Íbúðaverð hefur margfaldast, vaxtakostnaður stóraukist og snjóhengja fram undan

Gríð­ar­leg aukn­ing ferða­manna og fjölgun þeirra sem starfa við ferða­þjón­ustu hefur aukið eft­ir­spurn eftir íbúðum á Íslandi veru­lega. Íbúa­fjöld­inn nálg­ast 400 þús­und og íbúum fjölgar um þús­und á mán­uði. Seðla­banka­stjóra var brugðið þegar þessar tölur voru settar fyrir framan hann og hvatti hann banka til að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð.

Íbúðaverð hefur margfaldast, vaxtakostnaður stóraukist og snjóhengja fram undan
Íbúum fjölgar um þús­und á mán­uði Ferða­þjón­ustan er mjög mann­afls­frek atvinnu­grein. Gríð­ar­leg aukn­ing ferða­manna og fjölgun þeirra sem starfa við ferða­þjón­ustu hefur aukið eft­ir­spurn eftir íbúðum á Íslandi veru­lega. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Hús­næð­is­verð hefur hækkað meira á Íslandi en í nokkru öðru ríki innan Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) síð­asta rúma ára­tug­inn. Ef horft er á höf­uð­borg­ar­svæðið, þar sem næstum tveir af hverjum þremur íbúum lands­ins búa, hefur það nálægt því þre­fald­ast í krónum talið. Að raun­virði, þegar búið er að leið­rétta fyrir verð­bólgu, hefur það rúm­lega tvö­fald­ast, hækkað um 104 pró­sent á tíu árum. Til sam­an­burðar hækk­aði hús­næð­is­verð í Noregi að raun­virði um 23 pró­sent á sama tíma. 

Nokkrar sam­hang­andi breytur hafa skapað það ástand. Í fyrsta lagi hefur verið miklu meiri eft­ir­spurn eftir hús­næði en fram­boð. Ástæða þess er meðal ann­ars sú að hægt var allt of mikið á bygg­ingu nýs hús­næðis eftir banka­hrunið. Hún er líka sú að stór­kost­legur upp­gangur ferða­þjón­ustu – þar sem ferða­mönnum fjölg­aði úr 672 þús­und árið 2012 í 2,3 millj­ónir árið 2018 – hefur sett mik­inn þrýst­ing á hús­næð­is­mark­að­inn. Bæði hefur þurft að …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Sammála nafna mínum, góð grein. Hin hliðin á þessum peningi er jú sú staðreind að okkar líðræði og þróun byggir á að viðhalda stöðu innfluttra og réttinda lausra, það vita þó mannvitsbrekkurnar sem við fáum að kjósa, til þess að stjórna okkur.
    0
  • JÞM
    Jóhann Þór Magnússon skrifaði
    Mjög góð og tímabær samantekt hjá Þórði Snæ. Það sem vantar til að umræðan um húsnæðisvandan bíti betur er að varpa ljósi á tölfræði húsnæðis undirheimanna. Tölfræði yfir þá sem búa í svartri leigu í óleyfis húsnæði, kolakjöllurum. Tölfræði yfir þá sem búa eins og síld í tunnu í íbúðum sem er búið að stúka niður í smáherbergi í óleyfi, húsnæði sem engin íslendingur mundi láta bjóða sér. Húsnæði sem ákveðnir flokkar berjast með kjafti og klóm gegn því að slökkviliðið fái að skoða. Tölfræði yfir unga og miðaldra Íslendinga sem væru fluttir úr foreldrahúsum í eðlilegu ástandi á fasteignamarkaði- hluti snjóhengjunnar. En svo er viðbúið að a.m.k sumir stjórnmálaflokkar gefi skít í hvernig fátækt erlent verkafólk hefur það í þessum hreysum - þau hafa jú fæst atkvæðisrétt í Alþingiskosningum. Mörgum virðist þægilegast að þetta sé bara ósýnilega fólkið sem þrífur hótelherbergin og sjái um aðra vinnu sem Íslendingar hafa minni en engan áhuga á.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár