærar hval­veiðar ber að stöðva.


Helga Vala Helgadóttir

þingmaður Samfylkingar

Mín skoðun er sú að hval­veiðar séu ekki rétt­læt­an­legar þegar horft er til allra þátta.

AndvígHelga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Veið­arnar virð­ast ekki fara fram með til­liti til reglna gegn dýra­níði, þær eru skað­legar fyrir orð­spor lands og þjóðar og ávinn­ingur okkar af slíkum veiðum ekki sýni­legur nema síður sé.
Þegar fyrir liggur að aðferðir þær sem nú eru not­aðar fara gegn mark­miðum laga þá sé ég ekki betur en að lög, reglu­gerð og form þess leyfis sem nú er í gildi gefi ráð­herra heim­ild til að stöðva veið­arnar - hvort sem er tíma­bundið, á ákveðnum stöðum eða með öðrum leiðum. Hér á landi er það eitt fyr­ir­tæki sem hefur haldið þessu áfram með aðferðum sem virð­ast utan ramma lag­anna.
Þá sýn­ist mér á nýj­ustu fréttum að afstaða ráðu­neytis sé að hval­veiði­leyfið bygg­ist á ákvæðum sem séu ógild, þar með myndi ég halda að leið ráð­herra til að stöðva frek­ari veiðar sé greið.


Inga Sæland

formaður Flokks fólksins

„Ef ég væri mat­væla­ráð­herra myndi ég vita hvert vald­svið mitt væri og ég myndi ein­fald­lega banna hval­veiðar á stund­inni og hefði verið búin að því,“ sagði Inga í sam­tali við Heim­ild­ina. Hún telur það rangt hjá mat­væla­ráð­herra að hún hafi ekki heim­ildir til að svipta Hval hf. veiði­leyf­inu. „Hún er ráð­herra. Hún trónir efst í þessum strúktúr.“ Að mati Ingu væri hægt að stöðva veið­arnar á mörgum for­sendum, m.a. vegna almanna­hags­muna, að áfram­hald­andi veiðar muni skaða ímynd lands­ins og að veið­arnar séu ekki sjálf­bærar, „svo ég tali nú ekki um að þetta er dýra­níð.“

Hún minnir á að þar sem Hvalur hf. hafi leyfi og stundi því veið­arnar „í góðri trú“ sé mögu­legt að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins höfði skaða­bóta­mál á hendur rík­inu. „Ég veit ekki hvernig hægt er að meta það til fjár, að koma í veg fyrir að fleiri hvalir líði þessar þján­ingar. Við erum að fá gríð­ar­lega mikla pen­inga hingað til lands með erlendum ferða­mönnum sem koma margir hverjir hingað til að skoða hvali. Svo erum við að slátra þeim. Og við erum ekki bara að drepa þá – það er verið að pynta þá til dauða.“

Skýrsla Mat­væla­stofn­unar varpar skýru ljósi á hversu oft hvalir heyja lang­dregið dauða­stríð, jafn­vel tímunum saman. „Það kom mér veru­lega á óvart að þetta væri svona ofboðs­lega brú­tal,“ segir Inga um nið­ur­stöður MAST.  „Við eigum að stöðva hval­veiðar. Hér og nú og strax.“


Jakob Frímann Magnússon

þingmaður Flokks fólksins

Dýraníð er mér alfarið á móti skapi, hvaða nafni sem það nefn­ist.


Jódís Skúladóttir

þingmaður Vinstri grænna

AndvígJódís Skúla­dóttir, þing­maður Vinstri grænna.

Ég er and­víg því að hval­veiðar verði stund­aðar við Ísland í sumar. Ég er alfarið á móti hval­veiðum og hef verið það fyrir þessa skýrslu og er það eftir birt­ingu hennar og mynd­band­anna.

Ég er mjög glöð að reglu­gerð­ar­breyt­ing sem Svandís gerði, gerði það kleift að þessi skýrsla var gerð og von­andi hefur það áhrif til fram­búðar á veit­ingu leyfa.


Jóhann Páll Jóhannsson

þingmaður Samfylkingar

Get ekki stutt hval­veiðar. Sé ekki hvernig þær aðferðir sem lýst er í skýrslu Mat­væla­stofn­unar geta sam­rýmst dýra­vel­ferð­ar­lögum og meg­in­mark­miðum þeirra.  


Jón Gunnarsson

dómsmálaráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokks

Hlynntur.


Katrín Jakobsdóttir

forsætisráðherra og þingmaður Vinstri grænna

Ég styð þá ákvörðun mat­væla­ráð­herra að taka hval­veiðar til end­ur­skoð­unar þegar núver­andi leyfi renna út. Hún hefur nýtt tím­ann í emb­ætti til að vinna vand­aða und­ir­bún­ings­vinnu og ný skýrsla MAST er hluti af henni. Per­sónu­lega tel ég ekki sjálf­gefið að þessar veiðar haldi áfram og þar þarf að meta umhverf­is­á­hrif, efna­hags­leg og sam­fé­lags­leg áhrif ásamt sjón­ar­miðum um dýra­vel­ferð. Um það snýst vinna mat­væla­ráð­herra.


Kristrún Frostadóttir

formaður Samfylkingarinnar

Ekki áherslu­málKristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Þetta er ekki mál sem ég sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar legg áherslu á núna. En það þarf að skoða betur veit­ingu þess­ara leyfa.


Logi Einarsson

þingmaður Samfylkingarinnar

Ég hef verið and­vígur hval­veiðum í mörg ár og nýút­gefin eft­ir­lits­skýrsla Mat­væla­stofn­unar styrkir enn frekar þá afstöðu mína.        


 

Njáll Trausti Friðbertsson

þingmaður Sjálfstæðisflokksins

Ég er hlynntur.


Oddný G. Harðardóttir

þingmaður Samfylkingarinnar

Ég er and­víg og rökin fyrir því má m.a. finna í skýrslu MAST.


Orri Páll Jóhannsson

þingmaður Vinstri grænna

Ég er ekki hlynntur því að hval­veiðar verði stund­aðar við Ísland í sumar. Eins og ég sagði á þingi nýverið þá tel ég þessa atvinnu­grein til­heyra for­tíð­inni en ekki fram­tíð­inni.


Sigmar Guðmundsson

þingmaður Viðreisnar

Ég er mjög ein­dregið á því að þessar veiðar eigi ekki rétt á sér. Á sama tíma og það er eðli­leg­asti hlutur í heimi að nýta með sjálf­bærum hætti auð­lindir og nytja­stofna hljótum við að gera þær kröfur að veiðar kalli ekki þján­ingu og pínu yfir dýr. Skýrsla MAST leiðir í ljós að þessar hval­veiðar stand­ast ekki þær kröfur sem við eigum að gera til dýra­vel­ferðar og því er ekk­ert annað að gera en að stöðva þær strax. Þess utan eru sára­lítil efna­hags­á­hrif af þessum veiðum, auk þess sem þetta er heil­mikið lofts­lags­mál eins og bent hefur verið á. Sú stað­reynd að við séum í fullum rétti að nýta stofna við landið, þýðir ekki sjálf­krafa að við verðum að gera það. Þessa vit­leysu á stöðva strax.


Sigurjón Þórðarson

varaþingmaður Eyjólfs Ármannssonar, Flokki fólksins

Ég er almennt hlynntur hval­veiðum og vil að tekið verði til­lit til skýrsl­unnar, til þess að tryggja að veið­arnar gangi betur fyrir sig.


Stefán Vagn Stefánsson

þingmaður Framsóknarflokksins

Á báðum áttumStefán Vagn Stef­áns­son, þing­maður Fram­sóknar.

„Ég eig­in­lega veit það ekki,“ segir Stefán Vagn er blaða­maður nær í hann í síma og spyr hann út í afstöðu til hval­veiða. „Ég er almennt hlynntur hval­veiðum en það þarf að horfa til þess sem fram kemur í þess­ari skýrslu.“


Steinunn Þóra Árnadóttir

þingmaður Vinstri grænna

Ég vona að það verði engar hval­veiðar í sumar. En ég get ekki séð að stjórn­völd hafi laga­heim­ildir til að stöðva þær, það er ekki á ráð­herr­ans færi.


Svandís Svavarsdóttir

þingmaður Vinstri grænna og matvælaráðherra

Þau mynd­bönd sem birst hafa, sem sýna raun­veru­leika þess­ara veiða eru slá­andi og vekja upp spurn­ingar um fram­tíð þess­arar atvinnu­greinar. Það að dýr þjá­ist klukku­stundum saman við aflífun er ófor­svar­an­legt miðað við þær kröfur sem sam­fé­lagið hefur til vel­ferðar dýra í dag.


Teitur Björn Einarsson

þingmaður Sjálfstæðisflokksins

HlynnturTeitur Björn Ein­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Ég er hlynntur þeim.

Hval­veiðar byggja á vís­inda­rann­sóknum, lúta sér­stökum lögum sem og eft­ir­liti, eru sjálf­bærar og í sam­ræmi við alþjóða­lög. Þá er þessi starf­semi, eins og önnur lög­leg starf­semi í land­inu, varin af atvinnu­frelsis- og eign­ar­rétt­ar­á­kvæði (atvinnu­rétt­indi) stjórn­ar­skrár­innar.


Tómas A. Tómasson

þingmaður Flokks fólksins

Ef ég réði og gæti stjórnað þá væru hval­veiðar ekki stund­aðar, hvorki hér né ann­ars staðar í heim­inum.


Vilhjálmur Árnason

þingmaður Sjálfstæðisflokksins

Hlynntur.


Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir

þingmaður Viðreisnar

Ég er því and­víg – og vísa til eft­ir­far­andi ummæla minna á þingi um málið:

Svandís Svav­ars­dóttir sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra segir okkur nú að ekki standi til að ógilda veiði­leyfi hvals þrátt fyrir nið­ur­stöður Mat­væla­stofn­unar um að fjórði hver hvalur sé skot­inn oftar en einu sinni við drápin, að 40% hval­anna deyi ekki sam­stundis. Kýr með fóstur eru drepnar, sem er bannað sam­kvæmt dýra­vernd­un­ar­lögum, og mjólk­andi kýr sömu­leiðis. Samkvæmt lögum eiga drápin vera bæði skjót og sárs­auka­laus. Það er ekki til­fellið í um 40% til­vika og engu að síður eru hin póli­tísku skila­boð þau að við höldum bara áfram. Stað­reyndin er sú að það má svipta leyfi bæði tíma­bundið og var­an­lega og laga­lega er þetta ekki sér­stak­lega flókið. Ef þessi skýra nið­ur­staða núna dugar ráð­herr­anum ekki til, hvenær er þá eig­in­lega ástæða til? Ef ráð­herra stoppar ekki tíma­bundið veiðar eftir þennan áfell­is­dóm finnst mér blasa við að ráð­herra verði bara að vera sam­kvæm sjálfri sér og dúndra út næsta leyfi aftur.

AndvígÞorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Við­reisnar.

Helsta vöru­merki þess­arar rík­is­stjórnar er að hún tekur engar ákvarð­anir. Ráð­herrar birt­ast sem álits­gjafar í fjöl­miðlum, lýsa yfir áhyggjum og svo ger­ist ekk­ert. Þetta kalla þau síðan gjarnan stöð­ug­leika. Hæst­virtur ráð­herra talar nú um að það þurfi þrek til að ræða þessi mál en rík­is­stjórnin þarf ekki þrek til að tala meira, hún þarf þrek til að taka einu sinni ákvörðun. Undir eru almanna­hags­mun­irnir, dýra­vel­ferð og hags­munir umhverfis. 65% Íslend­inga telja að hval­veiðar hafi nei­kvæð áhrif á orð­spor lands­ins. Dýrin þjást lengi eftir sprengiskutl­ana og síð­ast en ekki síst er þetta umhverf­is­mál; hvalir búa yfir þeim magn­aða hæfi­leika að binda kolefni sem nemur um 1.500 trjám á líf­tíma sínum.

Ég vil aftur vitna í orð hæst­virts sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra þegar hún segir að við stöndum frammi fyrir því að end­ur­skoða það hvort þessi atvinnu­grein til­heyri ekki for­tíð frekar en fram­tíð. Stóra spurn­ingin er auð­vitað miklu frekar þessi: Til­heyrir þessi rík­is­stjórn for­tíð frekar en fram­tíð?


Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

formaður Viðreisnar

Andvíg.


Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

þingmaður Pírata

Ég er and­víg því og er and­víg hval­veiðum yfir höfuð.         


Þórunn Sveinbjarnardóttir

þingmaður Samfylkingarinnar

Ég er and­víg hval­veiðum við Ísland.


Þingmenn sem svöruðu ekki fyrirspurn Heimildarinnar

  • Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, háskóla-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
  • Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barna­mála­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. 
  • Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
  • Berglind Ósk Guð­munds­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.
  • Birgir Ármanns­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
  • Birgir Þór­ar­ins­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
  • Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
  • Bjarni Jónsson, þing­maður Vinstri grænna.
  • Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks.
  • Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
  • Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra og þing­maður Vinstri grænna.
  • Ingi­björg Ísaksen, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.
  • Halla Signý Krist­jáns­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks.
  • Jóhann Friðrik Frið­riks­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.
  • Lilja Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.
  • Lilja Rannveig Sig­ur­geirs­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.
  • Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.
  • Óli Björn Kárason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
  • Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins.
  • Sigurður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.
  • Willum Þór Þórsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks og heil­brigð­is­ráð­herra.
  • Þórarinn Ingi Pét­urs­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.
  • Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KHS
    Kristín Hildur Sætran skrifaði
    Algjörlega frábært að spyrja þingmenn beint og birta svör hvers og eins, öll svörin og hverjir svara ekki, mætti svo sannarlega gera varðandi fleiri málefni.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár