Orkuveita Reykjavíkur greiðir 2,6 milljarða skuld vegna gamalla áhættufjárfestinga
Fréttir

Orku­veita Reykja­víkur greiðir 2,6 millj­arða skuld vegna gam­alla áhættu­fjár­fest­inga

Orku­veita Reykja­víkur gerði gjald­miðlask­skipta­samn­inga við Glitni banka árið 2008 sem deilt hefur verið um fyrir dómi. Þessir samn­ingar voru gerðir til þess að verja fyr­ir­tækið fyrir geng­is­breyt­ingum krón­unnar. Nú loks, 15 árum eftir að samn­ing­arnir voru gerðir, koma eft­ir­stöðvar samn­ing­anna til greiðslu eftir að Orku­veita Reykja­víkur tap­aði dóms­máli út af þeim. 2,6 millj­arðar króna fóru úr bókum Orku­veitu Reykja­víkur út af upp­greiðslu samn­ing­anna sam­kvæmt árs­hluta­upp­gjöri félags­ins nú í maí.
Dómaraefni þurfa að uppfylla hæfnisskilyrði: Frestuðu niðurstöðunni
Fréttir

Dóm­ara­efni þurfa að upp­fylla hæfn­is­skil­yrði: Frestuðu nið­ur­stöð­unni

Þing­manna­nefnd Evr­ópu­ráðs­ins frestaði því að taka afstöðu til þriggja umsækj­enda frá Íslandi um stöðu dóm­ara við Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Umsækj­endur eru teknir í stíf við­töl þar sem þeir spurðir spjör­unum úr um dóma og dómafor­dæmi við dóm­stóll­inn. Allir umsækj­end­urnir verða að upp­fylla hæf­is­skil­yrðin til að hægt sé að klára umsókn­ar­ferlið í starfið.
Tveir stjórnendur selja fyrir samtals 2,3 milljarða í Arctic Fish til Síldarvinnslunnar
FréttirLaxeldi

Tveir stjórn­endur selja fyrir sam­tals 2,3 millj­arða í Arctic Fish til Síld­ar­vinnsl­unnar

Eign­ar­halds­fé­lag Sigurðar Pét­urs­sonar, eins stofn­anda og fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Arctic Fish, hefur selt hluta­bréf í félag­inu fyrir tæp­lega 1.900 millj­ónir króna. Núver­andi fjár­mála­stjóri lax­eld­is­fyr­ir­tæk­is­ins, Neil Shiran Þórisson, selur nú í félag­inu fyrir rúm­lega 440 millj­ónir króna. Hann seg­ist ekki vera að hætta hjá félag­inu en að óvissa um fram­tíð­ar­eign­ar­hald félags­ins hafi spilað inn í ákvörðun hans.
Dómstóll: Plastbarkaaðgerðir ekki í samræmi við vísindi og rannsóknir
FréttirPlastbarkamálið

Dómstóll: Plast­barka­að­gerðir ekki í sam­ræmi við vís­indi og rann­sóknir

Dómstóll í Solna í Svíþjóð hefur dæmt ítalska skurð­lækn­inn Paulo Macchiarini í skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir eina af plast­barka­að­gerð­unum. Hann fær hins vegar ekki dóm fyrir tvær af aðgerð­unum, meðal ann­ars á Andemariam Beyene, sem búsettur var á Íslandi. Ísland teng­ist plast­barka­mál­inu vegna aðkomu Tómasar Guð­bjarts­sonar og Land­spít­al­ans að því.
„Þetta er áframhaldandi ofbeldi“
FréttirVarnarlaus börn á vistheimili

„Þetta er áfram­hald­andi ofbeldi“

Kona sem vistuð var á með­ferð­ar­heim­il­inu Varp­holti og ber að hafa verið beitt ofbeldi af Ingjaldi Arn­þórs­syni, for­stöðu­manni þar, segir vinnu­brögð nefndar sem rann­saka á heim­ilið fyrir neðan allar hellur. Aldrei hafi verið haft sam­band við hana til að upp­lýsa um gang mála eða kanna líðan hennar. „Mér finnst að það hefði átt að útvega okkur sál­fræði­þjón­ustu,“ segir Anna María Ing­veldur Larsen. Hún hefur misst alla trú á rann­sókn­inni.
Skýrslan um Laugaland tilbúin en verður ekki gerð opinber strax
FréttirLaugaland/Varpholt

Skýrslan um Lauga­land til­búin en verður ekki gerð opin­ber strax

Rann­sókn­ar­skýrslu um hvort ofbeldi hafi verið beitt á með­ferð­ar­heim­il­inu Lauga­landi, áður Varp­holti, var skilað um síð­ustu mán­aða­mót. Engu að síður hefur hún ekki enn verið kynnt fyrir ráð­herrum. Fimmtán mán­uðir eru síðan rann­sóknin hófst. Vinna við rann­sókn á Breiða­vík­ur­heim­il­inu, sem var rekið lengur og fleiri börn dvöldu á, tók tíu mán­uði. Konurnar sem vistaðar voru á með­ferð­ar­heim­il­inu hafa engar upp­lýs­ingar fengið um rann­sókn­ina.
Moshensky kannast ekki við fjármálamiðstöðina í smáíbúðahverfinu
FréttirÓlígarkinn okkar

Mos­hen­sky kann­ast ekki við fjár­mála­mið­stöð­ina í smá­í­búða­hverf­inu

Hví­trús­senski auð­mað­ur­inn Alex­ander Mos­hen­sky svarar ekki spurn­ingum um félagið Alpha Mar Foundation í skatta­skjólnu Seychelles. Samkvæmt gögnum seldi félaga­net Mos­hen­skys breskt félag til íslensks sam­starfs­manns hans, Karls Kon­ráðs­sonar sem rekur það frá heim­ili sínu í Smá­í­búða­hverf­inu. Mos­hen­sky kann­ast ekki við að vera með starfs­mann eða eiga félag á Íslandi.

Mest lesið undanfarið ár