Tveir fundir og tvær sölur Bjarni Bene­dikts­son seldi hluta­bréf sín í Glitni tveimur dögum eftir að hafa fundað með banka­stjóra Glitnis um stöðu banka­kerf­is­ins í febr­úar 2008. Hinn 2. októ­ber seldi hann eignir sínar í Sjóði 9 eftir að hafa setið neyð­ar­fund um sölu Glitnis fjórum dögum áður. Mynd: Heiða Helgadóttir

Seldi í Sjóði 9 sama dag og neyðarlögin voru sett

Bjarni Benediktsson, þáverandi þingmaður og núverandi forsætis­ráðherra, seldi allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dagana 2. til 6. október árið 2008. Þann 6. október miðlaði hann upplýsingum um störf FME til framkvæmda­stjóra hjá Glitni. Ný gögn varpa ljósi á hlutabréfa­sölu Bjarna í Glitni í febrúar 2008 en hann fundaði með banka­stjóra Glitnis tveimur dögum áður en hann byrjaði að selja bréfin.

Bjarni Benediktsson, núverandi forsætis­ráðherra og þáverandi alþingis­maður, seldi fyrir rúmlega 50 milljónir króna í  Sjóði 9 hjá Glitni banka dagana 2. til 6. október árið 2008 og bjargaði þannig sjálfum sér frá því að tapa peningum í banka­hruninu dagana á eftir. Bjarni hafði á þessum tíma, vegna stöðu sinnar sem þingmaður, aðgang að upplýsingum um raun­verulega stöðu Glitnis vegna þátttöku sinnar á fundum um slæma stöðu bankans og fjármála­kerfisins í heild. 

Sama dag, 6. október, miðlaði Bjarni upplýsingum um vinnu Fjármála­eftirlitsins í aðdrag­anda banka­hrunsins til framkvæmda­stjóra hjá Glitni, sem er vinur hans. Faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson, og föður­bróðir hans, Einar Sveinsson, seldu einnig  í Sjóði 9 dagana fyrir banka­hrunið 2008. 

Upplýsingarnar um sölu Bjarna Benedikts­sonar og ættingja hans á eignunum í Sjóði 9 og tölvupósts­samskiptin við starfs­mann Glitnis koma fram í gögnum innan úr Glitni banka sem Stundin hefur undir höndum og vinnur úr í samstarfi við Reykjavík Media og breska blaðið Guardian.

„Ég átti á sínum tíma eitthvað í Sjóði 9 en ég man ekki eftir því að það hafi verið eitthvað sem mig rekur minni til að hafi skipt einhverju máli.“

Í viðtali í þættinum Víglínunni á Stöð 2 í desember í fyrra sagði Bjarni Benediktsson, aðspurður um hvort hann sjálfur hefði átt í Sjóði 9 og selt eitthvað sjóðnum dagana fyrir banka­hrunið: „Ekkert sem skiptir máli. Ég átti á sínum tíma eitthvað í Sjóði 9 en ég man ekki eftir því að það hafi verið eitthvað sem mig rekur minni til að hafi skipt einhverju máli.“

Bjarni svaraði spurningunni því hvorki játandi né neitandi. Ljóst er hins vegar að hann seldi fyrir umræddar 50 milljónir. 

Gengið frá söl­unni 2. októ­berGengið var frá sölu Bjarna á hlut­deild­ar­skír­teinum hans í Sjóði 9 þann 2. októ­ber í kerfum Glitnis eins og þessi mynd mynd sýnir. Salan átti hins vegar ekki að ganga í gegn fyrr en 6. októ­ber.

„Búið að losa Sj9.“

Bjarni sat neyðarfundinn   

Þegar Bjarni seldi þessar eignir sínar hafði íslenska ríkið sagst ætla að yfirtaka 75 prósenta hlut í Glitni þann 29. september 2008 með því að leggja bankanum til nýtt hlutafé upp á 84 milljarða. Margir róuðust þó við inngrip ríkisins í Glitni og í gang fóru viðræður um sameiningu fjármála­fyrirtækja, til dæmis Lands­bankans og Glitnis.  Óróinn og spennan í fjármála­kerfinu og samfélaginu var hins vegar mikil.

Bjarni, sem á þessum tíma var meðal annars í efnahags- og skatta­nefnd, sat fundi á þessum tíma þar sem erfið staða Glitnis var rædd. Hann var einn þriggja þingmanna Sjálfstæðis­flokksins sem sat neyðar­fund um framtíð Glitnis í höfuð­stöðvum Stoða, stærsta hluthafa Glitnis, nóttina áður en íslenska ríkið fékk bankann í fangið þann 29. september 2008. Frá þessari aðkomu Bjarna var greint í skýrslu rann­sóknar­nefndar Alþingis. Á fundinum kom fram að staða Glitnis væri „gríðar­lega alvarleg“ eins og haft var eftir einum fundar­manni í skýrslunni. 

Seldi fjórum dögum eftir fundinn

Bjarni útskýrði veru sína á neyðar­fundinum með þeim orðum að Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnar­formaður Glitnis, hefði beðið hann að sitja fundinn: „Stjórnar­formaður Glitnis [Þorsteinn Már Baldvinsson] óskaði eftir því við Kristján Þór Júlíusson að hann, ég og Illugi kæmum til fundar við hann í þeim tilgangi að útskýra hvað væri að gerast í bankanum og samskiptum hans við stjórn­völd. Við fórum þrír á fundinn seint á sunnudags­kvöldið, ég hygg að það hafi verið milli kl. 11 og 12, og þar gerði Þorsteinn Már grein fyrir sjónar­miðum bankans vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem var uppi. Þessi fundur stóð ekki lengi en á honum voru einnig Lárus Welding og lögmaður bankans. Megin­tilefni fundarins var ósk bankans um að fá að upplýsa okkur um sína hlið mála. Við þeirri beiðni var sjálfsagt að verða.“

Bjarni sat fundinn sem þingmaður og hafði í krafti þeirrar stöðu sinnar aðgang að upplýsingum um stöðu Glitnis beint innan úr bankanum sjálfum. Staða Glitnis á þessum tíma var einföld, svo vitnað sé í tölvupóst sem Össur Skarp­héðinsson sendi til Þórunnar Svein­bjarnar­dóttur umhverfis­ráðherra aðfara­nótt 29. september: „Kostirnir voru að láta Glitni fara í þrot eða „beila“ hann út. 

Fjórum dögum eftir að hafa setið þennan neyðar­fund um stöðu Glitnis 28. september, þann 2. október 2008, byrjaði Bjarni Benediktsson að selja hlutdeildar­skírteini sín í Sjóði 9 hjá Glitni. 

Vitneskja á vitorði fárra

Á þessum tíma lá þó ekki fyrir að  sett yrðu neyðarlög á Íslandi og að allt banka­kerfið myndi hrynja til grunna. Raunar hafði það komið mörgum í opna skjöldu þegar Geir H. Haarde tilkynnti á blaðamanna­fundi, rétt fyrir miðnætti þann 5. október, að ekki væri talin þörf á sérstökum aðgerða­pakka vegna ástands fjármála­kerfisins. Líkt og loforð ríkisins um hlutafé fyrir Glitni höfðu gert nokkrum dögum áður róuðu orð Geirs marga.

Vinna hafði hins vegar staðið yfir í Fjármála­eftirlitinu og viðskipta­ráðuneytinu við gerð frum­varpsins til neyðar­laganna í nokkra daga þegar þetta var og voru utan­aðkomandi lögmenn meðal annars kallaðir til þeirrar vinnu, eins og fram kemur í skýrslu rann­sóknar­nefndar Alþingis. 

Þegar markaðir voru opnaðir mánudaginn 6. október var það því aðeins á vitorði þröngs hóps úr stjórn­kerfinu og viðskipta­lífinu hver stærðar­gráða vandi íslenska fjármála­kerfisins var. Í hádeginu 6. október var sagt frá því í fréttum að Fjármála­eftirlitið hefði stöðvað viðskipti með hlutabréf viðskipta­bankanna þriggja og annarra fjármála­fyrirtækja. 

Klukkan 16, eftir lokun markaða þann 6. október, hélt Geir H. Haarde forsætis­ráðherra ræðu sína þar sem hann bað Guð að blessa Ísland og dagana á eftir yfirtók Fjármála­eftirlitið Glitni og Lands­bankann, Glitni þann 7. október og Kaupþing tveimur dögum síðar. Banka­hrunið á Íslandi var skollið á.  

Gekk frá sölunni 2. október

Síðasta sala Bjarna á eignum sínum í Sjóði 9 átti sér því stað sama dag og Geir H. Haarde hélt fræga ræðu sína og neyðar­lögin voru sett. Þennan dag seldi Bjarni hlutdeildar­skírteini í Sjóði 9 fyrir 21 milljón króna en þetta var síðasti dagurinn þar sem opið var fyrir viðskipti með eignir í Sjóði 9. Bjarni hafði reyndar ekki mikinn tíma til þess að selja þennan dag þar sem sjóðnum var lokað klukkan 11.29 en þá ákvað Fjármála­eftirlitið að loka fyrir öll viðskipti með hlutabréf íslensku viðskipta­bankanna þriggja. Bjarni hafði því einungis tímann frá opnun markaða þann daginn og fram til klukkan 11.29 til að selja eignirnar í Sjóði 9. 

Samkvæmt tölvu­póstum og viðskipta­kvittunum frá Glitni gekk Bjarni frá sölunni í Sjóði 9 fimmtudaginn 2. október en tekið var fram að hún ætti ekki að ganga í gegn fyrr en mánudaginn 6.  

Þann 2. október 2008, klukkan 20.49, sendi starfs­maður í einka­banka­þjónustu Glitnis tölvupóst til þeirrar deildar Glitnis sem sá um viðskipti með Sjóð 9. Efni tölvu­póstsins var: „Losun á Bjarna Ben 7829 (ekki fyrr en 6.10.)“ Í tölvu­póstinum stóð.  Hæ. Fæ ég leyfi á að selja sj 9 21.000.000 og kaupa í sj 5 og 7 í staðin.“ Þetta var samþykkt morguninn eftir, föstu­daginn þriðja, og fékk starfs­maður einkabankaþjónstunnar eftir­farandi tölvupóst frá starfs­manni í skjala­deild Glitnis: „Búið að losa Sj9.“ 

Áður hafði Bjarni selt hlutdeildar­skírteini í Sjóði 9 í þrennum viðskiptum fyrir tæplega 30 milljónir króna þann 2. október.  Auk þessa hafði Bjarni selt eignir upp á 30 milljónir króna í skuldabréfa­sjóðnum Sjóði 1 hjá Glitni þann 24. september 2008 og keypti hann norskar krónur fyrir upphæðina. Þessar 30 milljónir setti Bjarni í norskar krónur. 

Einn af stjórnar­mönnunum í Sjóði 9, Illugi Gunnarsson, þáverandi þingmaður Sjálfstæðis­flokksins, var einn nánasti samstarfs­maður Bjarna og skrifuðu þeir tveir meðal annars fræga grein í Morgun­blaðið saman í febrúar 2008. Í greininni fjölluðu þeir um stöðuna í íslenska banka­kerfinu.  

„Bjarni ben segir að … fme séu á skrilljón að vinna í þessu núna … einhver að tala við Jónas?“ 

Miðlaði upplýsingum um störf FME til Glitnis

Klukkan 14.15 þann 6. október sendi Einar Örn Ólafsson, framkvæmda­stjóri fjár­festingar­banka­sviðs Glitnis og vinur Bjarna Benedikts­sonar, eftir­farandi tölvupóst á Atla Rafn Björnsson, aðstoðar­mann Lárusar Weldings, banka­stjóra Glitnis: „Bjarni ben segir að … fme séu á skrilljón að vinna í þessu núna … einhver að tala við Jónas?“ Með Jónasi vísaði Einar Örn til Jónasar Fr. Jónssonar, forstjóra FME. 

Ekki kemur fram um hvað nákvæmlega Einar Örn er að tala í tölvu­póstinum. Þennan dag var Fjármála­eftirlitið hins vegar að taka ákvörðun um hver framtíð Glitnis yrði og hvort raunhæft væri fyrir ríkið að efna hlutafjár­loforðið frá 29. september eða ekki. Ætlaði ríkið að „beila“ bankana út eða ekki, svo vitnað sé í orð Össurar Skarphéðinsssonar um stöðuna.

Stjórn Glitnis sendi Fjármála­eftirlitinu bréf þennan dag með þeirri beiðni að hluthafa­fundur Glitnis yrði fluttur til þriðjudagsins 7. október 2008 vegna þess að Glitni vantaði fjármagn til að greiða lán þann daginn og þurfti því fjár­munina frá íslenska ríkinu.

Í skýrslu rann­sóknar­nefndar Alþingis er fjallað um þetta og segir að svar fjármála­ráðuneytisins við erindi stjórnar Glitnis hafi borist klukkan 23 þann 6. október og að það hafi verið á þá leið að ekki væri hægt að svara spurningunni um hluthafa­fundinn þann daginn. Í rann­sóknar­skýrslunni kemur jafnframt fram að lögmenn sem unnu greinar­gerð um forsendu­brestinn í hlutafjár­loforði ríkisins út af slæmri stöðu Glitnis hafi einnig unnið að bréfi þar sem hlutafjár­loforðinu var rift og að það hafi verið dagsett þann 7. október. Glitnir var svo yfir­tekinn af Fjármála­eftirlitinu þriðjudaginn 7. október eftir setningu neyðar­laganna.

Mikið gekk því á þennan dag sem Bjarni og Einar Örn áttu í samskiptum um vinnu og aðgerðir Fjármála­eftirlitsins. Hlutafjár­aukning íslenska ríkisins í Glitni var síðasta mögulega hálm­stráið fyrir bankann til að forðast það að hann yrði yfir­tekinn af Fjármála­eftirlitinu að öllu leyti með tilheyrandi tapi fyrir hluthafa og viðskipta­vini Glitnis í einhverjum tilfellum. Upplýsingar um stöðu málsins hjá FME gátu hins vegar verið gulls ígildi á þessum tíma þar sem einungis tveir kostir voru í stöðunni fyrir Glitni. Ekkert var heldur ljóst um það á þessum tíma hversu mikið tap eigenda hlutdeildar­skírteina í Sjóði 9 yrði.

„Allir skynsamir fjárfestar hefðu verið að íhuga að selja á þessum tíma.“

Tveir fundir og tvær sölurBjarni Bene­dikts­son seldi hluta­bréf sín í Glitni tveimur dögum eftir að hafa fundað með banka­stjóra Glitnis um stöðu banka­kerf­is­ins í febr­úar 2008. 2. októ­ber seldi hann eignir sínar í Sjóði 9 eftir að hafa setið neyð­ar­fund um sölu Glitnis fjórum dögum áður.

Engar innherja­upplýsingar segir Bjarni

Bjarni Benediktsson segir í samtali við blaðamann The Guardian, sem vinnur að málinu með Stundinni, að hann hafi selt eignir í Sjóði 9 í aðdragana banka­hrunsins. Hann segist ekki hafa búið yfir neinum innherja­upplýsingum um neyðar­lögin á þessum tíma og að sölur  í Sjóði 9 hafi verið rann­sakaðar og ekkert hafi komið út úr þeim rann­sóknum. Svo segir Bjarni: „Allir skynsamir fjár­festar hefðu verið að íhuga að selja á þessum tíma.“ Bjarni vill ekki gefa nákvæmar upplýsingar um tíma­setningar og upphæðir í málinu.

Aðspurður um samtalið við Einar Örn Ólafsson segir hann „Ég hafði enga vitneskju um neyðar­lögin. Ég bjó ekki yfir neinum trúnaðar­upplýsingum. Það getur verið að ég hafi hringt í hann en ég man ekki eftir því. En, og það sem er mikil­vægast, þá hafði ég engar trúnaðar­upplýsingar fram að færa á þessum tíma.“ 

Bjarni segir jafnframt aðspurður að hann skilji af hverju fólki kunni að þykja viðskipta­umsvif hans á árunum fyrir hrunið að vera einkennileg og óviðeigandi. „Skömmu eftir þessa atburði sagði ég að það væri ekki viðeigandi fyrir mig að halda áfram að starfa í stjórn­málum og viðskiptum á sama tíma. Ég seldi öll mín hlutabréf, hætti starfi í stjórnum og einbeitti mér að mínum pólitíska ferli. Þetta hefur allt verið rannsakað og ekki einu sinni hefur verið haft samband við mig út af þessu.“

Stundin gerði tilraunir til að ná í Bjarna Benediktsson í gærkvöldi til að spyrja hann frekari spurninga um málið en án árangurs. Beiðni blaðsins um samtal við Bjarna hefur ekki verið svarað.

Faðir Bjarna og föðurbróðir seldu líka 

Faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson, og föður­bróðir hans seldu líka eignir sínar í Sjóði 9 í aðdrag­anda  banka­hrunsins á Íslandi. Benedikt seldi eignir í Sjóði 9 fyrir tæplega 260 milljónir króna þann 27. ágúst 2008 í gegnum félag sitt Hafsilfur eignarhalds­félag ehf. Einar Sveinsson seldi í Sjóði 9 sama dag og Bjarni, þann 6. október fyrir rúmlega 1020 milljónir króna í tveimur færslum. Þetta gerði Einar í gegnum einka­hlutafélag sitt Hrómund ehf. Þá kom fram í Frétta­blaðinu í desember í fyrra að Benedikt Sveinsson hefði innleyst eignir í Sjóði 9 og millifært 500 milljónir af reikningi sínum í Glitni til Flórída þann 26. september 2008.

Þremenningarnir björguðu því tals­verðum fjármunum úr Sjóði 9 á þessum tíma þegar á harðbakkann var farið að slá í íslenska banka­kerfinu. Sjóðs­félagar í Sjóði 9 fengu á endanum, í lok október 2008, greitt út 85,12 prósent af þeim inni­stæðum sem þeir áttu í sjóðnum þann 6. október. En tekið skal fram að þetta var allsendis óljóst á þeim tíma sem Fjármála­eftirlitið velti fyrir sér næstu skrefum í Glitnis­málinu þann 6. október þar sem sem Sjóður 9 var áhættu­fjár­festinga­sjóður. 

Hefðu fengið minna til baka

Miðað við endanlegar endur­heimtur sjóðs­félaga í Sjóði 9 hefði Bjarni Benediktsson fengið greiddar rúmlega 42,8 milljónir króna vegna eignar sinnar úr Sjóði 9 þann 30. október 2008 en í stað þess seldi hann dagana fyrir banka­hrunið fyrir 50,3 milljónir króna. Munurinn nemur 7,5 milljónum króna. 

Benedikt Sveinsson, eða eignarhalds­félag hans, Hafsilfur ehf., hefði sömuleiðis fengið rúmlega 136 milljónir króna út úr Sjóði 9 í lok október ef hann hefði ekki selt hlutdeildar­skírteini sín í lok ágúst 2008. Í staðinn fékk hann rúmlega 160 milljónir króna og er munurinn 24 milljónir króna. Eignarhalds­félag Einars Sveins­sonar hefði fengið rúmlega 871 milljón út úr Sjóði 9 í lok október en í staðinn fékk það ríflega 1023 milljónir króna. Munurinn þar á milli eru 152 milljónir króna. 

Heildar­upphæðin sem þeir þrír forðuðu sér frá því að tapa með sölu hlutdeildar­skír­teinanna í Sjóði 9 nemur því samtals rúmlega 183 milljónum króna. 

Átti í samskiptum við stjórnendur sjóðanna

Í gögnunum er að finna tölvu­pósta frá 9. október 2008, þremur dögum eftir að Bjarni seldi í Sjóði 9, þar sem Bjarni Benediktsson skiptist á skoðunum við framkvæmda­stjóra og stjórnar­formann Íslands­sjóða sem ráku Sjóð 9, Öglu Hendriks­dóttur og Eggert Þór Krist­ófersson, um „hugmynd að verndun sparifé almennings“.  Agla Hendriks­dóttir var hvata­maður að samskiptunum og sendi tölvupóst á Bjarna, Eggert og einnig Illuga Gunnarsson, sem sat í stjórn Glitnis­sjóða. Hún vildi funda með þeim um málið. „Ég hef hug á að eiga fund með ykkur í dag, ásamt Eggerti Þór Krist­óferssyni stjfm. Glitni Sjóða, út af tveimur hugmyndum, sem byggja á því að vernda sparifé almennings og lífeyris­sjóða.“

Bjarni svaraði tölvu­pósti Öglu, spurði hvenær fundurinn væri og sendi drög að frumvarpi um fjár­veitingar úr ríkis­sjóði vegna bankarhrunsins með erindi sínu: „Að neðan er hugmynd að frumvarpi sem unnið hefur verið af nokkrum þing­mönnum með lögmönnum. Við höfum reynt að fá það í frekari vinnslu í gegnum ráðuneyti og vonandi hreyfist málið eitthvað en það gerist því miður hægt við þessar aðstæður.“ 

Á þeim tíma sem þetta var rætt var Bjarni sjálfur búinn að vernda sitt sparifé með því að selja eignir sínar í Sjóði 9. 

Bjarni sagði alla hafa getað selt

Þegar Bjarni var spurður að því í Víglínunni í fyrra hvort allir hafi nokkuð getað selt í Sjóði 9 dagana fyrir banka­hrunið sagði hann: „Sjóður 9 var örugglega opinn öllum þar til hann var lokaður öllum. Ef ég man rétt þá var Sjóður 9 lokaður í tæpan mánuð en opnaði svo aftur. En þá höfðu réttindin í honum líka skerst.“ 

Tæknilega séð er þetta rétt hjá Bjarna. Munurinn á stöðu sjóðs­félaga í Sjóði 9 var hins vegar í einhverjum tilfellum að sumir þerra höfðu miklu betri aðgang að upplýsingum um stöðu Glitnis en aðrir. Fjölmargir töpuðu því háum fjárhæðum á fjár­festingum sínum í Sjóði 9. 

Átti 165 milljónir í Sjóði 9

Þessi viðskipti Bjarna og náinna ættingja hans með eignir í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hrunsins bætast við viðskipti Bjarna og föður hans með hlutabréf í Glitni í febrúar árið 2008. 

Sagt var frá þessum viðskiptum Bjarna og Benedikts í DV í mars 2011. Í viðtali við DV vildi Bjarni ekki svara því af hverju hann hefði selt bréfin á þessum tíma: „Ég mun ekki tjá mig frekar við þig um mín persónu­legu fjármál.“

Gögnin sem Stundin hefur undir höndum varpa frekara ljósi á þessi viðskipti því þar kemur fram að Bjarni hafi selt bréf sín í Glitni dagana 21. til 27 febrúar. Þá seldi Bjarni hlutabréf í Glitni fyrir rúmlega 119 milljónir króna  í fimm viðskiptum og hélt eftir bréfum sem voru rúmlega 3 milljóna króna virði samkvæmt viðskipta­yfirliti hans.  Í lok janúar­mánaðar voru hlutabréf Bjarna tæplega 152 milljóna króna virði.

Í gögnunum kemur fram að Bjarni hafi notað hluta sölu­hagnaðar hluta­bréfanna í Glitni til að kaupa hlutdeildar­skírteini í Sjóði 9 dagana 26. og 28. febrúar fyrir tæplega 90 milljónir króna. Í mars þetta ár átti Bjarni 165 milljónir króna í Sjóði 9 og var stofninn í eigna­safni hans í bankanum en þá var hann með 213 milljónir króna í eigna­stýringu þar.

Fundaði með bankastjóranum tveimur dögum áður

Dagsetningarnar á sölu Bjarna á hluta­bréfum sínum í Glitni eru áhuga­verðar því tveimur dögum áður en hann byrjaði að selja hlutabréf sín, þann 19. febrúar,  funduðu hann og Illugi Gunnarsson með Lárusi Welding, banka­stjóra Glitnis.

Í gögnunum er að finna tölvu­pósta um þennan fund þar sem upplýsinga­fulltrúi Glitnis, Már Másson, sendir Lárusi eftir­farandi tölvupóst: „Illugi og Bjarni vilja gjarnan hitta thig a stuttum fundi. A eg ekki ad bidja Aslaugu ad finna tima a thridjudag? Held thad væri gott ef Alexander væri med a fundinum.“ Lárus vildi upphaf­lega ekki hitta Illuga og Bjarna þann dag, þriðjudaginn 19. febrúar, en Már vildi það endilega: „held þó að það væri gott ef þú getur gefið þér 45min í að hitta þing­mennina á þriðjudaginn.“ Lárus samþykkti þetta.  

Byrjaður að selja þegar greinin birtist

Í gögnunum kemur ekki fram hvað fór fram á fundi þeirra Lárusar og Bjarna og Illuga. Ljóst er hins vegar að Bjarni fór frá því að eiga rúmlega 150 milljóna króna hlut í Glitni í byrjun febrúar í að eiga rúmlega 3 milljóna króna hlut í bankanum eftir að hann fundaði með banka­stjóranum.  

Þá er líka ljóst að á sama tíma og Bjarni og Illugi skrifuðu grein sína frægu um erfiða stöðu íslenska banka­kerfisins þann 26. febrúar var Bjarni að ljúka við sölu hluta­bréfa sinna í Glitni – síðasta salan fór fram daginn eftir, fyrir 35,8 milljónir króna. Umrædd grein birtist á miðopnu Morgun­blaðsins þriðjudaginn 26. febrúar, einni viku eftir fund Bjarna með Lárusi. Greinin hlýtur að endur­spegla efni fundarins að einhverju leyti þegar erfiðri stöðu banka­kerfisins er lýst. 

Í greininni sagði meðal annars: „Sú hætta steðjar nú að hag­kerf­inu að ís­lensku bönk­un­um gangi illa að afla þess fjár­magns sem þeir þurfa vegna starf­semi sinn­ar á næsta ári. Ef ekk­ert breyt­ist til hins betra á fjár­magns­markaði og ekki tekst að auka traust er­lendra markaðs­aðila verður fjár­mögn­un bank­anna óheyri­lega dýr eða í versta falli ómögu­leg.“

Þegar þessi orð voru skrifuð var Bjarni sjálfur byrjaður að verja sig gegn erfiðri stöðu Glitnis með því að selja hluta­bréfin sín í bankanum. Bjarni og ættingjar vörðu sig svo enn frekar fyrir tapi af banka­hruninu með sölu eigna sinna í Sjóði 9 í Glitni í aðdrag­anda banka­hrunsins í október 2008, fjórum dögum eftir að Bjarni hafði setið á fundi sem þingmaður um afar erfiða skulda­stöðu Glitnis.  

Bjarni ekki skoðaður

Samkvæmt gögnum frá slita­stjórn Glitnis sem Stundin hefur undir höndum voru einungis viðskipti Benedikt Sveins­sonar og Einars Sveins­sonar í Sjóði 9 í Glitni skoðuð sem meint innherja­viðskipti eða gjafa­gerningar. Í gögnunum kemur ekkert fram um að sambærileg skoðun hafi farið fram á mögulegum innherja­viðskiptum Bjarna Benedikts­sonar hjá slitatjórn Glitnis á þessum tíma. Stundin hefur hins vegar ekki heimildir fyrir hvort eftirlits­aðilar eða ákæru­valdið hafi séð tölvu­póstinn frá Einari Erni Ólafssyni til Atla Rafns Björns­sonar þann 6. október 2008.

Fjármála­eftirlitið vann lista með yfirliti yfir þá sem seldu eignir sínar í Sjóði 9 í aðdrag­anda banka­hrunsins og sendi kæru vegna þess til sérstaks saksóknara í mars 2009. Í kæru­bréfinu frá FME sagði meðal annars:  „Fjármála­eftirlitið telur að uppi sé rökstuddur grunur um að tilteknir aðilar hafi brotið gegn  ákvæðum XIII kafla laga nr. 108/2007 um meðferð innherja­upplýsinga og viðskipti innherja. Það er mat Fjármála­eftirlitsins að meint brot falli undir að vera meiriháttar í skilningi 1. mgr.

148. gr. laganna. Nauðsynlegt er að upplýsa hverjir bjuggu yfir innherja­upplýsingum á þeim tíma sem um ræðir. Fjármála­eftirlitið leggur áherslu á að mál þetta hljóti skjóta meðferð hjá sérstökum saksóknara þar sem um mikilvæga almannahags­muni er að ræða.“ Ekki er vitað hvort nafn Bjarna Benedikts­sonar var í kæru­bréfinu.

Erfið sönnunarbyrði

Í frétta­tilkynningu Fjármála­eftirlitsins kom fram að stofnunin hafi fengið bréf frá sérstökum saksóknara þremur árum síðar, í mars 2012, um að rannsókn málsins hafi verið hætt. Hluti vandans kann að hafa falist í erfiðri sönnunar­byrði í málum eins og sölum í Sjóði 9. Eftir 24. september 2008 voru vandamál Glitnis orðin opinber og sá fjár­mögnunar­vandi sem blasti við bankanum var frétta­efni um tveggja vikna skeið fram að setningu neyðar­laganna þann 6. október 2008. 

Ólafur Hauksson héraðs­saksóknari ræddi vandann við innherjamál til dæmis í viðtali við Stundina og sagði þá að erfitt væri að sanna að lögbrot hefðu átt sér stað: „Þau eru erfið, þessi innherjamál. Það verður að segjast alveg eins og er. Það er erfið sönnunar­staða í þeim. Það þarf að sýna fram á einhverja tengingu í þessu. Við kynntum okkur aðeins tiltekin mál sem komu upp í Svíþjóð. Þá var einmitt ákært í töluvert mörgum innherja­brotamálum þar sem menn sögðu: „Aðstaðan er þessi: Þessi maður seldi, ergo, þetta hlýtur að vera innherjamál.“ Það var sýknað í þessu öllu saman. Það voru milli eitt og tvö hundruð mál.“

Fjölmargir aðilar sem seldu eignir sínar í Glitni, aðilar sem voru nátengdir Glitni og umræðunni um erfiða stöðu bankans um haustið 2008, gátu þannig selt þessar eignir án þess að það hefði nein eftirmál. 

Tölublað Stundarinnar má lesa hér.


Bjarni ræddi við bankastjórann um lög um FME

Áralöng samskipti stjórnmálamannsins og fjárfestisins Bjarna Benediktssonar við Glitni.

Bjarni Ármanns­son

Upplýsingarnar í gögnunum um skoðana­skipti og samskipti Bjarna Benedikts­sonar við Glitni og starfs­menn bankans eru miklar og ítarlegar. Hann skiptist á tölvu­póstum við stjórn­endur Íslands­sjóða sem stjórn­málamaður; hann fundar með banka­stjóra Glitnis sem stjórn­málamaður; skiptist á skoðunum við Inga Rafnar Júlíusson sem stjórn­málamaður; ræðir við Einar Örn Ólafsson um starfsemi FME í hruninu 2008; ræðir um fjár­festingar sínar og ættingja sinna við Bjarna Markússon og aðra í einka­banka­þjónustu Glitnis; fær tölvu­pósta frá Hermanni Guðmunds­syni, forstjóra N1, sem hann sendir til banka­stjóra Glitnis með viðskipta­hugmyndum vegna olíu­félagsins og fleira og fleira í þessum dúr. Bjarni átti því í samskiptum við Glitni bæði sem fjár­festir fyrir sína eigin hönd, fjár­festir fyrir hönd þeirra fyrir­tækja sem hann stýrði, BNT og N1, og líka sem stjórn­málamaður. 

Þessi samskipti ná mörg ár aftur í tímann og er meðal annars að finna tölvupósts­samskipti milli Bjarna og Bjarna Ármanns­sonar, þáverandi banka­stjóra Glitnis, frá árinu 2005 þar sem þeir ræða saman um upplýsinga­skipti um Fjármála­eftirlitið, FME. Bjarni Benediktsson biður Bjarna Ármannsson um athuga­semdir og hugmyndir við laga­frumvarp hvernig Fjármála­eftirlitið geti bætt upplýsinga­gjöf sína. Þingmaður var sem sagt að biðja banka­stjóra í banka sem lýtur eftirliti FME um athuga­semdir um laga­frumvarp um FME. Tölvu­póstarnir hljómuðu svona:

From: Bjarni Benediktsson [mailto:bjarniben@althingi.is]
Sent: 31. janúar 2005 16:00
To: 500 BSTJ Bjarni Ármannsson
Subject: Uppgjör ofl

„Sæll,
Takk fyrir síðast, gaman að þið skilduð koma í Garða­bæinn. Við sem að þessu stóðum vorum mjög ánægðir með kvöldið.

Aðal­erindið er hins vegar að óska þér og þínu fólki til hamingju með glæsi­legan árangur á síðasta ári. Fram­úrskarandi niður­staða.

Nú er að koma fram nýtt frumvarp til breytinga á lögum um verð­bréfa­viðskipti. Þar verður m.a. komið inn á þau atriði sem við ræddum varðandi upplýsinga­gjöfina hjá FME. Ekki hika við að senda á mig athuga­semdir eða ábendingar varðandi það mál þegar fram í sækir eða önnur sem snerta þetta svið.

Bestu kv.
Bjarni“

From: "500 BSTJ Bjarni Ármannsson"
To: Bjarni Benediktsson
Subject: =?utf-8?B?UkU6IFVwcGdqw7ZyIG9mbA==?=
Date: Sat Feb 05 22:01:05 2005 GMT

„Sælir og takk fyrir síðast sömuleiðis. Þetta var frábært þorrablót.

Og takk fyrir hamingju­óskir varðandi rekstrar­árangur. Þetta er sterkur hópur í ´bankanum og Sjóvá og við alltaf að gera breytingar til að styrkja stöðuna. Ég er nokkuð bjartsýnn á fram­haldið. Já, það væri gott að geta rennt á þig hugleiðingum varðandi verð­bréfa­viðskipta­frumvarpið og annað sem þessum málum tengist.

Bestu kveðjur,
Bjarni“


Tímalína

Viðskipti Bjarna ­og ættingja hans í Glitni í aðdraganda hrunsins

Bjarni Benediktsson, Benedikt Sveinsson og Einar Sveinsson seldu allir í Sjóði 9.

8. febrúar
Bjarni Benediktsson tekur þátt í fléttunni sem kennd er við Vafning

12. febrúar
Benedikt Sveinsson selur hlutabréf í Glitni fyrir rúmar 49 milljónir

15. febrúar
Benedikt Sveinsson selur hlutabréf í Glitni fyrir 216 milljónir

19. febrúar
Bjarni fundar með Lárusi Welding ásamt Illuga Gunnars­syni

21. febrúar
Bjarni byrjar að selja hlutabréf sín í Glitni

22. febrúar
Bjarni selur bréf í Glitni

25. febrúar
·  Bjarni selur bréf í Glitni
·  Benedikt Sveinsson selur eignir í Sjóði 9 fyrir 432 milljónir

26. febrúar
Bjarni skrifar grein í Morgun­blaðið með Illuga Gunnars­syni um erfið­leika í íslenska banka­kerfinu

27. febrúar
Síðasta sala Bjarna Benedikts­sonar í Glitni - 35,8 milljónir

23. september
Nordea hættir við að kaupa eignir Glitnis í Noregi og Bayerische Landesbank hafnar fram­lengingu tveggja lána Glitnis upp á 150 milljónir evra. Glitnir þarf að endur­greiða 600 milljóna króna lán um miðjan október.

24. september
· Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnar­formaður Glitnis, óskar eftir fundi með Davíð Oddssyni seðla­bankastjóra til að óska eftir láni fyrir Glitni.
· Bjarni leysir út 30 milljónir í Sjóði 1.

26. september
Benedikt Sveinsson milli­færir 500 milljónir frá reikningi sínum í Glitni til Flórída.

27. september
Benedikt Sveinsson innleysir 160 milljónir úr Sjóði 9.

28. september 
Bjarni situr neyðar­fund í höfuð­stöðvum Stoða þar sem rætt er um stöðu Glitnis.

29. september
Íslenska ríkið segist ætla að leggja Glitni til hlutafé til að bjarga bankanum frá hruni. Vandræði Glitnis opinber.

2. október
·  Bjarni selur fyrir tæpar 30 milljónir í Sjóði 9.
·  Bjarni fyrir­skipar sölu úr Sjóði 9 fyrir 21 milljón þann 6. október.

5. október 
Geir H. Haarde heldur blaðamanna­fund þar sem hann segir ekki tilefni til að ríkið komi með sérstakan aðgerða­pakka út af stöðu banka­kerfisins.

6. október
·  Bjarni selur fyrir 21 milljón í Sjóði 9.
·  Bjarni á í samskiptum við Einar Örn Ólafsson í Glitni um vinnu FME.
·  Einar Sveinsson selur fyrir 1023 milljónir í Sjóði 9.
·  Geir H. Haarde mælir fyrir neyðar­lögunum vegna banka­hrunsins og Alþingi stað­festir þau.

7. október
·  Fjármála­eftirlitið yfirtekur Glitni og hlutafé hluthafa bankans verður verðlaust.
·  Fjármála­eftirlitið yfirtekur Lands­banka Íslands.
·  Fjármála­eftirlitið yfirtekur Kaupþing.

31. október 
Eigendur hlutdeildar­skírteina í Sjóði 9 fá greidd 85,12 prósent af inni­stæðum sínum á lokadegi viðskipta með sjóðinn þann 6. október.


Hvað var Sjóður 9?

Illugi Gunnarsson, vinur og samflokksmaður Bjarna, var stjórnarmaður í Sjóði 9.

Sjóður 9, peninga­markaðs­sjóður var fjár­festingar­sjóður í stýringu Glitnis. Sjóðurinn fjárfesti aðallega í íslenskum skulda­bréfum. Innan Sjóðs 9 voru svo aðrar deildir sem fjárfestu í erlendum eignum og gjald­miðlum.

Árið 2005 voru fjár­festingar sjóðsins aðallega í ríkis­tryggðum verð­bréfum og verð­bréfum banka og spari­sjóða. Þetta byrjaði svo að breytast verulega árið 2006 þegar sjóðurinn byrjaði að fjárfesta mikið í verð­bréfum, ekki síst skulda­bréfum fyrir­tækja sem tengdust Glitni. Í lok árs 2007 voru verðbréfa­eignir Sjóðs 9 tæpir 82 milljarðar króna og hafði fimm­faldast á einu ári. Í skýrslu rann­sóknar­nefndar Alþingis er fjallað um það að árið 2007 hafi 73 prósent eigna sjóðsins verið bundin í verð­bréfum félaga sem tengdust Glitni og sem voru eigendur bankans. Í skýrslunni er þessi staðreynd sögð „sláandi“.Þetta voru félög eins og Baugur. Hagar, Landic Property, FL Group og Gnúpur. Svo segir í skýrslunni: „Í sjóðnum varð því gríðarleg samþjöppun eigna í félögum sem voru augljós­lega nátengd hvort sem er rekstrar­lega og/eða gegnum eignar­hald. Það mátti því ætla að það hefði marktæk áhrif á greiðslu­getu félaganna ef kæmi til gjald­þrots eins aðila.“

Vegna eigna­samsetningarinnar í Sjóði 9 var ljóst að fall Glitnis banka myndi koma sér afskaplega illa fyrir sjóðinn þar sem tengslin á milli fjár­festinga sjóðsins og eigenda Glitnis voru svo mikil. Sjóður 9 hefði ekki getað staðið af sér fall Glitnis og hluthafa hans vegna þess að sjóðurinn stóð og féll með bankanum. Öðru máli hefði gegnt til dæmis ef 73 prósent eigna Sjóðs 9 hefði til dæmis verið í ríkis­skulda­bréfum.

Sá sem hafði upplýsingar um að Glitnir myndi ekki fá hluta­fjárframlag frá ríkinu í október­byrjun 2008 gat því nánast gefið sér að Glitnir yrði yfir­tekinn af ríkinu og hlutafé bankans yrði skrúfað niður í 0 með tilheyrandi tapi fyrir hluthafa bankans og verðfalli á öllum eignum sem tengdust þeim, meðal annars skulda­bréfunum sem mynduðu Sjóð 9 að stóru leyti.

Eftir banka­hrunið var óljóst hversu miklar endur­heimtur sjóðs­félaga í Sjóði 9 yrðu. Lokað var fyrir viðskipti með hlutdeildar­skírteini í sjóðnum frá 29. september til 1. október vegna erfið­leika Glitnis. Eignir sjóðsins rýrnuðu þá um 7 prósent. Svo var opnað aftur á viðskipti með sjóðinn þann 1. október og þar til 6. október en bæði Bjarni og Einar seldu allar eignir sínar í sjóðnum þá. Í lok október fengu sjóðs­félagar 85,12 prósent greiðslu upp í inni­stæður sínar í sjóðnum frá Glitni miðað við verðmæti eigna þeirra við lokun sjóðsins þann 6. október.

Illugi Gunnarsson, þáverandi þingmaður og náinn samstarfs­maður Bjarna Benedikts­sonar, var stjórnar­maður í Sjóði 9 og vék hann meðal annars af þingi tíma­bundið kjör­tímabilið 2009 til 2013 vegna rann­sóknar á Sjóði 9. Sagði Illugi meðal annars að seta hans í stjórninni hefði skaðað sig pólitískt: „Engum vafa er undirorpið að stjórnar­seta mín í peninga­markaðs­sjóðum Glitnis hefur skaðað mig pólitískt.“ 


Einar Örn vildi að Bjarni fengi ferðapunktana

Bjarni Benediktsson, Einar Örn Ólafsson og Fjármálaeftirlitið.

Einar Örn Ólafsson
Einar Örn Ólafsson

Bjarni Benediktsson átti í tals­verðum samskiptum við Einar Örn Ólafsson, framkvæmda­stjóra fyrirtækja­sviðs Glitnis, samkvæmt gögnunum og var það Einar Örn sem miðlaði upplýsingunum um samtalið við Bjarna um vinnu FME til banka­stjóra Glitnis þann 6. október 2008. Einar Örn er vinur Bjarna til margra ára og var stuðnings­manna­félag Bjarna fyrir þing­kosningarnar 2007 skráð á heimili Einars Arnar við Einimel í Reykjavík.

Einar Örn og Bjarni skipulögðu til dæmis utan­landsferðir saman í boði Glitnis. Í eitt skiptið Í einum tölvu­pósti biður Einar Örn samstarfs­konu sína hjá Glitni að panta flug og hótel til London fyrir sig, Bjarna og Hermann Guðmundsson, forstjóra N1, í febrúar árið 2006:

„Sæl,
geturðu bókað mig og tvo félaga til London:

Út 20. feb, seinni vél
Heim 24. feb, fyrri vél

Ferða­félagar:
Bjarni Benediktson - 260170-5549
Hermann Sævar Guðmundsson - 200162-4049
(muna að gefa þeim ferða­punkta eins og okkur hinum)

Og Bjarni Jóh kemur líka með, veit ekki hvenær hann vill fljúga út.

Við erum að fara á völlinn eins og svo margir, en höfum reyndar annað erindi líka. Hvar gistir allt liðið? Sennilega ágætt að vera bara á sama stað og þeir, eða hvað BJ? Viltu frekar vera á Sanderson?

Kveðja,
Einar Örn“

Bjarni og Einar Örn áttu líka í samskiptum um ýmiss konar viðskipti og Bjarni leitaði til Einars Arnar varðandi ráðgjöf með viðskiptamál. Slíka tölvu­pósta er að finna í gögnunum.

Eftir myndun ríkis­stjórnar Sjálfstæðis­flokksins og Framsóknar­flokksins árið 2013 skipaði Bjarni Benediktsson einn nánasta viðskipta­félaga Einars Arnar, Höllu Sigrúnu Hjartar­dóttur, sem formann stjórnar Fjármála­eftirlitsins.

Einar Örn og Halla Sigrún eiga saman eignarhalds­félag sem heitir Fiskisund ehf., sem var stofnað utan um fjár­festingu í laxeldis­fyrirtækinu Fjarða­laxi sem sameinaðist Arnarlaxi í fyrra og fyrirtæki þeirra hagnaðist um vel á annan milljarð króna. Áður höfðu þau Einar Örn unnið saman í viðskiptum með olíu­félagið Skeljung sem þau högnuðust einnig afar vel á og voru þau viðskipti valin viðskipti ársins í Frétta­blaðinu árið 2013 vegna mikils hagnaðar seljenda fyrir­tækisins. Skeljungur var seldur til framtaks­sjóðs í rekstri Stefnis sem meðal annars var í eigu lífeyris­sjóða.

Halla Sigrún gegndi stjórnar­formanns­starfinu í eitt ár, frá lokum árs 2013 og út árið 2014, en lét þá af störfum eftir að greint hafði verið frá um 830 milljóna króna hagnaði hennar af viðskiptunum með hlutabréf Skeljungs. 

 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Engeyingum bjargað

RannsóknEngeyingum bjargað

Bjarni fór í fjórar boðs­ferðir en sagðist hafa farið í tvær

Bjarni Benediktsson sagðist aðeins hafa farið í tvær boðs­ferðir á vegum bankanna þegar hann var spurður árið 2009. Bjarni, sem var þingmaður á þeim tíma, var hins vegar skráður í fimm boðs­ferðir samkvæmt gögnum sem Stundin hefur undir höndum og fór að minnsta kosti í fjórar þeirra. Hann er einn þriggja stjórn­málamanna sem rann­sóknar­skýrsla Alþingis greinir frá að hafi farið í boðs­ferðir.

Mest lesið undanfarið ár