Sverrir Þór finnst ekki í fangelsi í Brasilíu
FréttirHvarf Friðriks Kristjánssonar

Sverrir Þór finnst ekki í fang­elsi í Brasilíu

Sverrir Þór Gunn­ars­son, Sveddi tönn, sem í nóv­em­ber árið 2012 var dæmdur í 22 ára fang­elsi í Brasilíu fyrir smygl á tæpum 50 þús­und e-töflum og er tal­inn einn af höf­uð­paur­unum í alþjóð­legum smygl­hring, virð­ist vera horf­inn í Suður-Ameríku. Einn af þeim sem sagður er sam­starfs­maður Sverris og tal­inn hafa mik­il­vægar upp­lýs­ingar um hvarf Friðriks Krist­jáns­sonar, Guð­mundur Spar­takus Ómarsson, fór af landi brott á dög­unum.
Alvarlegar athugasemdir gerðar við starfsemi Sólheima
FréttirÁstandið á Sólheimum

Alvar­legar athuga­semdir gerðar við starf­semi Sólheima

Rétt­inda­málum fatl­aðra er veru­lega ábóta­vant á Sól­heimum, ef athuga­semdir rétt­inda­gæslu­manns fatl­aðs fólks á Suð­ur­landi eiga við rök að styðj­ast. Rétt­inda­gæslu­mað­ur­inn til­kynnti vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu um málin í fyrra­haust. Lítið var gert til að bregð­ast við gagn­rýn­inni, enda vís­aði fram­kvæmda­stjóri Sólheima henni nær alfarið á bug og taldi með því mál­inu lokið.
Segir fugla Ísfugls hafa verið aflífaða með útblæstri úr bíl
Fréttir

Segir fugla Ísfugls hafa verið aflíf­aða með útblæstri úr bíl

Maður sem starf­aði á Reykja­bú­inu í Mos­fellsbæ skömmu eftir alda­mót lýsir atviki þar sem hænur sem átti að aflífa voru drepnar með því að tengja útblástur úr bíl inn í hús til þeirra. Langan tíma hafi tekið fyrir fugl­ana að drep­ast en vélin hafi verið látin ganga í þrjá daga. Fram­kvæmda­stjóri Ísfugls kann­ast ekki við umrætt til­vik. Hann segir að á sínum tíma hafi tíðkast að aflífa fugla, sem smit­aðir voru af salmón­ellu, með útblæstri úr bílum.
Birgitta: „VG ákvað að taka sleggju og lemja sundur brúna“
FréttirAlþingiskosningar 2016

Birgitta: „VG ákvað að taka sleggju og lemja sundur brúna“

Talskona Pírata, Birgitta Jóns­dóttir, hrósar for­mönnum hinna flokk­anna og er þakk­lát fyrir tæki­færið til að reyna að mynda rík­is­stjórn. Hún er ósátt við yfir­lýs­ingar Vinstri græn­anna eftir við­ræðu­slitin og segir Katrínu Jak­obs­dóttur í raun hafa slitið við­ræð­unum. Hún segir enga stjórn­ar­kreppu vera, og að það sé lýð­ræð­inu á engan hátt skað­legt þó það sé þing­ræði.
Helena reynir að bjarga húsinu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi
FréttirBarnavernd í Noregi

Helena reynir að bjarga hús­inu: Eyjólfur fær að alast upp á Íslandi

Á meðan Helena Brynj­ólfs­dóttir reynir að bjarga hús­inu sínu í Noregi þá eru norsk og íslensk yfir­völd að klára sam­komu­lag land­anna á milli varð­andi fram­tíð Eyjólfs Kristins. Elva Christina hefur fyr­ir­gert rétti sínum í Noregi með því skil­yrði að hann fái að alast upp á Íslandi. Norsk barna­vernd­ar­yf­ir­völd vilja að honum sé komið í fóstur utan fjöl­skyld­unnar.
Lífslíkurnar bættar með breyttu mataræði
Fréttir

Lífslík­urnar bættar með breyttu matar­æði

Saga brjóstakrabba­meins í ætt Þórunnar Steins­dóttur ýtti henni út í að kynna sér ofan í kjöl­inn hvaða mat­ar­teg­undir geta hjálpað til við að draga úr líkum á að þróa það með sér. Með nýút­kominni bók hennar og Unnar Guðrúnar Páls­dóttur vilja þær kenna öðrum að lág­marka lík­urnar á því að verða alvar­lega veikir á lífs­leið­inni með bættu matar­æði.

Mest lesið undanfarið ár