Níu af hverjum tíu vilja að Gunnar Bragi og Bergþór segi af sér

Samkvæmt nýrri könnun Maskínu virð­ist þjóð­inni ofbjóða talsmáti þing­mann­anna á Klaustri Bar. 86 pró­sent aðspurðra vilja að Sig­mundur Davíð segi af sér þing­mennsku og yfir þrír fjórðu vilja að allir þing­menn­irnir sex segi af sér.

Níu af hverjum tíu vilja að Gunnar Bragi og Bergþór segi af sér
Njóta ekki stuðn­ings Yfir­gnæf­andi meiri­hluti aðspurðra í nýrri könnun Maskínu vill að þing­menn­irnir sem heyr­ist í á leyni­upp­tök­unum segi af sér þing­mennsku.

Níu af hverjum tíu Íslend­ingum vilja að Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólason segi af sér þing­mennsku. Þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. 86 pró­sent aðspurðra vilja að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segi af sér og litlu færri vilja að þeir Karl Gauti Hjalta­son og Ólafur Ísleifs­son segi af sér. Tæplega þrír fjórðu aðspurðra eru þá þeirrar skoð­unar að Anna Kolbrún Árna­dóttir ætti að segja af sér.

Umræddir sex þing­menn Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins eru þeir sem sátu sam­sæti á Klaustri Bar 20. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Sam­skipti þing­mann­anna voru sem kunn­ugt er hljóð­rituð og má heyra ljótan munn­söfnuð og ill­mælgi þeirra í garð sam­þing­manna sinna auk ann­ars nafn­greinds fólks.

Þau Gunnar Bragi, Bergþór, Sig­mundur Davíð og Anna Kolbrún eru öll þing­menn Mið­flokks­ins en þeir Ólafur og Karl Gauti voru þing­menn Flokks fólks­ins þar til þeir voru reknir úr flokknum síð­ast­lið­inn föstu­dag. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Maskínu var lang lægst hlut­fall þeirra sem kusu Mið­flokk­inn í síð­ustu alþing­is­kosn­ingum á því að sex­menn­ing­arnir ættu að segja af sér.

Konur eru þá ein­arðri en karlar í þeirri afstöðu að þing­mönn­unum sex beri að segja af sér þing­mennsku. Þeir sem eru eldri en fimm­tugir eru heldur lík­legri til að styðja áfram­hald­andi þing­setu þing­mann­anna, 8 til 16 pró­sent fólks á þeim aldri eru and­víg því að þeir eigi að segja af sér en 2 til 10 pró­sent eru þeirrar skoð­unar í öðrum aldrus­hópum.

Þá kemur fram að ríf­lega 60 pró­sent aðspurðra segj­ast aldrei hafa orðið vitni að við­líka umræðum síð­ust tólf mán­uði og 19 pró­sent aðspurðra segj­ast sjaldan hafa orðið vitni að slíkri orð­ræðu. Einnig kemur fram að tæp­lega 87 pró­sent aðspurðra eru þeirrar skoð­unar að það hafi verið rétt hjá fjöl­miðlum að birta upp­tökur af sam­ræðum þing­mann­anna, eða upp­lýs­ingar úr þeim. Aðeins rétt ríf­lega 10 pró­sentum þótti það röng ákvörðun.

Svar­endur voru 1.311 tals­ins og komu úr Þjóð­gátt Mask­ínu. Könn­unin fór fram dag­ana 30. nóv­em­ber - 3. des­em­ber 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár