Degi fyrir afplánun Eini degi áður en Sigurður Ein­ars­son hóf afplánun á Kvía­bryggju út af Al Thani-mál­inu seldi hann systur sinni eign­ar­hlut í ein­býl­is­húsi á Sel­tjarnesi en var gerður aft­ur­reka með það. Hann sést hér þegar hann hóf afplánun á Vernd Mynd: Heiða Helgadóttir

Eiginkona Sigurðar eignast aftur einbýlishúsið sem færðist til systur hans eftir gjaldþrotið

Eign­ar­hluti í ein­býl­is­húsi á Sel­tjarn­ar­nesi var eina eignin sem fannst í þrota­búi Sigurðar Ein­ars­sonar. Fyrir gjald­þrot sitt reyndi Sigurður að selja systur sinni húsið en var gerður aft­ur­reka með söl­una. Nú hefur kona Sigurðar eign­ast húsið aftur til fulls.

Eig­in­kona Sigurðar Ein­ars­sonar, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­manns Kaup­þings, hefur eign­ast aftur að fullu ein­býl­is­hús á Sel­tjarn­ar­nesi sem systir Sigurðar keypti af þrota­búi hans árið 2015. Kaupverð húss­ins var 95 millj­ónir króna og virð­ist það hafa verið greitt út í hönd, að minnsta kosti eru engin veð­bönd sem hvíla á hús­inu í dag. Þetta kemur fram í þing­lýstu afsali frá því í októ­ber 2018. 

Sigurður varð gjald­þrota árið 2015 og seldi þrotabú hans, sem Helgi Jóhann­es­son lög­maður stýrði, 50 pró­senta hlut í hús­inu í októ­ber árið 2015 til systur Sigurðar á 37 millj­ónir króna. Arndís seldi líka sinn eign­ar­hluta til syst­ur­innar. Húsið er því aftur komið í hendur þeirra hjóna, Sigurðar og Arndísar.

Stundin fjall­aði um við­skiptin með húsið árið 2015. Þar kom fram að við­skiptin með

húsið hefðu átt sér stað …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár