Við þráum frið og öryggi

Shahnaz Safari og börnin hennar tvö, Zainab og Amil, verða að óbreyttu send aftur til Grikk­lands, þar sem þeirra bíður líf á götunni. Verði nýtt frumvarp dómsmála­ráðherra að lögum verður von fólks eins og þeirra, um líf og framtíð á Íslandi, enn daufari en áður.

Tvisvar hafa íslensk stjórn­völd hafnað því að taka mál Shahnaz Safari og barna hennar til efnislegrar meðferðar, sem er grunn­forsenda þess að þau eigi möguleika á að setjast að á Íslandi. Fyrst hafnaði Útlendinga­stofnun því þann 6. desember síðastliðinn og þá höfnun staðfesti kærunefnd útlendinga­mála 12. febrúar. Eftir því sem Stundin kemst næst er þetta í fyrsta sinn sem Kæru­nefndin stað­festir úrskurð Útlendinga­stofnunar í máli sem þessu, þar sem um einstæða móður með börn með alþjóð­lega vernd í Grikk­landi er að ræða. Í september síðastliðnum felldi Kæru­nefndin til að mynda úr gildi ákvörðun Útlendinga­stofnunar um að synja um að taka umsókn fjöl­skyldu til efnis­meðferðar, sem hafði alþjóð­lega vernd í Grikk­landi.

Enginn vafi leikur á um að staða Shahnaz, Zainab og Amir er afar veik og viðkvæm. Þau eiga engar efnislegar eignir, litla sem enga peninga og afar erfiða reynslu að baki. Faðir barnanna er týndur í Grikk­landi og óljóst hvort hann er á lífi og móðirin glímir við alvarlegt þunglyndi. Þrátt fyrir það er áætlað að senda fjöl­skylduna aftur til Grikk­lands, þar sem þau eru fullviss um að lenda á götunni.

Þessa ákvörðun taka stjórn­völd í skjóli þess að fjöl­skyldan hefur þegar fengið alþjóð­lega vernd í Grikk­landi, en þangað fór hún í hælisleit í byrjun árs 2016. Að undan­förnu hefur þeim hins vegar fjölgað sem hingað koma sem eru einmitt í þeirri stöðu. Fólkið lýsir því sem alþjóða­stofnanir og hjálpar­samtök hafa staðfest: Ömurlegum aðstæðum í flóttamanna­búðum, bágri heilbrigðis­þjónustu, kynþátta­fordómum og skorti á tækifærum. Alþjóðleg vernd í Grikk­landi sé verri en engin vernd.

Fædd á flótta

Móðirin Shahnaz, fjórtán ára dóttir hennar, Zainab, og sonurinn Amir, sem er 12 ára, hittu blaðamann og ljós­myndara á Stundinni á dögunum. Við hittumst seinni partinn, að beiðni móðurinnar, sem vildi ekki að börnin misstu stundir úr skóla. Skóla­ganga þeirra hér er eitt það dýrmætasta sem hún hefur lifað svo árum skiptir. Amir gengur í Granda­skóla og Zainab í Hagaskóla. Það er þungt yfir þeim öllum og þeim stekkur ekki bros á vör allan þann tíma sem þau dvelja á skrif­stofunni. Þau hafa heldur ekki margt til að brosa yfir. Þau eru heltekin af áhyggjum, öll þrjú, og bera það með sér.

 „Ég trúi því ekki enn þá hversu slæmar aðstæður eru í Grikk­landi.“

Það eru um sex mánuðir frá því Shahnaz og börnin hennar tvö komu til Íslands í þeirri von að öðlast hér betra líf. Fimmtán ár eru frá því Shahnaz og eigin­maður hennar yfirgáfu stríðs­hrjáð Afganistan og flúðu til Íran. Þar fæddist þeirra fyrsta barn, dóttirin Zainab, og tveimur árum síðar bættist sonurinn Amir í fjöl­skylduna. Fjöl­skyldan bjó í tólf ár í Íran en lífið var þeim erfitt og tækifærin til betra lífs fá. Fyrir þremur árum síðan tóku þau ákvörðun um að flýja ástandið og fara til Evrópu. Þau komu til Grikk­lands í mars árið 2016, eftir að hafa farið fótgangandi um torfærnar götur og fjöll, frá Norður-Íran til Tyrklands. Þaðan komust þau, eftir nokkrar tilraunir, með báti til Grikk­lands. Þar mættu þeim allt aðrar aðstæður en þau höfðu vonað. „Ég trúi því ekki enn þá hversu slæmar aðstæður eru í Grikk­landi,“ segir Shahnaz.

Það er Arash Rahnam, Írani búsettur á Íslandi, sem túlkar fyrir fjöl­skylduna. Shahnaz talar ekki íslensku né heldur ensku. Móðurmál hennar er dari en hún er hvorki læs né skrifandi. Dóttir hennar, Zainab, sem er 15 ára, er búin að læra dálitla ensku og talar nokkur orð í íslensku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár