Pristina Höf­uð­borg Kosóvó er Pristina. Mynd: Shutterstock

Blóðbaðið á Balkanskaga: Kosovo-stríðið og það sem kom síðan

Valur Gunn­ars­son fór til Kosóvó og kynnti sér hvernig landið hefur þró­ast í kjöl­far stríðs­ins.

„Svo þú varst að koma frá Kosovo?“ segir sminkan þar sem ég sit í stól og er gerður klár fyrir mynda­töku For­lags­ins. „Fyrr­ver­andi kærast­inn minn var einmitt að vinna á flug­vell­inum í Kosovo.“ Og mikið rétt, ferða­hand­bókin mín segir einmitt að Kosovo sé svo alþjóð­legt land að síma­kerfið þar sé makedónskt og flug­vell­inum hafi eitt sinn verið stjórnað af Íslend­ingum. Árið 2003 tók íslensk sveit, undir for­ystu Commander Halla Sig­urðs­sonar, yfir flug­völl­inn í höf­uð­borg­inni Pristina á vegum NATO og stjórn­aði honum í hálft ár. Þótti aðgerðin takast nokkuð vel, en verr fór ári síðar þegar Íslend­ingar sáu um flug­völl­inn í Kabúl í Afganistan og fóru sér að voða í teppa­kaupa­ferð í bænum. 

Kosovo er und­ar­legt land, nán­ast búið til og rekið af alþjóða­stofn­unum. Þeir not­ast við evr­una þótt þeir séu ekki í Evr­ópu­sam­band­inu og á göt­unum má víða sjá her­bíla merkta KFOR, sem er Kosovo-her NATO. Enn eru um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár