Ríkisstjórnin vill skikka banka til að afskrifa hluta af skuldum fólks í fjárhagsvanda

Til stendur að upp­færa lög um greiðslu­að­lögun, sem sett voru eftir banka­hrunið og eru ætluð til að aðstoða fólk í fjár­hags­vand­ræðum við að semja niður kröfur sínar án þess að missa heim­ilið sitt. Með þessu liggur fyrir að rík­is­stjórnin býst við að ein­hver heim­ili verði yfir­veð­sett, sem þýðir að íbúða­skuldir verði meiri en virði íbúða.

Ríkisstjórnin vill skikka banka til að afskrifa hluta af skuldum fólks í fjárhagsvanda
Ráðherra Frumvarp Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar hefur verið birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda og hægt er að senda inn umsagnir þar til 13. októ­ber. Búast má við að upp­færslan á lög­unum sem þar er boðuð verði umdeild. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra hefur birt frum­varp í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem er ætlað að upp­færa lög um greiðslu­að­lögun. Lögin voru upp­runa­lega sett árið 2010 til að hjálpa heim­ilum sem glímdu við veru­lega fjár­hags­erf­ið­leika og alls hafa um 8.600 manns sótt um úrræðið frá því að þau tóku gildi. 

Í ein­földu máli snýst greiðslu­að­lögun um það að sá sem telur sig ekki geta borgað af skuldum sínum við banka, sem í flestum til­fellum eru vegna íbúð­ar­kaupa, getur sóst eftir því að emb­ætti umboðs­manns skuld­ara hafi milli­göngu um að þeir semji um eft­ir­gjöf hluta skulda sinna. 

Eftir banka­hrunið voru margir í þeirri stöðu að virði íbúð­ar­hús­næðis þeirra var minna en skuld­irnar sem stofnað hafði verið til til að kaupa það. Það orsak­að­ist af tvennu: því að mjög há verð­bólga – sem fór hæst í 18,6 pró­sent í byrjun árs 2009 – …

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár