Mynd: Heiða Helgadóttir

Fólk á betra skilið

Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir hefur setið þögul hjá og fylgst með. Hún leiddi end­ur­reisn Íslands upp úr hrun­inu, en end­aði þann feril á því að eft­ir­maður hennar og sam­flokks­maður fór í upp­gjör við hana. Hún hefur verið hyllt erlendis sem hetja, en hér heima horfir hún upp á að völdin eru í höndum þeirra sem henni þykir síst eiga að fara með þau. „Við erum enn að upp­lifa leynd­ar­hyggju og óheið­ar­leika í póli­tík, spill­ingu,“ segir Jóhanna.

Þegar Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir steig til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra og end­aði feril sinn í stjórn­málum ákvað hún þaðan í frá að halda sig til hlés í umræð­unni og fylgj­ast með úr fjar­lægð.

Það fyrsta sem hún hafði heyrt, eftir að hún vék úr for­manns­stóli í Sam­fylk­ing­unni, var þakk­ar­ræða eft­ir­manns hennar, sem not­aði hana til að fara í upp­gjör við stefnu hennar og boða sættir við póli­tíska and­stæð­inga.

Hún hafði barist alla sína tíð fyrir jöfn­uði og vel­ferð þeirra verst stöddu, en yfir­gaf for­sæt­is­ráðu­neytið eftir að hafa séð tvo unga auð­menn mynda rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks. 

„Mér leið satt að segja ekki vel. Og ég spurði, hvað er eig­in­lega að ske í þjóð­fé­lag­inu?“ segir Jóhanna.

Hún þurfti að afhenda Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem hafði háð „heift­úð­uga“ og „grimma“ stjórn­ar­and­stöðu ásamt sjálf­stæð­is­mönnum, lyklana að for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Þetta var nokkrum mán­uðum eftir að hinn for­mað­ur­inn sem tók við taumunum, Bjarni Bene­dikts­son, hafði beint því til hennar „að skila lyklunum“.

„Ég tók því nú bara sem hverju öðru gríni,“ segir Jóhanna um yfir­lýs­ingu Bjarna. Hún var orðin þessu vön frá þeim tveimur, þótt hún hefði verið undr­andi yfir hörkunni í fyrstu, þar sem hún bjóst við meiri hóg­værð hjá með­limum flokks­ins sem bar mesta póli­tíska ábyrgð á þeim aðstæðum sem orsök­uðu efna­hags­hrunið kjör­tíma­bilið áður. 

„Þetta var mjög heift­úðug stjórn­ar­and­staða, mjög óbil­gjörn. Bæði Bjarni og svo Sig­mundur Davíð,“ segir hún. „Þeir voru að stoppa öll mál og stund­uðu algjört eyði­legg­ing­ar­starf á Alþingi. Ég hef aldrei séð annað eins, hvorki fyrr né seinna, hvernig þeir létu.“

 

Heift og hótanir

Fjögurra ára kjör­tíma­bilið, sem Jóhanna fékk til að leiða end­ur­reisn­ina, ein­kennd­ist af óvissu og erf­iði. Þau þurftu að finna leiðir til að skera niður og breyta sköttum. Mikil van­still­ing var í sam­fé­lag­inu. And­staðan var mikil, og fyrir utan stjórn­ar­and­stöðu Bjarna og Sig­mundar var skrifað um Jóhönnu í Morg­un­blaðið undir rit­stjórn fyrr­ver­andi for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Evr­ópu­þjóðir, Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn og Evr­ópu­sam­bandið vildu full­vissu um end­ur­greiðslur á Icesave. Á sama tíma lifði margt fólk í von og ótta um afkomu sína og vel­ferð. 

Einn karl­maður gekk upp að Jóhönnu og sagði: „Þú ert rétt­dræp.“ „Þetta var eitt af mörgum svona til­vikum,“ segir Jóhanna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár