Armslengd frá stjórnarkreppu
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Arms­lengd frá stjórn­ar­kreppu

Afsögn Bjarna Bene­dikts­sonar hefur leitt af sér glund­roða innan rík­is­stjórnar Íslands. Nú eru for­menn­irnir í kappi við tím­ann við að finna ein­hverja lausn. Sú lausn þarf að taka mið af þeim raun­veru­leika að Bjarni vill hætta í stjórn­málum. Hann er búinn með sín níu líf á því sviði, en er þó opinn fyrir að stiga burt á annan hátt til að lág­marka skað­ann fyrir rík­is­stjórn­ar­sam­starfið og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.
Öll hneykslismálin sem Bjarni stóð af sér
Greining

Öll hneyksl­is­málin sem Bjarni stóð af sér

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, tengd­ist ýmsum hneyksl­is­málum sem komu upp á Íslandi í kjöl­far efna­hags­hruns­ins árið 2008. Hann stóð þau öll af sér og var fyrir vikið oft kenndur við efnið teflon vegna þess að hann náði alltaf að hrista af sér erfið mál á meðan aðrir stjórn­mála­menn gátu það ekki.
Fáir góðir kostir í stöðunni fyrir ríkisstjórnina eftir afsögn Bjarna
GreiningAfsögn Bjarna Ben

Fáir góðir kostir í stöð­unni fyrir rík­is­stjórn­ina eftir afsögn Bjarna

Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér ráð­herra­emb­ætti í morgun. Hann sagði við það til­efni að það væri „ekki alveg gott að segja á þess­ari stundu“ hvaða áhrif afsögn hans myndi hafa á rík­is­stjórn­ar­sam­starfið. Þrír sýni­legir kostir eru í stöð­unni. Enginn þeirra er sér­stak­lega eft­ir­sókn­ar­verður fyrir stjórn­ar­flokk­ana.
Ríkisstjórnin vill skikka banka til að afskrifa hluta af skuldum fólks í fjárhagsvanda
Greining

Rík­is­stjórnin vill skikka banka til að afskrifa hluta af skuldum fólks í fjár­hags­vanda

Til stendur að upp­færa lög um greiðslu­að­lögun, sem sett voru eftir banka­hrunið og eru ætluð til að aðstoða fólk í fjár­hags­vand­ræðum við að semja niður kröfur sínar án þess að missa heim­ilið sitt. Með þessu liggur fyrir að rík­is­stjórnin býst við að ein­hver heim­ili verði yfir­veð­sett, sem þýðir að íbúða­skuldir verði meiri en virði íbúða.
Sjávarútvegurinn hefur aldrei hagnast jafnmikið á einu ári og í fyrra
Greining

Sjáv­ar­út­veg­ur­inn hefur aldrei hagn­ast jafn­mikið á einu ári og í fyrra

Árið 2022 var metár í íslenskri útgerð. Tekj­urnar og hagn­að­ur­inn hefur aldrei verið meiri og arð­greiðsl­urnar eftir því. Kakan skipt­ist þannig að 71 pró­sent situr eftir hjá sjáv­ar­út­veg­inum en 29 pró­sent fer til sam­neysl­unnar í gegnum opin­ber gjöld. Kvótinn, sem sam­kvæmt lögum er sam­eign þjóð­ar­innar, er bók­færður sem helm­ingur eigna geirans. Hann er þó stór­lega van­met­inn í bókum útgerða. Líklega er raun­veru­legt eigið fé sjáv­ar­út­vegs, eignir að frá­dregnum skuldum, nú um 1.100 millj­arðar króna.
Reykjavíkurborg getur átt von á 33 milljarða arði úr Orkuveitunni á næstu árum
Greining

Reykja­vík­ur­borg getur átt von á 33 millj­arða arði úr Orku­veit­unni á næstu árum

Orku­veita Reykja­víkur er að selja hlut í tveimur dótt­ur­fé­lögum, Ljós­leið­ar­anum og Carbfix. Hún áætlar að það skili um 61 millj­arði króna i inn­borgað hlutafé á næstu fjórum árum. Spár gera ráð fyrir því að tekjur í starf­semi síð­ar­nefnda félags­ins muni vaxa mikið Gangi þær spár eftir ætlar Orku­veitan að borga eig­endum sínum: Reykja­vík, Akranesi og Borg­ar­byggð, út sam­tals 35 millj­arða króna í arð á tíma­bil­inu.
Heimilin borguðu 22,5 milljörðum krónum meira í vexti á fyrstu sex mánuðum ársins
Greining

Heimilin borg­uðu 22,5 millj­örðum krónum meira í vexti á fyrstu sex mán­uðum árs­ins

Miklar vaxta­hækk­anir á síð­ast­liðnu ári hafa gert það að verkum að vaxta­greiðslur íslenskra heim­ila hafa auk­ist um 62 pró­sent. Þau borg­uðu sam­tals 59 millj­arða króna í vexti á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2023. Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna hefur nú dreg­ist saman fjóra árs­fjórð­unga í röð. Við fáum ein­fald­lega mun minna fyrir pen­ing­anna okkar.
248 íslensk fyrirtæki hafa þegar yfirgefið íslensku krónuna
Greining

248 íslensk fyr­ir­tæki hafa þegar yfir­gefið íslensku krón­una

Stór fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi, hug­bún­að­ar­gerð og ferða­þjón­ustu gera ekki upp í íslenskum krónum heldur öðrum gjald­miðlum. Við það geta þau fengið fjár­mögnun hjá erlendum bönkum á mun skap­legri kjörum en bjóð­ast hér inn­an­lands og verða að mestu ónæm fyrir íslenskum stýri­vaxta­hækk­unum. Þær hækk­anir bíta hins vegar fast á minni fyr­ir­tækjum, heim­ilum og hinu opin­bera.
Ríkið þarf að borga fimm til tíu milljarða inn í ÍL-sjóð árlega frá og með næsta ári
Greining

Ríkið þarf að borga fimm til tíu millj­arða inn í ÍL-sjóð árlega frá og með næsta ári

Rík­is­sjóður fjár­magn­aði efna­hags­að­gerðir sínar í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum að miklu leyti með því að taka 190 millj­arða króna að láni úr ÍL-sjóði, sem stýrt er af fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og er með nei­kvætt eigið fé upp á 231 millj­arð króna, á afar hag­stæðum kjörum. Til stóð að borga ekki annað en vexti á næstu árum. Það hefur nú breyst eftir að lán­tak­endur hættu skyndi­lega að greiða upp gömlu Íbúða­lána­sjóðs­lánin sín.

Mest lesið undanfarið ár