Bauð 35 þúsund króna byrjendalaun en gagnrýndi umræðu um félagsleg undirboð

„Held við séum fleiri en hún ein sem rekum okkar fyr­ir­tæki á heið­ar­legan máta og borgum laun eins og allir aðrir,“ segir eig­andi Jóreykja.

Bauð 35 þúsund króna byrjendalaun en gagnrýndi umræðu um félagsleg undirboð
Eigandi Jóreykja Gagn­rýndi félags­leg und­ir­boð en bauð laun langt undir samn­ingum sjálf. Mynd: Shutterstock

Eigandi hesta­leig­unnar Jóreykja ehf. á Sturlu­reykjum kvart­aði undan ósann­gjarnri umræðu um félags­leg und­ir­boð í hesta­brans­anum á Facebook en hefur sjálf boðið vinnu fyrir 35 þús­und króna byrj­enda­laun og reið­fatnað.

Nýlega birt­ust við­töl við Berg­ljótu Rist, hesta­leið­sögu­mann og eig­anda Íslenska hests­ins, í Sam­fé­lag­inu á Rás 1 og Kast­ljósi þar sem hún gagn­rýndi tregðu hesta­leigu­fyr­ir­tækja til að greiða starfs­fólki laun í sam­ræmi við kjara­samn­inga.

Vitnaði hún meðal ann­ars í umfjöllun Stund­ar­innar frá 29. mars þar sem fram kom að fjöldi íslenskra hesta­leiga spar­aði sér tugi millj­óna á hverju ári með félags­legum und­ir­boðum og öðl­að­ist þannig gríð­ar­legt sam­keppn­is­for­skot gagn­vart þeim fyr­ir­tækjum sem fylgja lögum og reglum.

„Þetta eru oft ungar stúlkur sem koma frá útlöndum og vilja kom­ast á hest­bak á Íslandi og eru til­búnar að gera þetta fyrir engan eða lít­inn pen­ing og þetta nýta atvinn­ur­rek­endur sér, nýta sér vin­sældir íslenska hests­ins og fá fólk til að vinna fyrir sig og taka svo launin þeirra,“ sagði hún.

Umræða um málið fór af stað á Facebook-hópnum Hestar og reið­menn og lagði meðal ann­ars Hrafn­hildur Guð­munds­dóttir, annar af eig­endum hesta­leig­unnar Jóreykja ehf. á Sturlu­reykjum, orð í belg. „Verð nú að við­ur­kenna að ég er alls ekki sam­mála,“ sagði hún og bætti við að sér þætti fárán­legt að setja alla í hesta­tengdri ferða­þjón­ustu undir sama hatt. „Held við séum fleiri en hún ein sem rekum okkar fyr­ir­tæki á heið­ar­legan máta og borgum laun eins og allir aðrir.“ 

„Við getum líka boðið þér fínan reiðfatnað“

Stundin fjall­aði um mál­efni hesta­leigu­fyr­ir­tækja í vor og hafði sam­band við tugi hesta­leigu­fyr­ir­tækja undir dul­nefn­inu Sara Larsen. Sara sagð­ist vera 19 ára hesta­kona frá Danmörku í leit að vinnu á Íslandi. Á meðal fyr­ir­tækja sem buðu Söru að koma og vinna hjá sér á kjörum langt undir kjara­samn­ingum og lág­marks­launum eru Sól­hestar í Borg­ar­gerði, Geysir hestar í Blá­skóga­byggð og Hesta­sport í Varma­hlíð.

Alhestar í Þor­láks­höfn buðu 50 þús­und krónur á mán­uði ásamt mat og húsa­skjóli og hjá hesta­leig­unum Hömlu­holti og Leiru­bakka eru launin enn lægri, eða 30 þús­und krónur á mán­uði 

Fyr­ir­tækið Jóreykir kom einnig fyrir í umfjöll­un­inni, en þegar Sara sendi starfs­um­sókn þangað svar­aði Hrafn­hildur Guð­munds­dóttir og bauð henni vinnu hjá þeim fyrir 35 þús­und króna byrj­enda­laun. „Svo sjáum við hvernig þér líkar þetta. Við getum líka boðið þér fínan reið­fatnað, t.d. reiðjakka, ef þú vilt,“ segir í tölvu­pósti Hrafn­hildar. Eftir að umfjöllun Stund­ar­innar barst í tal innan Facebook-hóps­ins fjar­lægði Hrafn­hildur athuga­semd sína um að það væri „fárán­legt að setja alla í hesta­tengdri ferða­þjón­ustu undir sama hatt“.

Mikið um ólaunaða vinnu hjá hestaleigum

Samkvæmt íslenskum lögum eru sjálf­boða­störf ein­ungis rétt­læt­an­leg þegar um er að ræða vinnu fyrir mann­úðar- eða hjálp­ar­sam­tök, verk­efni sem lúta að nátt­úru­vernd eða störf sem ellegar væru ekki unnin. Um önnur störf gilda ákvæði kjara­samn­inga.

Á vef Alþýðu­sam­bands Íslands er bent á að ólaunuð vinna við „efna­hags­lega starf­semi“ – það er fram­leiðslu og sölu á vöru eða þjón­ustu á mark­aði, oft­ast í hagn­að­ar­skyni og í sam­keppni við fyr­ir­tæki í sömu atvinnu­starf­semi – feli í sér óásætt­an­leg und­ir­boð.

Hesta­leigur eru nefndar sér­stak­lega sem dæmi um efna­hags­lega starf­semi þar sem mikið er um ólaun­aða vinnu í trássi við lög og reglur. Eins og bent er á í minn­is­blaði ASÍ um ólaun­aða vinnu frá 2015 er slík vinna nær aldrei talin fram til skatts og má því ætla að sam­eig­in­legir sjóðir verði af umtals­verðum fjár­munum vegna brot­anna í hesta­leigu­geir­anum. 

Fæði og hús­næði geta vissu­lega verið hluti end­ur­gjalda fyrir vinnu, þá með þeim hætti að atvinnu­rek­andi hafi heim­ild til að draga slíkt af launum starfs­manna. Slíkt er hins vegar háð miklum tak­mörk­unum og skil­yrð­ist af því að kjara­samn­ingum sé fylgt, ráðn­ing­ar­samn­ingur gerður og launa­seð­ill með við­eig­andi frá­drátt­ar­liðum gef­inn út. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Vinnumál

Mest lesið

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár