Læst inni í fangaklefa með ungbarn

Ingi­björg Lilja Þór­munds­dóttir flutti dreng­ina sína til Íslands án sam­þykkis fyrr­ver­andi eig­in­manns síns og barns­föður, sem hafði verið til rann­sóknar vegna meintra kyn­ferð­is­brota. Hún var hand­tekin eftir aðal­með­ferð­ina í for­ræð­is­deilu í Stokk­hólmi og lýsir því hvernig hún útbjó skipti­að­stöðu fyrir átta vikna dóttur sína, lokuð í fanga­klefa í Krono­bergs­häktet, stærsta fang­elsi Sví­þjóðar.

Læst inni í fangaklefa með ungbarn
Í fang­elsi með barnið „Eflaust hefðu fáir trúað því að aðeins örfáum mín­útum áður hafði ég setið læst inn í fanga­klefa, í grænum jogg­ing­galla merktum sænsku fang­elsi,“ segir Ingi­björg. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ingi­björg Lilja Þór­munds­dóttir var hand­tekin í Svíþjóð þann 22. maí síð­ast­lið­inn og lokuð inni í fanga­klefa ásamt átta vikna gam­alli dóttur sinni. 

„Það var súr­r­eal­ískt að rétta fanga­verði með svarta leð­ur­hanska dóttur mína svo að ég gæti farið í fötin sem fang­elsið skaff­aði mér,“ segir hún í sam­tali við Stundina. „Ég reyndi að vera sterk og hélt alveg sönsum, en eftir á að hyggja held ég að ég hafi bara verið í of miklu sjokki til að geta brotnað niður.“

Ástæðan fyrir hand­tök­unni er sú að Ingi­björg hafði gerst brot­leg við Haag-samn­ing­inn og sænsk lög í fyrra þegar hún flutti frá Svíþjóð til Íslands með syni sína án sam­þykkis fyrr­ver­andi eig­in­manns síns og barns­föður, sem hafði verið til rann­sóknar vegna meints kyn­ferð­is­brots gegn yngri syn­inum. 

Eldri dreng­ur­inn hefur marg­sinnis beðist undan því að vera sendur til pabba síns sem hann segir að hafi slegið og sparkað í sig. Hér­aðs­dómur Reykja­ness leit sér­stak­lega til vilja drengs­ins í dóms­úr­skurði þann 20. febr­úar síð­ast­lið­inn þar sem kröfu föð­ur­ins um að bræð­urnir yrðu sendir til Sví­þjóðar var hafnað.

Lands­réttur sneri hins vegar dómnum við þann 11. apríl og taldi mark­mið Haag-samn­ings­ins, um einka­rétt­ar­leg áhrif af brott­námi barna til flutn­ings milli landa, vega þyngra en afstaða drengs­ins og frá­sögn hans af harð­ræði. 

Eftir að Ingi­björg mætti fyrir sænskan dóm­stól vegna aðal­með­ferðar í for­sjár­mál­inu þann 22. maí var hún tekin höndum og lokuð inni í fanga­klefa í nokkrar klukku­stundir með korn­unga dóttur sína sem hún á með núver­andi sam­býl­is­manni sínum. 

Hélt að hún væri vandamálið

Í ára­langri afneitun„Ég leit­aði mér aðstoðar hjá fag­að­ilum og hélt að það væri ég sem væri vanda­málið.“

Ingi­björg og fyrr­ver­andi eig­in­maður hennar, maður af austur-evr­ópskum upp­runa, kynnt­ust árið 2004, gengu í hjóna­band tveimur árum síðar og eiga saman tvo unga drengi, 12 ára og 5 ára. Þau bjuggu á Íslandi framan af en fluttu til Sví­þjóðar árið 2012 þegar mað­ur­inn fékk vinnu hjá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki í Stokk­hólmi. 

Fljót­lega komu brestir í sam­bandið. Ingi­björg komst að því að mað­ur­inn átti í kyn­ferð­is­legum sam­skiptum við konur á inter­net­inu, auk þess sem hann reyndi ítrekað að kom­ast í sam­band við mjög ungar stúlkur, allt niður í 14 ára gamlar, í gegnum Myspace. 

Maðurinn við­ur­kenndi að hann ætti við alvar­lega kyn­lífs­fíkn að stríða og hjónin leit­uðu aðstoðar hjá prest­inum sem hafði gift þau fáeinum vikum áður. Með tím­anum fóru einnig skap­gerð­ar­vanda­mál að láta á sér kræla; sam­búðin varð æ erf­ið­ari, mað­ur­inn gerð­ist stjórn­samur og reidd­ist af minnsta til­efni.

„Ég leit­aði mér aðstoðar hjá fag­að­ilum og hélt að það væri ég sem væri vanda­málið. Afneit­unin var svo mikil að ég fór til hvers sál­fræð­ings­ins á fætur öðrum því mér hugn­að­ist ekki alltaf ráð­legg­ingar þeirra,“ segir Ingi­björg. „Ég man að einn virtur sál­fræð­ingur sagði mér að lík­lega myndi þetta áger­ast með tím­anum ef ekk­ert væri að gert. Og það reynd­ist rétt. Með árunum hætti hann að segja fyr­ir­gefðu þegar hann fór yfir strikið og svo fór reiðin og heiftin að bein­ast að eldri syni okkar. Stundum við­ur­kenndi hann að hann ætti við vanda­mál að stríða og lof­aði að leita sér hjálpar, og þá varð allt gott í ein­hvern tíma. En svo fór þetta alltaf í sama gamla farið og fyrr en varði var ég aftur farin að hringja grát­andi heim til systur minnar eða bestu vin­konu.“

Atvikið sem gerði útslagið

Árið 2015 var 16 ára stúlka, tengd fjöl­skyldu Ingi­bjargar, gestur á heim­il­inu í nokkra daga. Einn morg­un­inn kom stúlkan til Ingi­bjargar nið­ur­brotin og sagði henni að mað­ur­inn hefði komið inn í her­bergi til hennar um nótt­ina og þreifað á henni. 

„Hún var greini­lega í upp­námi og hafði enga ástæðu til að búa þetta til. Ég tók hana  trú­an­lega og sagði honum að yfir­gefa heim­ilið strax,“ segir Ingi­björg í grein­ar­gerð sem hún sendi lög­mönnum sínum í fyrra. „Hann sýndi eft­ir­sjá en við­ur­kenndi ekk­ert. Hann sagði að þetta væri mis­skiln­ingur, hann hefði farið inn í her­bergið til að sækja hleðslu­tæki og hugs­an­lega hrasað á rúmið. Hann hafði verið á fyll­eríi þessa nótt­ina.“ Ingi­björg segir skýr­ing­una um hleðslu­tækið ekki stand­ast, enda hefði stúlkan verið búin að vera hjá þeim nokkrar nætur og hann aug­ljós­lega ekk­ert erindi átt inn í her­bergið hennar um nótt­ina. Stundin fékk stað­fest­ingu á atvika­lýs­ing­unni við vinnslu frétt­ar­innar, en fyrir liggur skrif­legur vitn­is­burður frá ungu kon­unni.

„Ég tók hana trú­an­lega og sagði honum að yfir­gefa heim­ilið strax“

„Nú var mælir­inn fullur og kom­inn tími á skilnað, því minn stærsti ótti var sá að hann myndi brjóta á ein­hverju okkar og ég varð að horfast í augu við vanda­málið. Í fyrstu var ég von­góð um að þetta yrði frið­sam­legt skiln­að­ar­ferli. En þegar honum varð ljóst að mér var alvara varð hann viti sínu fjær af reiði og rak mig af heim­il­inu án þess að ég hefði fundið mér nýja íbúð. Eitt sinn þegar ég kom inn á heim­ili okkar var hann 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Barnaverndarmál

FréttirBarnaverndarmál

Barn­a­níð­skæru dag­aði uppi fyrir „mjög baga­leg mis­tök“

Alvarleg mis­tök lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og óvenju­leg afskipti þáver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu af Hafn­ar­fjarð­ar­mál­inu urðu til þess að kæra barna­vernd­ar­nefndar vegna meintra kyn­ferð­is­brota fékk ekki lög­mæta með­ferð og lá óhreyfð í meira en tvö ár. „Lögregla beið eftir gögnum frá barna­vernd sem aldrei komu,“ segir í bréfi sem lög­regla sendi rík­is­sak­sókn­ara vegna máls­ins.
FréttirBarnaverndarmál

Barn talið óhult hjá föður þrátt fyrir sögu um barn­a­níð

Rannsókn á meintum kyn­ferð­is­brotum föður gegn barni var felld niður án lækn­is­skoð­unar og Barna­hússvið­tals, en í kjöl­farið komu fram yfir­lýs­ingar frá konum sem segja mann­inn hafa mis­notað þær í æsku. Dóm­stólar telja að „það þjóni hags­munum barns­ins að það njóti meiri og sam­felld­ari umgengni við föður“ og hafa úrskurðað um umgengni án eft­ir­lits.

8 mín. lestur

Mest lesið undanfarið ár