Tinna Sverr­is­dóttir Mynd: Heiða Helgadóttir

Töfrarnir í litlu hlutunum

Tinna Sverr­is­dóttir segir frá því sem hún gerir til að auka og við­halda ham­ingju í lífi sínu. Meðal ann­ars því, að þegar hún leyfir sér að taka eftir litlu hlut­unum og sér aðstæður í stærra sam­hengi byrja til­vilj­anir að breyt­ast í töfra.

Það gerði mig mjög glaða að Stundin hringdi í mig akkúrat dag­inn sem ég fór algjör­lega öfugum megin fram úr rúm­inu og fannst allt svo­lítið „pleh“. Svona dagur þegar það er sól úti og þú hugsar: „Ég vildi að það væri rign­ing svo ég hefði betri ástæðu til að vera inni í eigin eymd.“ Þetta var s.s. við­horfið sem ég ætl­aði með inn í þann dag þegar „lífið“ hringdi og sagði: „Halló, góðan dag­inn, má bjóða þér að skrifa grein um það sem gerir þig ham­ingju­sama og deila því með heim­inum?“ Mér þótti þetta ansi kómísk tíma­setn­ing og eftir sím­talið gat ég ekki annað en bara brosað, því mér bauðst að setj­ast niður og rifja upp allt það sem gerir mig ham­ingju­sama. Mér finnst lífið mjög oft vera svona – það kemur kannski ekki endi­lega með það sem þú vilt en það kemur með það sem þú þarft á að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hamingjan

Fjallgöngur veita hamingju
Hamingjan

Fjall­göngur veita ham­ingju

Jóhanna Fríða Dalkvist segir að sér finn­ist að fólk geti ekki alltaf verið „sky high“; það sé ekki ham­ingjan að vera alltaf ein­hvers staðar á bleiku skýi. Hún segir að fólk þurfi að kunna og ákveða hvernig það ætli að bregð­ast við ef það finnur fyrir óham­ingju. Það þurfi að ákveða að vinna sig út úr því og tala um hlut­ina. Fjall­göngur hjálp­uðu Jóhönnu Fríðu í kjöl­far sam­bands­slita á sínum tíma og síðan hefur hún gengið mikið á fjöll og er meira að segja farin að vinna sem far­ar­stjóri í auka­vinnu.
„Ég þurfti að samþykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“
Hamingjan

„Ég þurfti að sam­þykkja sjálfa mig fyrir það sem ég er“

Ingileif Frið­riks­dóttir var góð í að fela það hvernig henni leið í æsku. Um ára­bil var hún skot­spónn bekkj­ar­fé­laga sinna og upp­lifði sig eina þótt hún ætti vin­konur. Hún þorði ekki að koma út úr skápnum en til að losna við til­finn­inga­doð­ann varð hún að horfa í spegil og finna sjálfa sig. „Það var risa­stórt og ótrú­lega ógn­væn­legt skref,“ segir Ingileif sem er nú ham­ingju­sam­lega gift. Fjöl­skyldan er henni allt.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár