Mynd: Samfylkingin

Samfylkingin með yfir 30 prósent fylgi og nálægt því að vera jafn stór og stjórnin

Það er innan vik­marka að Vinstri græn falli af þingi, en flokk­ur­inn mælist sá minnsti á Alþingi. Aldrei áður í sögu Gallup mæl­inga hefur Sam­fylk­ingin mælst næstum tíu pró­sentu­stigum stærri en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, en rúmur ára­tugur er síðan að sá flokkur rauf 30 pró­senta múr­inn.

Í fyrsta sinn í fjórtán ár mælist fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar yfir 30 pró­sent í könnun Gallup, sem RÚV birti í gær. Raunar hefur flokkur ekki mælst með svo mikið fylgi síðan að Píratar rufu 30 pró­senta múr­inn um nokk­urra mán­aða skeið fyrri hluta árs 2016, fyrir sjö árum síðan. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem sögu­lega hefur verið stærsta aflið í íslenskum stjórn­málum, hefur ekki mælst með yfir 30 pró­sent fylgi í könn­unum Gallup í meira en ára­tug, eða síðan í jan­úar 2013. 

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar, sem er mælist nú 30,1 pró­sent, er nálægt því að vera jafn mikið og fylgi allra stjórn­ar­flokk­anna þriggja: Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Vinstri grænna, sam­an­lagt. Alls segj­ast 34,2 pró­sent aðspurðra í könn­un­inni að þeir myndu kjósa ein­hvern stjórn­ar­flokk­anna. 

Sam­fylk­ingin hefur þre­faldað fylgi sitt frá síð­ustu kosn­ingum, þegar hún fékk 9,9 pró­sent atkvæða og rúm­lega tvö­faldað það frá því að Kristrún Frosta­dóttir lýsti því yfir að hún sækt­ist eftir for­mennsku í flokknum fyrir rúmu ári. Jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn hefur nú mælst stærsti flokkur lands­ins allt þetta ár, í níu könn­unum í röð, sem hefur aldrei gerst áður. Forskot Sam­fylk­ing­ar­innar á næst stærsta flokk­inn, Sjálf­stæð­is­flokk­inn, hefur heldur aldrei verið meira, en það mælist nú næstum tíu pró­sentu­stig. 

Ef nýjasta könnun Gallup yrði nið­ur­staða kosn­inga gæti Sam­fylk­ingin vænst að fá allt að 22 þing­mann. Það myndi þýða að flokk­ur­inn gæti, ásamt Pírötum senni­lega myndað þriggja flokka rík­is­stjórn með annað hvort Viðreisn eða Fram­sókn­ar­flokknum væri vilji til þess.

Stjórnin kolfallin eins og staðan er í dag

Sept­em­ber var stór mán­uður fyrir rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur. Fjár­laga­frum­varp hennar, sem sýnir leið hennar fram á við, var lagt fram. For­ystu­menn stjórn­ar­innar reyndu, af veikum mætti, að leiða erjur innan stjórnar og ekki síður innan stjórn­ar­flokka, í jörð. Þétta ráð­irnar og koma þeim skila­boðum á fram­færi að stjórnin ætl­aði sér að klára kjör­tíma­bilið, sem er nú hálfnað. 

Nýjasta könnun Gallup bendir ekki til mik­illa und­ir­tekta hjá lands­mönnum. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fær sína verstu nið­ur­stöðu í könnun fyr­ir­tæk­is­ins síðan í fyrra­vor. Um fimmt­ungur, 20,4 pró­sent, segj­ast ætla að kjósa flokk­inn. Það yrði versta nið­ur­staða hans í sög­unni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist minni en klofn­ings­flokkur fyrr­ver­andi for­manns hans með 8,1 pró­sent fylgi, sem er 9,2 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu kosn­ingum. Rúmlega helm­ingur af fylg­inu er farið. 

Verst er staðan þó hjá Vinstri grænum, flokki for­sæt­is­ráð­herr­ans. Hann mælist minnsti flokk­ur­inn á þingi, hefur tapað rúm­lega helm­ingi fylgis síns, jafnar sína verstu mæl­ingu í könnun hjá Gallup frá upp­hafi og er innan vik­marka frá því að falla af þingi með 5,7 pró­sent mælt fylgi.

Stjórnin, sem hefur nú 38 þing­menn, gæti átt von á því að ef kosn­ingar færu eins og kann­anir benda til þá fengi hún sam­an­lagt 22 þing­menn ef Vinstri græn næðu inn yfir höfuð. Það eru jafn­margir þing­menn og Sam­fylk­ingin gæti vænst að fá. Sam­an­lagt fylgi stjórn­ar­flokk­anna hefur farið úr því að vera 54,3 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021 í að vera 34,2 pró­sent. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mælist á svip­uðum stað, um 35 pró­sent.

Þetta bendir allt til þess að rík­is­stjórnin væri kol­fallin ef kosið yrði í dag.

Miðflokkurinn stærri en Framsókn

Píratar eru sá flokkur á miðj­unni sem líður mest fyrir upp­gang Sam­fylk­ing­ar­innar. Hann mæld­ist reglu­lega með 14 til 16 pró­sent fylgi í fyrra en hefur verið að mæl­ast með á milli níu og tíu pró­sent síð­ustu mán­uði. Fylgið nú mælist 9,6 pró­sent. Það er þó enn yfir kjör­fylgi Pírata.

Viðreisn finnur líka fyrir þessum svipt­ingum og mælist með 7,2 pró­sent, sem er undir því sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum. Þrátt fyrir að kann­anir síð­ustu tæpu tvö ár sýni auk­inn stuðn­ing við eitt helsta stefnu­mál Við­reisnar, inn­göngu í Evr­ópu­sam­bandið, þá skilar það sér ekki í fylgi við flokk­inn. 

Mið­flokk­ur­inn er sá stjórn­ar­and­stöðu­flokkur utan Sam­fylk­ing­ar­innar sem myndi bæta mestu við sig milli kosn­inga ef kosið yrði í dag. Flokkur Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar mælist nú með 8,6 pró­sent fylgi en fékk 5,4 pró­sent í kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. Ljóst má vera að þing­menn Mið­flokks­ins eru fyrst og síð­ast að reyna að sækja aukið fylgi úr röðum Sjálf­stæð­is­manna þessi miss­erin, og reyna að höfða til þjóð­ern­isí­halds­fylgis þar inn­an­borðs með því að bera meðal ann­ars á borð harð­ari stefnu gegn inn­flytj­endum. Flokkur fólks­ins, sem fiskar stundum á svip­uðum miðum en skil­greinir fyrst og síð­ast sem málsvara fátæks fólks í sam­fé­lag­inu, er ekki að ná neinu flugi og mælist með 5,7 pró­sent fylgi. 

Það er meira en Sós­í­alista­flokkur Íslands sem fengi ein­ungis 3,9 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag, miðað við nið­ur­stöðu Gallup. Það myndi ekki duga inn á þing og þau atkvæði því falla niður dauð.

Könnunin var gerð dag­ana 1. sept­em­ber til 1. októ­ber. Heild­ar­úr­tak var 11.005 manns, en þátt­töku­hlut­fall 48,5 pró­sent. Vikmörk á fylgi flokka eru 0,6–1,4 pró­sent.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hvert var erindi VG liða í ríkisstjorn ?
    Eina sem þeir hafa gert er að hækka eigin laun umfram allt eðlilegt . og svo ákváðu þau að hlægja að kjósendum ! Þetta muna allir !
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár