GAMMA sankar að sér einbýlishúsum  og raðhúsum fyrir allt að 100 milljónir
Fréttir

GAMMA sankar að sér ein­býl­is­húsum og rað­húsum fyrir allt að 100 millj­ónir

Sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið GAMMA kaupir upp rúm­lega 40 fast­eignir, meðal ann­ars rað­hús og ein­býl­is­hús í dýrum hverfum í Reykja­vík. Keyptu 103 millj­óna króna ein­býl­is­hús við Sel­vogs­grunn og 96 millj­óna króna rað­hús við Laug­ar­ás­veg. Eign­irnar standa utan við Almenna leigu­fé­lagið og eru í eigu sjóðs með ógagn­sætt eign­ar­hald.
Pressan borgaði ekki af jeppa Björns Inga og stefnir í þrot út af ógreiddum iðgjöldum starfsmanns
FréttirFjölmiðlamál

Pressan borg­aði ekki af jeppa Björns Inga og stefnir í þrot út af ógreiddum iðgjöldum starfs­manns

Líf­eyr­is­sjóður Vest­manna­eyja lagði fram gjald­þrota­beiðni út af skuld Pressunnar ehf. við sjóð­inn. Borgaði ekki iðgjöld starfs­manns í marga mán­uði. Pressan ehf. skuldar bíla­leigu 2,7 millj­ónir út af jeppa sem Björn Ingi Hrafns­son fékk frá fyr­ir­tæk­inu en heild­ar­greiðslur út af jepp­anum nema 8,3 millj­ónum.
Pressan greiddi 350 þúsund á  mánuði fyrir jeppa undir Björn Inga
FréttirFjölmiðlamál

Pressan greiddi 350 þús­und á mán­uði fyrir jeppa undir Björn Inga

Þó Pressan ehf. hafi verið ógjald­fær frá árinu 2014 að mati nýrrar stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins hefur fyr­ir­tækið greitt rúm­lega 4 millj­ónir króna á ári í leigu fyrir Land­rover Discovery jeppa Björns Inga Hrafns­sonar. Björn Ingi seg­ist hafa yfir­tekið samn­ing­inn um bíl­inn. Deilur um eign­ar­hald á fjöl­miðlum Pressunnar hafa staðið yfir og Björn Ingi verið kærður fyrir fjár­drátt.
Áralangar deilur innan fjölskyldu Ásmundar Einars hafa ratað til lögreglunnar
FréttirNý ríkisstjórn

Ára­langar deilur innan fjöl­skyldu Ásmundar Einars hafa ratað til lög­regl­unnar

Margra ára deilur hafa geisað í fjöl­skyldu félags­mála­ráð­herra, Ásmundar Einars Daða­sonar, um jörð­ina Lamb­eyrar í Dölum. Ásmundur Einar bjó á jörð­inni áður en hann sett­ist á þing. Faðir hans, Daði Ein­ars­son, rak bú á jörð­inni sem varð gjald­þrota og missti hann í kjöl­farið eign­ar­hlut sinn í jörð­inni yfir til systk­ina sinna sjö. Bróðir Daða vænir feðgana um inn­brot í íbúð­ar­hús á Lamb­eyrum sem deilt er um.

Mest lesið undanfarið ár