Ráðherra breytti reglugerð í samræmi við óskir Hvals hf.

Kristján Loftsson, eigandi Hvals, sendi Kristjáni Þór Júlíussyni tölvupóst með óskum sínum. „Þar hef ég sett inn breytingar þær, sem ég fer fram á að verði gerðar með rauðu,“ segir í tölvu­póstinum.

Fór eftir óskum Kristjáns Loftssonar
Fór eftir óskum Krist­jáns Lofts­sonar Breyt­ing­arnar sem Kirstján Þór Júl­í­us­son gerði á reglu­gerð um hvala­af­urðir var í sam­ræmi við óskir for­stjóra Hvals hf.

Kristján Þór Júlíusson, sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra, gerði á síðasta ári breytingu á reglugerð um hvalskurð í samræmi við óskir Kristjáns Lofts­sonar, forstjóra og helsta eiganda Hvals hf. Með reglugerðar­breytingunni felldi ráðherra úr gildi kröfu þess efnis að skera þyrfti hval undir þaki en ekki úti við. Umrædd reglugerð var sett árið 2009 og þar tiltekið að skurðar­flötur þar sem hvalur væri skorinn þyrfti að vera yfir­byggður. Þeirri reglugerð var aldrei fylgt.

Frétta­blaðið greinir frá þessu í morgun. Þar kemur fram að Kristján Loftsson hafi sent ráðherra tölvupóst 15. maí árið 2018 þar sem hann fór fram á að reglu­gerðinni yrði breytt. Í póstinum kom fram að Kristján Loftsson taldi reglu­gerðina úrelta þar eð Hvalur hefði þróað og notað aðferðir um margra ára skeið sem gefist hefðu mun betur en það sem mælt væri fyrir um í reglu­gerðinni. Þá hefði hann verið í viðræðum við síðustu tvo sjávar­útvegs­ráðherra um umræddar breytingar, sem báðir hefðu að sögn Kristjáns Lofts­sonar tekið vel í það þó ekki hafi orðið af breytingum.

Kristján Loftsson segir í póstinum til nafna síns ráðherrans að hann telji vonlaust að sækja um vinnslu­leyfi á komandi vertíð verði reglu­gerðinni ekki breytt og vísar hann sérstak­lega til 10. greinar hennar þar sem tiltekið var að skera þyrfti hval undir þaki. „Einnig set ég sem viðhengi reglu­gerðina Nr. 489 frá 28. maí 2009, en þar hef ég sett inn breytingar þær, sem ég fer fram á að verði gerðar með rauðu,“ skrifaði forstjóri Hvals hf. í póstinum til sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra.

Kristján Þór Júlíusson sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra undir­ritaði breytingu á reglu­gerðinni 25. maí 2018. Í fyrri útgáfu reglu­gerðarinnar sagði í annarri megin­grein 10. greinar: „Hval­skurður skal hafinn um leið og hvalurinn er kominn á land, á þar til gerðum yfir­byggðum skurðar­fleti.“ Eftir breytinguna hljóðaði sama grein svona: „Hval­skurður skal hafinn eins fljótt og auðið er eftir að hvalur er kominn á land á skurðar­fleti með viðeigandi vörnum sem koma í veg fyrir mengun afurða samkvæmt áhættu­mati sem rekstrar­aðili gerir.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstrinu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eftir­minnilega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tímabil“ fyrir Vinstri græn að fara í ríkis­stjórnar­samstarf með Sjálfstæðis­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíðinni þá þarf það nátt­úrlega að hafa afleiðingar fyrir flokk að miðla málum svo hressilega að það er ekkert eftir af hugsjónunum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nánast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raungerst. Flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum og hefur ekki sammælst um nýja forystu eftir brott­hvarf eins vinsælasta stjórn­málamanns landsins og flokkurinn skrapar botninn í fylgis­mælingum. Hvort flokkurinn sé nægilega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrýmingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hugsjóna­flokkur verður að borgara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síðustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trúverðug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokkurinn talaði áður skýrt á móti. Samhliða hefur róttækt fólk úr gras­rótinni yfirgefið Vinstri græn, kjósenda­hópurinn breyst, hratt gengið á pólitíska inneign Katrínar Jakobs­dóttur og fylgi flokksins hrunið. Þetta er fórnar­kostnaður þess að komast að völdum með áður yfir­lýstum pólitískum andstæðingum sínum.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár