Heather og Micah Hún til­kynnti vinnu­veit­and­anum við Jök­ulsár­lón um ólétt­una fljót­lega eftir að hún komst að henni sjálf. Nokkru síðar var starfs­samn­ingi rift. Mynd: Heiða Helgadóttir

Ráðningarsamningi hennar var rift vegna óléttu

Ráðn­ing­ar­samn­ingi kanadískrar konu var rift þegar yfir­maður hennar komst að því að hún væri ólétt. Heather Menzies seg­ist vera ráð­þrota þar sem hún hefur nú ekki nægan tíma til að vinna sér inn fæð­ing­ar­or­lof hér á landi.

Í byrjun mars voru Heather Menzies og Micah Quinn í sjö­unda himni því ljóst var að parið átti von á sínu fyrsta barni í sept­em­ber. Heather hafði áður misst fóstur og var því hik­andi við að segja ást­vinum frá þegar þau komust að ólétt­unni mán­uði fyrr. Hinn 26. febr­úar hafði Micah leyst frá skjóð­unni og sent systur sinni skeyti. Þann 2. mars treysti Heather sér til þess að segja mömmu sinni frá því í tölvu­pósti. Þremur dögum síðar sendi hún yfir­manni sínum skeyti og færði honum fregn­irnar. Heather og Micah eru bæði frá Kanada en starfa á Íslandi.

Heather hafði fengið atvinnu­til­boð í jan­úar um að snúa aftur til Ice Lagoon og starfa þar aftur sem leið­sögu­maður á Jök­ulsár­lóni, auk þess að taka að sér mark­aðs­setn­ingu fyr­ir­tæk­is­ins. Hún var komin með und­ir­rit­aðan ráðn­ing­ar­samn­ing og beðið var eftir úrvinnslu á atvinnu­leyfi hennar. Yfir­maður Heather, Ingvar Þórir Geirsson, svar­aði sam­dæg­urs og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár