Eftirgrennslan um heimildir af falli Hauks Hilmarssonar skilaði engu

Íslenska utan­rík­is­þjón­ustan kann­aði sann­leiks­gildi frá­sagna af falli Hauks. Óljóst hvaða heim­ildir liggja að baki stað­hæf­ingum tyrk­neskra fjöl­miðla. Ekkert komið fram sem stað­festir þær frá­sagnir.

Eftirgrennslan um heimildir af falli Hauks Hilmarssonar skilaði engu
Eft­ir­grennslan skil­aði engu Eft­ir­grennslan utan­rík­is­þjón­ust­unnar á því hvaða heim­ildir tyrk­neskir fjöl­miðlar byggðu fréttir sínar um fall Hauks Hilm­ars­sonar á skil­aði engu. Ekkert hefur komið fram sem stað­festir að Haukur sé lát­inn. Mynd: Af Facebook-síðu Benjamíns Julians

Íslenska utan­rík­is­þjón­ustan gerði til­raun til að kanna sann­leiks­gildi frá­sagna tyrk­neskra fjöl­miðla af því að Haukur Hilm­ars­son hefði fallið í Sýrlandi og að senda ætti lík hans til Íslands. Ekkert kom hins vegar út úr þeim eft­ir­grennsl­unum og óljóst er hvaða heim­ild eða heim­ildir lágu að baki stað­hæf­ingum tyrk­neskra fjöl­miðla. Ekkert hefur komið fram við rann­sókn máls­ins sem stað­festir að Haukur hafi lát­ist í Sýrlandi.

Fyrstu fréttir af máli Hauks voru með þeim hætti að stað­hæft var að hann hefði fallið í bar­dögum Tyrk­lands­hers við Kúrda í Afrin-hér­aði í norð­ur­hluta Sýrlands. Blaða­maður tyrk­neska fjöl­mið­ils­ins Daily Sabah vakti athygli á mál­inu á Twitter og í fram­hald­inu voru sagðar fréttir þessa efnis í tyrk­neskum fjöl­miðlum. Þá hafa borist upp­lýs­ingar um fall Hauks frá her­sveitum Kúrda sem Haukur barð­ist með. Hins vegar hefur ekki tek­ist að stað­festa að Haukur sé lát­inn né hefur tek­ist að benda á hvar lík hans væri þá að finna.

Aðstandendur Hauks skora á Katrínu að beita sér

Aðstand­endur Hauks og vinir hans hafa gagn­rýnt það sem þau kalla aðgerða­leysi íslenskra stjórn­valda við leit­ina að Hauki og einnig að þeim hafi ekki verið veittur aðgangur að öllum þeim gögnum sem aflað hafi verið við eft­ir­grennslan um málið. Á mánu­dag var birt opið bréf til Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, und­ir­ritað af 400 ein­stak­lingum, þar sem skorað var á hana að beita sér af meira afli í mál­inu. Þar segir meðal ann­ars að af þeim gögnum sem aðstand­endur Hauks þó hafi fengið og af sam­skiptum þeirra við utan­rík­is­ráðu­neytið „virð­ist sem athugun ráðu­neyt­is­ins hafi verið gerð með sem minnstri fyr­ir­höfn og með það fyrir augum að styggja ekki tyrk­nesk yfir­völd – þau sömu og talin eru hafa sært, hand­samað eða jafn­vel myrt Hauk. Líklegt er að í bak­landi Guðlaugs Þórs [Þórð­ar­sonar] sé ekki póli­tískur vilji til þess að mál­inu sé sinnt af heil­indum. Fjöl­skylda og vinir Hauks hafa því rétt­mætar ástæður til að ótt­ast að nú, eftir afhend­ingu gagn­anna, sé athugun Utan­ríki­ráðu­neyt­is­ins á afdrifum hans komin í blind­götu. Þess vegna íhugar nú hópur úr röðum aðstand­enda Hauks að fara til Afrin og leita hans þar.

Fjöl­skylda Hauks og vinir hafa rann­sakað málið eins kyrfi­lega og þeim er unnt. Þó hefur enn ekk­ert komið fram sem stað­festir hvað varð um Hauk. Hvorki hafa fund­ist ummerki um hann, lífs eða lið­inn, né hefur tek­ist að hafa uppi á sjón­ar­vottum sem geta stað­fest fréttir af afdrifum hans. Aftur á móti bendir margt til þess að í kringum fyrstu viku febr­úar hafi verið til­kynnt um hvarf hans eftir árás Tyrk­lands­hers á svæðið og í kjöl­farið hafi hans verið leitað í nær­liggj­andi þorpum og spít­ölum án árang­urs. Svo virð­ist sem ein­ungis þess vegna hafi hann verið álit­inn lát­inn.“

Vilja að kannað verði hvaðan upplýsingar tyrkneskra fjölmiðla komu

Þeir sem und­ir­rita bréfið skora á Katrínu að beita sér fyrir því að aðstand­endur Hauks fái full­nægj­andi aðgang að öllum gögnum máls­ins og að sótt verði um ferða­leyfi hjá Tyrk­neskum stjórn­völdum fyrir hóp fólks til að ferð­ast til Afrin-hér­aðs í leit að Hauki. Sömu­leiðis að reynt verði eftir öllum til­tækum leiðum að kom­ast að því hvaðan tyrk­neskir fjöl­miðlar hafi fengið upp­lýs­ingar um að Haukur hefði fallið, að lík hans væri í höndum Tyrkja og að senda ætti hann heim til Íslands, eins og greint var frá í fyrstu fréttum.

Óljóst hvar heimildirnar um fall Hauks eru upprunnar

Stundin óskaði svara um hið síð­ast­nefnda frá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, hvort utan­ríki­þjón­usta Íslands hefði grennsl­ast fyrir um hvaðan tyrk­neskir fjöl­miðlar hefðu fengið þær upp­lýs­ingar að Haukur væri lát­inn og að lík hans yrði sent til Íslands. Í svari frá Sveini H. Guð­mars­syni, upp­lýs­inga­full­trúa utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins kemur fram að ekk­ert hafi komið fram sem stað­festi fyrstu fréttir af afdrifum Hauks, hvað þá að tyrk­nesk yfir­völd hefðu lík hans í sinni vörslu.

„Óljóst er hvaða heim­ild er fyrir þeirri stað­hæf­ingu tyrk­neskra fjöl­miðla. Tyrknesk stjórn­völd hafa hins vegar frá upp­hafi lýst því yfir að Haukur væri ekki í þeirra haldi, hvorki lífs né lið­inn. Þetta kom til dæmis skýrt fram í sam­tali utan­rík­is­ráð­herra við varn­ar­mála­ráð­herra Tyrk­lands í síð­ast­liðnum mán­uði.“ Í sam­tali við Svein greindi hann frá því að leitað hefði verið til tyrk­neskra, kúrdískra og sýr­lenskra yfir­valda með það að marki að reyna að graf­ast fyrir um hvaðan umræddar upp­lýs­ingar kæmu en án árang­urs. Sömu­leiðis hefði verið leitað upp­lýs­inga hjá sam­fé­lögum Kúrda á Norð­ur­löndum en einnig án árang­urs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár