Ekki bara strákar sem skeita

Skeiter­í­þróttir hafa lengst af verið karllægt umhverfi. Nýverið var stofnað félag í Reykja­vík þar sem kven­kyns skeiterar eru í fyr­ir­rúmi.

Þegar ég stóð í fyrsta skipti ofan á rampi á hjóla­skaut­unum var ég hand­viss um að ég gæti aldrei skautað niður af honum án þess að í besta falli stórslasa mig. Þó svo að ég kynni að skauta og spil­aði meira að segja roller derby gerðu þeir þættir mig ekk­ert minna smeyk­ari fyrir því að fleygja mér fram af ein­hverjum rampi. En ég var ákveðin, ég ætl­aði að gera þetta og neydd­ist til að treysta á sjálfa mig. Það var ekk­ert annað að gera en að láta vaða og vona það besta.

Karllægt sport

Hug­myndin um skeitera hefur lengst af verið fléttuð þeirri af gaurum á hjóla­brettum, hlaupa­hjólum, BMX-hjólum og línu­skautum. Þetta umhverfi er karllægt, þó að breyt­ing sé að eiga sér stað smátt og smátt og sífellt fleiri konur láti til sín taka í sport­inu víða um heim. Ég man ekki eftir því að hafa nokkurn tíma …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár