Fann sinn veg í fiskbúðinni

Sex ár eru liðin frá því að Sigfús Sig­urðs­son lagði hand­bolta­skóna á hill­una, fór að vinna við að selja fisk og kom sjálfum sér og öðrum á óvart með því að finna sig vel þar. Í dag stendur hann vakt­ina í eigin verslun, Fiskbúð Fúsa, í Skip­holti.

Fann sinn veg í fiskbúðinni

Það hefur tekið nokkuð langan tíma að finna stund á vinnu­tíma, til að setj­ast niður með Sigfúsi Sig­urðs­syni, eitt sinn hand­bolta­manni en nú fisk­sala í Fiskbúð Fúsa í Skip­holti. Hann hefur í aðdrag­anda við­tals­ins staðið vakt­ina einn í búð­inni, verið mættur þar snemma morg­uns til að byrja að und­ir­búa dag­inn og gengið út um sjö leytið, eftir að hafa reddað kvöld­matnum fyrir fjölda fólks. Nú er hann loks búinn að ráða mann sér við hlið og getur því brugðið sér frá, áður en síð­deg­isösin hefst. „Maður er far­inn að venj­ast því að lykta eins og gam­all sokkur,“ segir Sigfús þegar hann er að koma sér fyrir með kaffi­boll­ann sinn og vísar til fiski­lykt­ar­innar sem fylgir honum inn á kaffi­húsið, meðal ann­ars til að ræða um nýjan starfs­vett­vang í fisk­búð­inni. Þetta verður hins vegar ekki nema að mjög tak­mörk­uðu leyti við­tal um hand­bolta enda hefur blaða­maður lítið fylgst með honum í gegnum tíð­ina. Þrátt fyrir það finnst henni eins og hún þekki Sigfús, enda var hann einn af „Silf­ur­drengj­unum okkar“, lands­liðs­hópnum sem komst svo langt að spila úrslita­leik­inn á Ólymp­íu­leik­unum í Peking og lands­menn margir tóku ást­fóstri við, hvort sem þeir höfðu áhuga á íþróttum eða ekki. Í hópnum voru menn eins og Ólafur Stef­áns­son, Dagur Sig­urðs­son, Patrekur Jóhann­es­son, Guð­mundur Hrafn­kels­son, Rúnar Sig­tryggs­son og Aron Krist­jáns­son. „Já, þetta lið var fullt af stórum karakt­erum,“ sam­sinnir Sigfús. „Það var tekið eftir því. Í dag finnst mér dálítið vanta uppá að menn láti ljós sitt skína, fyrir utan hand­bolta­völl­inn líka, eins og þessir menn gerðu margir. Það skiptir líka máli, svo að fólk taki eftir lið­inu. Það er eins og vanti allt fútt í þetta í dag.“ 

Fittaði fyrst inn þegar hann drakk

Sigfús var bara korn­ungur Valsari þegar hann var far­inn að láta til sín taka á hand­bolta­vell­inum. Hann er nokkru yngri en sumar af helstu kemp­unum í Silf­ur­lið­inu en hann kynnt­ist þeim þrátt fyrir það snemma, enda spil­aði hann iðu­lega upp fyrir sig og var far­inn að spila leiki með yngri lands­liðum 16 ára gam­all og með A-lands­lið­inu 21 árs. Áfeng­is­fíkn fór þó snemma að þvæl­ast fyrir honum og hann missti af stærstu tæki­fær­unum, enda var honum ekki treyst fyrir því að spila alvöru leiki. Hann var ekki nema 23 ára þegar hann fór í með­ferð, árið 1999. Hann hefur ekki drukkið síðan. „Ég var rosa­lega virkur krakki en þegar ég horfi til baka sé ég að minn alkó­hól­ismi var að koma fram áður en ég byrj­aði að drekka, með óheið­ar­leika og ýktum við­brögðum, ofsa­gleði, ofsa­sorg eða -dep­urð og þar fram eftir göt­unum. Ég átti alveg rosa­lega mikið af því sem ég kall­aði vini en ég náði samt ekki að tengja við þá, fannst ég aldrei alveg fitta inn, fannst ég alltaf standa utan­gátta. Það var ekki fyrr en ég drakk í fyrsta skipti sem mér fannst ég tengja við þá. Það var alltaf eins og væri tóma­rúm inni í mér og það fyllt­ist upp í það þegar ég drakk. Þá náði ég að tengja við allt og alla. En eftir því sem ég drakk eða not­aði meira stækk­aði bara þetta tóma­rúm, þannig að þetta var komið út í algjörar öfgar eftir þessi 7–8 ár sem þetta stóð yfir. Ég var 23 ára þegar ég fór í með­ferð. Á meðan ég drakk gifti ég mig, eign­að­ist son og skildi líka. Allt eins og það á ekki að vera!”

„Á meðan ég drakk gifti ég mig, eign­að­ist son og skildi líka. Allt eins og það á ekki að vera!“

Heiðarleiki framar öllu öðru

Snemma í sam­tal­inu verður ljóst að Sigfúsi þykir ekki erfitt að ræða sín per­sónu­legu mál og að hann er ansi óvæg­inn við sjálfan sig. Hann hefur greini­lega horfst í augu við sjálfan sig og sína bresti. Hann sam­þykkir það en seg­ist ekki kenna áfeng­inu um það sem miður hefur farið í hans lífi, þrátt fyrir að alkó­hól­ism­inn hafi aug­ljós­lega sett mark sitt á líf hans. „Nei,  99% af öllum skít í mínu lífi er sjálfum mér að kenna. Ég kenni ekki neinu eða neinum öðrum um en sjálfum mér,“ segir hann og bætir því við að hann reyni alltaf að vera heið­ar­legur, bæði við sjálfan sig og aðra. Það sé kjarn­inn í hans edrú­mennsku. „Ef ég get ekki verið heið­ar­legur við sjálfan mig get ég ekki verið heið­ar­legur við aðra. Um leið og ég er orð­inn óheið­ar­legur og far­inn að eiga ein­hver leynd­ar­mál er voð­inn vís.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár