Sátt Anna Krist­jáns­dóttir hefur lifað sínu lífi sem karl og seinna kona. Hún barð­ist eins og ljón fyrir því að leið­rétta kyn sitt og það tókst. Á lífs­leið­inni hefur hún tek­ist á við ein­elti og alls kyns hindr­anir við að fá að vera kona. Mynd: Heiða Helgadóttir

Togarajaxlinn sem var kona

Anna Krist­jáns­dóttir var lengi kona í karl­manns­lík­ama. Dreng­ur­inn Kristján klæddi sig í kven­manns­föt og leyndi því að hann var stúlka. Gekk í hjóna­band og eign­að­ist þrjú börn. Laum­að­ist í föt eig­in­kon­unnar. En konan varð á end­anum yfir­sterk­ari og fór í kyn­leið­rétt­ingu. Anna er sátt í dag eftir að hafa sigr­ast á erf­ið­leikum við að fá að lifa sem trans­kona.

„Ég hafði gaman af því að klæða mig í kjóla sem barn. Æsku­fé­lagi minn hafði þessa sömu þörf. Hann var sendur til geð­læknis á ung­lings­ár­unum. Ég fékk sjálf við­vörun um að ég yrði að leita lækn­inga. Það hefur enga þýð­ingu. Þetta er ekki sjúk­dómur,“ segir Anna Krist­jáns­dóttir trans­kona, sem varð annar Íslend­ing­ur­inn til að láta leið­rétta kyn sitt og ruddi braut­ina fyrir þeim sem á eftir komu. Í dag hafa um 40 Íslend­ingar látið leið­rétta kyn sitt. Fæstir þeirra hafa sagt sögur sínar opin­ber­lega. Þótt mestu for­dóm­arnir séu að baki eru þeir þó enn til staðar. Anna hefur svo sann­ar­lega fengið að finna fyrir þekk­ing­ar­leys­inu og aðkasti fólks sem telur hana vera afbrigði­lega. En þetta hefur þó breyst í seinni tíð.

Anna segir bar­áttu­sögu sína í bók­inni Anna, eins og ég er, sem Guðríður Har­alds­dóttir skráði.

Stúlka í líkama drengs

Anna fædd­ist sem drengur og var skírð …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Trans fólk

Trans manni vísað úr Laugardalslaug fyrir að nota karlaklefa
ÚttektTrans fólk

Trans manni vísað úr Laug­ar­dals­laug fyrir að nota karla­klefa

Starfs­fólk Laug­ar­dals­laugar fór fram á að trans mað­ur­inn Prodhi Manisha not­aði ekki karla­klefa laug­ar­innar, jafn­vel þótt mann­rétt­inda­stefna borg­ar­innar taki skýrt fram að það sé óheim­ilt að mis­muna fólki eftir kyn­hneigð, kyn­vit­und, kyntján­ingu eða kynein­kennum. Formaður mann­rétt­inda- og lýð­ræð­is­ráðs vill leyfa kyn­vit­und að ráða vali á bún­ings­klefum í sund­laugum.
„Ég er ekki kona“
MyndirTrans fólk

„Ég er ekki kona“

Prodhi Manisha er pankyn­hneigður trans­maður sem jafn­framt er húman­isti utan trú­fé­lags. Þessi ein­kenni hans voru grund­völlur þess að honum var veitt staða flótta­manns á Íslandi. Hann var skráður karl­maður hjá Útlend­inga­stofnun á meðan hann hafði stöðu hæl­is­leit­anda en það breytt­ist þegar honum var veitt hæli. Nú stendur ekki lengur karl á skil­ríkj­unum hans, heldur kona. Það segir hann segir ólýs­an­lega sárs­auka­fullt eftir alla hans bar­áttu. Hann leitar nú réttar síns.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár