„Hann er ekkert sérstaklega flókinn maður“

Mér fannst ég vera að vinna með leik­stjóra sem er að slá ein­hvern ferskan tón, segir Ingvar E. Sig­urðs­son um sam­starfið við Hlyn Pálmason, sem leik­stýrir Hvítum, hvítum degi. Þeir ræddu við Stundina um sam­starfið, kvik­mynda­gerð­ina og mann­legt eðli.

„Hann er ekkert sérstaklega flókinn maður“

Það er fal­legur sum­ar­dagur á kvik­mynda­há­tíð­inni í Karlovy Vary þegar ég hitti Hlyn Pálmason og Ingvar E. Sig­urðs­son, leik­stjóra og aðal­leik­ara Hvíts, hvíts dags. Róleg pía­nó­tón­list er spiluð undir á hót­el­inu þar sem við hitt­umst.

Ingvar: „Ég veit ekki hversu skap­andi maður getur verið með þess­ari tón­list.“

Hlynur: „Maður verður bara sorg­mæddur, fer að gráta.“

En bless­un­ar­lega halda þeir aftur af tár­unum og eru nógu skap­andi til þess að tala í heilan klukku­tíma um mynd­ina sem þeir voru að klára, næstu mynd, barna­stjörnur, dans, fót­bolta, kvik­mynda­há­tíðir og skort­inn á kvik­mynda­húsum á lands­byggð­inni. Og þeir félagar voru ekki að vinna saman í fyrsta skipti.

Ingvar: „Við unnum saman þegar hann var að útskrif­ast úr skól­anum, Den danske film­skole. Það var nátt­úr­lega geggjað. Hann situr auð­vitað við hlið­ina á mér núna, en í alvör­unni: það var stór­kost­legt. Ég fann það bara strax í skól­anum, í mynd­inni, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár