Grjót­harður Krist­berg Jónsson, fyrr­ver­andi veit­inga­maður í Baulu, er þekktur fyrir að segja hug sinn und­an­bragða­laust. Hann er ófeim­inn við að skamma þá sem ekki fara að reglum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Blankir útrásarvíkingar á nærfötunum

Krist­berg Jónsson, Kibbi í Baulu, er búinn að selja veit­inga­stað­inn við veg­inn. Ótal þjóð­sögur hafa spunn­ist um Kibba. Hann lán­aði útrás­ar­vík­ingum á þyrlu fyrir pulsu og kók. Tók aldrei lán vegna Baulu. Ferðast um á Harley Davidson og gefur börnum kakó. Kap­ít­alist­inn er sann­færður sós­í­alisti sem fylgir VG að málum.

„Þegar spurð­ist út að við værum að selja Baulu fékk ég stundum við­brögð frá fólki sem spurði: „Hvað um okkur?“ Þetta kom mér skemmti­lega á óvart. Ég hafði aldrei hugsað út í það að ein­hver kynni að sakna okkar svona mikið,“ segir Krist­berg Jónsson, veit­inga­maður í Baulu í Borg­ar­firði, sem hefur ásamt eig­in­konu sinni, Sigrúnu Tóm­as­dóttur, selt rekst­ur­inn og er hættur á langri vakt við Þjóðveg 1.

Krist­berg, eða Kibbi í Baulu, hefur staðið vakt­ina við þjóð­veg­inn í 18 ár. Hann þykir ein­stak­lega lit­ríkur og hafa spunn­ist um hann fjöl­margar sögur, bæði sannar og ýktar. Hann er þéttur á velli og tattó­ver­aður á hand­leggj­unum. Ekki árenni­legur, myndi ein­hver segja. En undir tattú­inu og hörðum skrápnum leyn­ist, að sögn þeirra sem best þekkja, hjarta úr gulli. Kibbi er maður sem segir hug sinn umbúða­laust og bregður þá sumum í brún. En það er gjarnan stutt í hlát­ur­inn og gleð­ina.

…

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Útivist

Segir hagnaðinn af Litahlaupinu vera minni en styrkveitingar til góðgerðarmála
FréttirÚtivist

Segir hagn­að­inn af Lita­hlaup­inu vera minni en styrk­veit­ingar til góð­gerð­ar­mála

The Color Run er hlaupið á yfir 300 stöðum í heim­inum á hverju ári. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins, sem sér um fram­kvæmd Lita­hlaups­ins á Íslandi, neitar að gefa upp tekjur sínar og hagnað. Uppselt var í hlaupið og voru þátt­tak­endur um tólf þús­und. Fyr­ir­tæki eins og Alvogen greiða þóknun til að tengja nafn sitt við hlaupið en for­svars­menn Lita­hlaups­ins gefa ekki upp hversu há hún er.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár