Frá inn­rásinni Innrásin í Normandí var ein stærsta hern­að­ar­að­gerð sem ráð­ist hafði verið í.

Innrásin mikla

75 ár liðin frá inn­rásinni í Normandí. Flóttans frá Dunkirk einnig minnst.

Það er ekki bara á Reykja­vík­ur­flug­velli þar sem koma DC3 flug­véla minnir á að D-Dagur sé í nánd. Þann 6. júní var þess minnst að 75 ár eru liðin frá því að inn­rásin í Normandí hófst. Verður þess minnst í Portsmouth í Suður-Bret­landi, þaðan sem skipin lögðu af stað, og þar munu fyr­ir­mennin safn­ast saman. Trump mun mæta með alla fjöl­skyld­una, þar á meðal dótt­ur­ina sem heitir ekki Ivanka og fæstir vita deili á. Theresa May tekur á móti hers­ing­unni, lík­lega í síð­asta sinn sem for­sæt­is­ráð­herra. En Dover hefur einnig dregið að sér nokkra athygli. Reyndar má segja að það hafi einmitt verið verk­efni hennar í stríð­inu sjálfu.

Við Dover kast­ala standa her­menn í seinni heims­styrj­ald­ar­bún­ingum á víð og dreifa og reykja og spjalla saman, enda það sem her­menn eyða mestum tíma sínum í þegar þeir eru ekki að murka lífið úr hver öðrum. Flestir eru þeir Bretar en einn og einn Banda­ríkja­maður er hér á stangli. Meiri furðu vekur að hér eru líka Þjóð­verjar, sem spjalla við gesti og gang­andi og sýna ung­við­inu hvernig munda skuli vél­byssu. Þeir eru úr hinum ýmsu greinum hers­ins, fall­hlífasveitir og meira að segja skrið­dreka­for­ingi í svörtum bún­ingi, en svona langt komust þeir aldrei. Konur standa við kart­öflu­garða og fyrir ofan kast­al­ann flýgur Spitfire flug­vél til að ljá þessu öllu auk­inn þunga. Helgi þessi er til­einkuð seinni heims­styrj­öld­inni og er haldin árlega síð­ustu helg­ina í maí.

Hliðið að Bretlandi

Fyrsta virkið í Dover var reist af Róm­verjum, en í gegnum ald­irnar hefur verið byggt við kast­al­ann sem nú er sá stærsti á Bret­landseyjum. Í Napól­e­ons­stríð­unum voru göng grafin undir hann sem áttu að vera til varnar ef Frakkar gerðu inn­rás. Og ekki að undra að menn hafi verið skelk­aðir, því meg­in­landið er nán­ast áþreif­an­lega nálægt. Á heið­skírum degi má auð­veld­lega sjá yfir til Frakk­lands og hægt er að synda yfir séu menn í mjög góðu formi. Meg­in­landið gerir alls staðar vart við sig í Kent­hér­aði á hátt sem það ann­ars gerir sjaldn­ast á Bret­landseyjum, víða er töluð franska og allar upp­lýs­ingar er fáan­legar á frönsku og þýsku og stundum hol­lensku líka.

Dover er sá bær í Bret­landi sem mun fara einna verst út úr samn­ings­lausu Brexit ef af verður. Ferjur flytja ekki bara far­þega í stórum stíl frá Calais, stærstu far­þega­höfn Frakk­lands, heldur mikið magn varn­ings og ekki síst mat­væla. Í dag er engin toll­gæsla á milli land­anna en ef það breyt­ist gæti tekið allt að átta klukku­tíma fyrir hvern trukk að kom­ast í gegn, með óheyri­legum til­kostn­aði og von­laust að koma mat á markað sam­dæg­urs. Og þó kusu 62 pró­sent Dover búa með Brexit. Sumir eru fyrrum toll­verðir sem sakna gömlu dag­anna þegar næga vinnu var að fá og fólk fór í dags­ferðir til Frakk­lands til að kaupa áfengi og sígar­ettur. Aðrir líta enn aftar, til þeirra tíma þegar Dover var ekki aðgang­ur­inn að Bret­landi heldur harð­læstar dyr.

Aukið var við göngin í fyrri heims­styrj­öld þótt inn­rás­ar­hættan þá væri heldur lítil, enda komust Þjóð­verjar ekki í gegnum Frakk­land í það skiptið. Öðru máli gilti um hina síð­ari. Innrásin í vestur hófst 10. maí, sama dag og Bretar her­námu Ísland. Þjóð­verjum tókst að króa breska her­inn af í strand­bænum Dunkirk eftir að brunað var þvert í gegnum Ardenna­skóg til Ermar­sunds. Héðan áttu Bretar sér engrar und­an­komu auðið, með þýska her­inn fyrir framan sig og hafið fyrir aftan. En í und­ir­göngum Dover kast­ala fædd­ist hug­mynd sem átti eftir að þykja með þeim djarfari í hern­að­ar­sög­unni. Ákveðið var að flytja allan her­inn heim sjó­leið­ina og til að svo mætti verða voru fiski­bátar, sunnu­dags­skútur og meira og minna allt sem flotið gat sent fyrir sundið.

Fræknasta björgunarafrek sögunnar

Margir muna ef til vill eftir hinni nýlegu kvik­mynd Christopher Nolan um atburð­inn en fyrir þá sem vilja fræð­ast meira er hægt að heim­sækja göngin undir kast­al­anum. Hleypt er inn í 30 manna hollum og tekur ferðin um 45 mín­útur. Hér vann fólk allan sól­ar­hring­inn við að skipu­leggja björg­un­ar­að­gerð­ina sem fékk dul­nefnið Dynamo. Þegar menn voru orðnir of þreyttir til að halda áfram dott­uðu þeir á stólum sínum og tóku síðan aftur til starfa. Borðið þar sem menn reyktu og skipu­lögðu er enn á sínum stað og á veggnum er varpað svip­myndum frá strönd­inni þar sem her­menn stóðu í enda­lausum röðum undir linnu­lausum loft­árásum.

Tund­ur­spill­arnir sem áttu að vernda þennan áhuga­manna­flota voru svo hart leiknir að þeir voru kall­aðir heim, flug­vél­arnar varð að spara til að verj­ast vænt­an­legri inn­rás og var því fátt um varnir. Og samt hafð­ist þetta. Í upp­hafi var reiknað með að hægt væri að bjarga um 45.000 manns, en áður en yfir lauk hafði 330.000 verið ferjað yfir. Þrátt fyrir að hafa tapað orust­unni um Frakk­land var her­mönn­unum fagnað sem hetjum við heim­kom­una og var Dunkirk tal­inn mik­ill varn­ar­sigur sem enn er vísað til. Mikið magn vopna var vissu­lega skilið eftir og flutn­inga­bílar keyrðir út í sjó svo að þeir gögn­uð­ust ekki Þjóð­verjum en erfitt er að sjá hvernig Bretar hefðu getað barist áfram ef her­inn hefði verið þurrk­aður út.

Pappaher platar Þjóðverja

Fyrir framan byrgið er stytta af aðmírál Ramsay sem skipu­lagði aðgerð­ina. Hann var reyndar kom­inn á eft­ir­laun þegar stríðið byrj­aði en Churchill tal­aði hann á að snúa aftur til þjón­ustu. Lítið varð úr eft­ir­laun­unum þar sem Ramsay lést í flug­slysi í jan­úar 1945 og fékk því ekki að upp­lifa stríðs­lok. Sagt er að Hitler hafi áformað að fá sér hádeg­is­mat í Dover og kvöld­mat í Buckinghamhöll, en lítið varð úr. Þess í stað var fjórum árum síðar komið að því að Bretar, ásamt Banda­ríkja­mönnum og Kana­da­búum, gerðu inn­rás á meg­in­landið. Mikið her­lið var flutt til Dover, en mest af því var úr pappa. Áætlunin hét Fortitude, og mark­miðið var að telja Þjóð­verjum trú um að inn­rásin myndi verða á öðrum stað en raunin var. Í Skotlandi var gervi­her safnað saman til að láta líta svo út sem mark­miðið væri að ráð­ast inn í Noreg og má vera að hinn stóri her­spít­ali á Reyð­ar­firði hafi verið liður í þeirri áætlun. Og í Dover var her sem var ekki til settur undir stjórn sjálfs Pattons her­for­ingja, sem ku hafa verið æfur yfir að fá ekki að taka þátt í hinni raun­veru­legu inn­rás. En hans tími myndi koma.

Við fætur stytt­unnar af Ramsay er kort af Ermar­sundi og ekki er að undra að Þjóð­verjar skuli hafa bitið á agnið, svo miklu styttra er héðan til meg­in­lands­ins en frá öðrum hlutum Bret­lands. Svo stutt, reyndar, að þýskar fall­byssur gátu drifið yfir. Mikið var skotið á skip sem sigldu hér um, en eftir að Dynamo aðgerð­inni lauk var helsta verk­efni Dover í stríð­inu að þykj­ast vera mik­il­væg­ari en hún í raun var. Und­ir­göngin voru áfram notuð í kalda stríð­inu en ætl­unin var að bæj­ar­yf­ir­völd kæmu sér þar fyrir ef til átaka kæmi. Það var fyrst á 9. ára­tugnum að öll áform um að nýta þau í hern­aði voru lögð á hill­una, veggirnir voru ekki lengur taldir nógu traustir til að verj­ast geisla­virkni af völdum nýj­ustu kjarn­orku­sprengna.

Innrásin frá Normandí og uppruni kokkteilsósunnar

Það tekur um þrjá tíma að keyra frá Dover til Portsmouth. Mitt á milli er Hastings, þar sem önnur tíma­móta­orr­usta átti sér stað. Í það skiptið var inn­rás gerð frá Normandí yfir til Englands. Það gerð­ist árið 1066 þegar  Vil­hjálmur bast­arður her­togi af Normandí sigr­aði Harald saxa­kon­ung. Sá fyrr­nefndi fékk þar eftir við­ur­nefnið sig­ur­sæli, sá síð­ar­nefndi fékk ör í gegnum augað. Vil­hjálmur og Nor­mannar hans voru af nor­rænum ættum og höfðu búið um nokk­urt skeið í Normandí, reyndar svo lengi að þeir voru orðnir frönsku­mæl­andi. Norðmenn sjálfir gerðu inn­rás í Bretland þetta sama sumar, en Haraldi tókst að sigra þá við Stanford brú í Norður-Englandi og brun­aði síðan suður á bóg­inn til að mæta þess­ari nýju ógn, en svo fór sem fór. Síðan hefur engum tek­ist að leggja undir sig Bretland með inn­rás, og má því að ein­hverju leyti segja að Nor­mannar og afkom­endur þeirra ráði því enn. Að minnsta kosti er orr­ustan leikin eftir með miklum til­þrifum í októ­ber ár hvert.

Rústir kast­ala sem Vil­hjálmur lét byggja í kjöl­far orr­ust­unnar er að finna á dranga yfir bænum og þar er sýn­ing um orust­una. Meðfram strönd­inni eru svo lysti­bryggjur og veit­inga­staður. Hér fæ ég mér gam­al­dags rækju­kokk­teil sem var dálæti manna um og eftir seinna stríð. Rekja má upp­runa hans til bann­ár­anna í Banda­ríkj­unum þegar eitt­hvað þurfti að bera fram í kokk­teil­glösum. Virðist kokk­teilsósan víð­fræga fyrst hafa verið fundin upp sem með­læti með honum, þótt Íslend­ingar vilji gjarnan eigna sér hana.

Bærinn þar sem 19. öldin fæddist

Í Portsmouth eru höf­uð­stöðvar breska flot­ans sem hefur haft meiri áhrif á mann­kyns­sög­una en flest annað. Hér er elsta þurr­kví í heimi og menn vilja jafn­vel meina að hægt sér að rekja upp­haf iðn­bylt­ing­ar­innar til bæj­ar­ins. Það er kannski ekki að undra að Charles Dickens, sem skrif­aði um skugga­hliðar hennar, sé fæddur hér, en hús hans er í dag safn. Og hér er að sjálf­sögðu skipa­safn með fleytum frá tímum Hinriks 8., hið fræga Victory skip Nelsons flota­for­ingja sem sigr­aði sjó­her Napól­e­ons í orr­ust­unni við Trafalgar og HMS Warrior frá 19. öld sem er eins og sprottið út úr sögu eftir Jules Verne, mitt á milli Napól­e­ons­stríða og fyrri heims­styrj­aldar.

Breski flot­inn er hér enn til húsa, og héðan hélt sveitin af stað sem barð­ist til sig­urs í Falklandseyja­stríð­inu. Hermenn sjást við á vappi, en öllu nútíma­legri í klæða­burði en þeir í Dover, og vafa­lítið verða enn fleiri á ferli þegar inn­rás­araf­mæl­is­ins er fagnað. Því héðan hélt stærsti inn­rás­ar­floti sög­unnar af stað um morg­un­inn þann 6. júní 1944 til að frelsa Evrópu undan oki nas­ism­ans. Ekki er annað hægt að segja en að aðgerðin hafi heppn­ast vel, Þjóð­verjar voru seinir að taka við sér og trúðu að meg­in­inn­rásin kæmi frá Dover, en að þessi væri ein­ungis til blekk­ingar. Því var öfugt farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár