Sjávarútvegurinn hefur aldrei hagnast jafnmikið á einu ári og í fyrra

Árið 2022 var metár í íslenskri útgerð. Tekj­urnar og hagn­að­ur­inn hefur aldrei verið meiri og arð­greiðsl­urnar eftir því. Kakan skipt­ist þannig að 71 pró­sent situr eftir hjá sjáv­ar­út­veg­inum en 29 pró­sent fer til sam­neysl­unnar í gegnum opin­ber gjöld. Kvótinn, sem sam­kvæmt lögum er sam­eign þjóð­ar­innar, er bók­færður sem helm­ingur eigna geirans. Hann er þó stór­lega van­met­inn í bókum útgerða. Líklega er raun­veru­legt eigið fé sjáv­ar­út­vegs, eignir að frá­dregnum skuldum, nú um 1.100 millj­arðar króna.

Sjávarútvegurinn hefur aldrei hagnast jafnmikið á einu ári og í fyrra
Risarnir Á síð­ustu árum hefur orðið aukin sam­þjöppun í íslenskum sjáv­ar­út­vegi. Til hafa orðið nokkrir risar. Útgerðin telur það vera jákvæða þróun. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

Árið 2022 var besta rekstr­arár íslenskra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja frá upp­hafi. Ástæðan var að hluta til sú að loðnu­ver­tíðin gaf frá­bær­lega af sér. Það gerði hún reyndar árið 2021 líka, eftir að Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, ákvað að gera það að einu af sínum síð­ustu verkum á ráð­herra­stóli að úthluta stærsta loðnu­kvóta sem úthlutað hafði verið í 20 ár. Þorri þess kvóta fór til stærstu sjáv­ar­út­vegs­blokka lands­ins. Í vik­unni var til­kynnt að lík­lega yrði engin loðna veidd á kom­andi ver­tíð. Það væri ekki sjálf­bært.

Alls voru tekjur sjáv­ar­út­vegs­ins 382 millj­arðar króna í fyrra, sem var 24 pró­sent hækkun frá árinu á undan. Frá árinu 2018, á fjórum árum, hafa tekjur geirans auk­ist um 55 pró­sent, um 135 millj­arða króna. Fram­legðin jókst enn eitt árið og nálg­ast nú 30 pró­sent. Vert er að taka fram að hér er um tekjur vegna veiða og vinnslu að ræða, ekki vegna fisk­eldis. Á þeirri starf­semi …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár