Mynd: Efling

Svona vilja Stefán og Indriði breyta skattkerfinu: Lágtekjufólk greiði minna en hátekjufólk meira

Stefán Ólafsson og Indriði Þor­láks­son unnu skýrslu fyrir Eflingu þar sem lagðar eru fram ítar­legar til­lögur til að vinda ofan af stóru skatta­til­færsl­unni, ferl­inu þar sem tug­millj­arða skatt­byrði var létt af tekju­hæstu hópum íslensks sam­fé­lags og velt yfir á þá tekju­minni.

Stefán Ólafsson, félags­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, og Indriði H. Þor­láks­son, hag­fræð­ingur og fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóri, leggja til að þrepum í tekju­skatts­kerf­inu verði fjölgað um tvö eða þrjú. Per­sónu­af­sláttur hækki upp í 60 til 70 þús­und krónur á mán­uði og álagn­ing í neðsta þrepi verði lækkuð úr 36,94 pró­sentum niður í 32,50 pró­sent. Um leið verði álagn­ing í efsta þrepi hækkuð upp í 55 pró­sent og taki til tekna yfir 1.150.000 krónum á mán­uði. Með þessu yrðu skattar lækk­aðir á 90 pró­sent laun­þega.

Þetta er á meðal helstu til­lagna sem fram koma í nýrri skýrslu sér­fræð­ing­anna um skatta­mál sem unnin var að beiðni Eflingar stétta­fé­lags og kynnt var á Grand hótel í morgun.

Skýrslan ber yfir­skrift­ina Sann­gjörn dreif­ing skatt­byrðar: Hvernig leið­rétta má stóru skatta­til­færsl­una án þess að veikja vel­ferð­ar­kerfið og hefur að geyma ítar­lega umfjöllun um hvernig tug­millj­arða skatt­byrði hefur verið létt af tekju­hæstu hópum íslensks sam­fé­lags und­an­farna ára­tugi og velt yfir á þá tekju­minni með þeim afleið­ingum að með­al­skatt­byrði lág­tekju­fólks er nú mun hærri á Íslandi en gengur og ger­ist í þeim ríkjum sem við berum okkur saman við.

Telja óráð að tvöfalda persónuafsláttinn

Tillögur Stefáns og Indriða eru í sam­ræmi við þá sam­eig­in­legu afstöðu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar til breyt­inga á tekju­skatts- og bóta­kerf­inu sem mótuð var í efna­hags-, skatta- og atvinnu­mála­nefnd ASÍ undir for­ystu Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur, for­manns Eflingar. 

Athygli vekur að vikið er frá einu umdeildasta stefnu­mið­inu í skatta­málum sem fram kom í kröfu­gerð Starfs­greina­sam­bands­ins gagn­vart stjórn­völdum vegna kjar­ara­samn­inga, því mark­miði að „lægstu laun verði skatt­frjáls með tvö­földun per­sónu­af­sláttar sem verði síðan stig­lækk­andi með hærri tekjum“. 

Stefán og Indriði benda á að slík aðgerð yrði ann­að­hvort gríð­ar­lega kostn­að­ar­söm eða myndi krefj­ast mjög hárra jað­ar­skatta, sér­stak­lega á milli­tekju­hópa, meðan hæstu tekju­hóp­unum yrði hlut­falls­lega hlíft. 

Betra að byggja á hefðbundnu fjölþrepakerfi

„Þar eð leiðum þeim sem einkum byggja á hækkun per­sónu­af­sláttar (hvort sem er skerð­an­legur með hækkun tekna eður ei) fylgja of miklir ókostir vegna mik­illa jað­ar­skatta­á­hrifa eða mik­ils kostn­aðar, þá er það nið­ur­staða skýrslu­höf­unda að fara frekar leið fjöl­þrepa­kerfis í tekju­skatt­kerf­inu,“ skrifa þeir. „Með því er átt við að fjölga skatt­þrepum frá því sem nú er, í átt til þess sem algeng­ast er á Vest­ur­löndum.“ 

Til­lög­urnar er lúta að skatt­þrepum og álagn­ingu í tekju­skatts­kerf­inu eru eft­ir­far­andi:

– Stígandi tekju­skatt­lagn­ingar verði auk­inn með því að fjölga almennum skatt­þrepum í fjögur og með sér­stöku ofur­tekju­þrepi.

– Lægsta skatt­þrepið sem nái til lág­marks­tekna lækki sem kostur er. Lægra skatt­hlut­fall leiðir til hækk­unar á skatt­leys­is­mörkum og dregur auk þess úr jað­ar­sköttum líf­eyr­is­þega og þeirra sem fá bætur úr skatt­kerf­inu.

– Annað og þriðja skatt­þrep. Tekjubil og skatt­hlut­föll verði stillt af til að halda skatt­byrði efri með­al­tekju­hópa lítt breyttri frá því sem nú er. 

– Fjórða skatt­þrepið verði stillt af þannig að það leiði til nokkuð hærri skatta á háar tekjur.

– Tekið verði upp sér­stakt skatt­þrep á ofur­tekjur yfir t.d. fjór­földum með­al­tekjum laun­þega.

Samhliða þessum breyt­ingum telja Stefán og Indriði brýnt að hús­næð­is­stuðn­ings­kerfin (vaxta­bætur og húsa­leigu­bætur) verði end­ur­reist og barna­bætur látnar ná til þorra lág- og milli­tekju­hópa.

Hér má sjá samanburð á núverandi kerfi og því kerfi sem skýrsluhöfundar leggja til:

Með þessu myndi mán­að­ar­leg stað­greiðsla hjá lág­launa­fólki lækka um 20 til 29 þús­und krónur.

„Allir með tekjur að um 900 þús­und kr. á mán­uði fá skatta­lækkun sam­kvæmt til­lög­unum, þeir sem eru með tekjur á bil­inu 900 til um 1.300 þús­und fá litla breyt­ingu á skatt­byrði,“ skrifa Stefán og Indriði.

„Skatt­byrðin hækkar einkum hjá þeim sem eru þar fyrir ofan, það er tekju­hæstu fimm pró­sent fram­telj­enda. Skatt­byrði hátekju­hópa á Íslandi myndi þá nálg­ast það sem er hjá hátekju­hópum á hinum Norð­ur­lönd­unum,“ 

Svona yrði breyt­ingin á stað­greiðslu í krónum ef farin yrði sú leið að hækka per­sónu­af­slátt upp í 62 þús­und krónur á mán­uði:

Sólveig Anna Jóns­dóttirfor­maður Eflingar.

„Um 90% almenns launa­fólks fær skatta­lækkun sam­kvæmt þess­ari útfærslu, næstu 5% tekju­þega fá litla sem enga breyt­ingu en skatta­hækkun kemur einkum á tekju­hæstu 5% tekju­þega,“ segir í skýrsl­unni.

„Með þessu næst umtals­verð leið­rétt­ing á skatta­til­færslu síð­ustu 25 ára eða svo, en þó ekki til fulls. Þessi nið­ur­staða er innan ramma sam­eig­in­legrar stefnu ASÍ, en ljóst er að lengra þarf að ganga ef leið­rétta á skatta­til­færsl­una að fullu, en þá þarf einnig að skoða það í sam­hengi við fjár­mögnun þeirrar aukn­ingar á sam­neyslu sem orðið hefur og breyt­ingar á öðrum þáttum opin­berrar skatt­heimtu.“

Fram kemur að kostn­aður í formi tekju­taps hins opin­bera yrði 38 millj­arðar króna brúttó en hluti þess yrði end­ur­heimtur í formi auk­inna tekna af neyslu­sköttum og auk­innar veltu í efna­hags­líf­inu, enda myndi skatta­lækkun til lægri tekju­hópa vænt­an­lega skila sér í auk­inni neyslu.

„Fjár­mögn­un­ar­þörfin þarf ekki að vera meiri en um 30 millj­arðar nettó. Það mætti fjár­magna á auð­veldan hátt, til dæmis með nýt­ingu þeirra 14 millj­arða sem ríkið hefur þegar eyrna­merkt til skatta­lækk­ana og með því að taka til við­bótar um 16 millj­arða af núver­andi tekju­af­gangi á fjár­lögum (þannig að afgangur á fjár­lögum verði 13 millj­arðar í stað 29). Þetta er því mjög auð­velt að fram­kvæma við núver­andi aðstæður.“

Fjármagnstekjuskattur verði hækkaður, stóreignaskattur innleiddur og víðtæk auðlindagjöld tekin upp

Auk breyt­inga á tekju­skatts­kerf­inu leggja skýrslu­höf­undar til að fjár­magnstekju­skattur verði hækk­aður til sam­ræmis við það sem tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum. Þá verði tekju­skattur fyr­ir­tækja mið­aður við að sam­ein­aður skattur af hagn­aði fyr­ir­tækja og fjár­magnstekju­skattur verði hlið­stæður tekju­skatti og útsvari sjálf­stætt starf­andi af rekstr­ar­hagn­aði.

Indriði og Stefán leggja einnig til að tekin verði upp auð­linda­gjöld:

1. Auð­linda­gjöld í sjávarútvegi (veiði­gjöld, upp­boðs­tekjur) verði miðuð við að þjóðin fái í sinn hlut a.m.k. 75% af rentu (umfram­arði) í sjávarútvegi með veiði­gjöldum og/eða upp­boði á kvóta. Veiðigjöld verði til að byrja með hækkuð veru­lega og óháðum erlendum aðila verði falið að leggja mat á auð­lindaarð í sjávarútvegi sem frek­ari breyt­ingar verði byggðar á.

2. Auð­linda­gjald (orku­gjald) verði lagt á orkusölu til stóriðju sem mið­ist við mis­mun á verði til stóriðju hér á landi og verð á orku til iðn­aðar í Evrópu, að teknu til­liti til fjar­lægðar- áhrifa.

3. Lagt verði auð­linda­gjald á leyfi til nýtingar á öðrum náttúrulegum auð­lindum svo sem til fisk­eldis og námavinnslu.

4. Kannaðar verði leiðir til að leggja auð­linda­gjald (aðstöðugjald eða upp­boð) á þá aðila sem fengið hafa einkarétt til nýtingar á náttúruauð­lindum til ferða­þjónustu

Þá vilja skýrslu­höf­undar að lagður verði á stór­eigna­skattur með háu frí­eigna­marki. Til að girða fyrir leiðir til skatta­hag­ræð­ingar leggja þeir meðal ann­ars til að ákveðið lág­mark heild­ar­tekna (launa -og fjár­magnstekna) ein­stak­linga verði skatt­lagt sem almennar tekjur. Reglur um reiknað end­ur­gjald verði látnar ná til allrar atvinnu­starf­semi og fjár­mála­starf­semi ekki und­an­skilin eins og nú er. Þá verði tekjur og eigna­myndun ein­stak­linga í einka­hluta­fé­lögum sem ekki sinna raun­veru­legri atvinnu­starf­semi (sölu á vörum eða þjón­ustu) skatt­lögð hjá eig­endum þeirra í stað þess að eign­ar­halds­fé­lög sem ekki hafa með höndum atvinnu­starf­semi séu sjálf­stæðir skatt­að­ilar eins og nú er. Loks leggja skýrslu­höf­undar fram ítar­legar til­lögur er lúta að skatt­eft­ir­lit og eft­ir­fylgni rann­sókna og dóma.

Hér má lesa skýrsl­una í heild, en fjallað verður ítar­lega um hana í blaði Stund­ar­innar sem kemur út á morgun. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisfjármál

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár