Samráðsleysi við fatlað fólk

Samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks var full­gildur á síð­asta ári, án sam­ráðs við fatlað fólk. Enn á eftir að inn­leiða samn­ing­inn í íslensk lög og dóm­stólar dæma ekki sam­kvæmt honum.

Samráðsleysi við fatlað fólk
Gerard Quinn Mynd: Heiða Helgadóttir

Alþingi full­gilti Samning Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks þann 20. sept­em­ber á síð­asta ári, rúmum níu árum eftir að hann var und­ir­rit­aður, án sam­ráðs við fatlað fólk – þrátt fyrir að skýrt komi fram í sátt­mál­anum að það eigi að hafa náið sam­ráð við fatlað fólk þegar ákvarð­anir eru teknar um þeirra hagi. Sátt­mál­inn hefur enn ekki verið inn­leiddur í íslensk lög og dóm­stólar eru ekki farnir að dæma í sam­ræmi við sátt­mál­ann. Þá eru alvar­legar þýð­ing­ar­villur í samn­ingnum sem var full­gildur. 

„Mér hefur því miður ekki fund­ist vera póli­tískur áhugi eða metn­aður til að gera vel í þessum mála­flokki,“ segir Rannveig Trausta­dóttir, pró­fessor í fötl­un­ar­fræði við Háskóla Íslands. 

Stundin fylgd­ist með fundi full­trúa hags­muna­sam­taka fatl­aðs fólks með dr. Gerard Quinn, pró­fessor og mann­rétt­inda­lög­manni, sem tók þátt í gerð Samnings Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. Á fund­inum var meðal ann­ars farið yfir hlut­verk fatl­aðs fólks við …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár