Mynd: Heiða Helgadóttir

Missti eldmóðinn og lífsviljann eftir starf á íslensku hóteli

Fyrr­verandi kokkur og starfs­fólk lýsa upplifun sinni af störfum á hótelinu Radisson Blu 1919 í miðborg Reykja­víkur. Morgun­verðar­starfs­mönnum hótelsins var öllum sagt upp og boðnir nýir samningar með færri vöktum og lakari kjörum. Ræstitæknar segja að þeim hafi verið sagt að þeir myndu ekki fá laun sín ef þeir tækju þátt í verkfalli Eflingar. Hótel­stýra segir að uppsagnir tengdust skipulags­breytingum á vegum hótel­keðjunnar og neitar að hafa gefið starfs­fólki misvísandi upplýsingar.

Hann var hlátur­mildur og hamingju­samur í starfi. Samstarfs­fólk hans lýsti honum sem „hjarta og sál“ hótelsins. Ástríða hans í lífinu var að vera morgun­verðar­kokkur. En þetta átti eftir að breytast hratt. „Það slökknaði á eldmóði hans fyrir lífinu,“ segir vinnu­félagi hans. Síðasta haust reyndi hann að svipta sig lífi. Hann rekur vanlíðan sína til breytinga í vinnu­umhverfi hans. „Ég elskaði þessa vinnu svo mikið, en hún var orðin að martröð,“ segir hann.

Stundin ræddi við kokkinn  Joao Paulo De Brito Linheiro Da Silva, eða Paulo eins og hann er kallaður, ásamt fimm samstarfs­mönnum hans á fjögurra stjörnu hótelinu Radisson Blu 1919 í miðborg Reykja­víkur. Starfs­menn hafa kvartað undan því að fá sjaldnast rétt útborgað og greina frá niður­brjótandi framkomu yfirmanna í þeirra garð. Öllu morgun­verðar­starfs­fólkinu á vakt Paulo var sagt upp með tilboði um skertan vinnutíma og verri kjör.

Öll eru þau sammála um að starfs­aðstæðum hafi farið hrakandi eftir að nýr hótel­stjóri var ráðinn síðastliðið haust. Rekstur hótelsins hefur gengið misjafnlega, en árið 2017 var það rekið með sjö milljóna króna tapi samanboriðvið 38 milljóna króna hagnaði árið áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Réttindabrot á vinnumarkaði

Mest lesið undanfarið ár