Eyvind­ar­ár­fossar Eyvind­ar­ár­fossar eru þeir fossar sem heima­mönnum þykir hvað mest um og sjá eftir, enda til­komu­miklir séðir af sjó. Hér er horft til suð­aust­urs en yfir stærstu hvísl­arnar eru göngu­brýr. Þessir fossar verða ekki svipur hjá sjón verði af virkjun og rennsli í þeim mjög lítið (30% eða minna). HS Orka hefur lýst því yfir að ekk­ert verði af Hval­ár­virkjun verði þessir fossar ekki með, enda bæta þeir 20 MW við virkj­un­ina og þau 35 MW sem fast með virkjun Hvalár. Mynd: Tómas Guðbjartsson

Fossarnir sem hverfa

Tómas Guðbjartsson gekk nýverið um svæðið sem mun raskast með Hval­árvirkjun á Ströndum og tók myndir af þessum náttúru­perlum, sem eru að hans mati á heims­mælikvarða. Eftir að hafa farið yfir helstu rök með og á móti virkjuninni kemst hann að þeirri niður­stöðu að virkjunin muni ekki leysa vandamál Vestfjarða. Það ætti að vera í höndum ríkisins.

Undan­farið hefur fyrir­huguð virkjun Hvalár í Ófeigs­firði á Ströndum verið mikið til umræðu og sýnist sitt hverjum. Umræðan hefur að mínu mati verið einhliða og upplýsingar til almennings og fjölmiðla oft verið misvísandi. Nýlega ákvað ég að ferðast um fyrir­hugað virkjana­svæði, gangandi með allt á bakinu. Þetta reyndist með stórkostlegustu göngu­ferðum sem ég hef nokkru upplifað, enda eru á þessu svæði lítt þekktar náttúru­perlur sem eru á heims­mælikvarða. 

Hér reifa ég þessa umdeildu virkjana­framkvæmd út frá stað­reyndum, eins og þær blasa við mér, áhuga­manni um útivist og náttúru­vernd. Ég greini jafnframt frá gönguferð minni með ljós­myndum sem ég tók og sýna hversu stórfenglegt þetta svæði er. Það skal tekið skýrt fram að ég hef engra annarra hagsmuna að gæta annarra en þeirra sem snúa að náttúru­vernd.

Vestfirðir eru málið

Ásamt Kverk­fjöllum og Torfa­jökuls­svæðinu eru Vestfirðir og þá sérstak­lega Horn­strandir og Strandir, það svæði á Íslandi sem er mér hvað kærast. Þangað hef ég komið óteljandi sinnum og þar hef ég gengið um flesta firði og helstu fjöll. Ég á ættir mínar að rekja í Arnar­fjörð og á fjölda ættmenna á Vestfjörðum, enda þótt ég sé búsettur og starfi sem læknir í Reykjavík.

Sem ungur læknir átti ég þess kost að starfa á Ísafirði og Suðureyri. Sú reynsla var mér ómentanleg og um leið kynntist ég Vestfirðingum og þeim áskorunum sem byggðar­lögin standa frammi fyrir, áskorunum sem meðal annars snúast um atvinnumál og fólks­fækkun. Borið saman við aðra lands­hluta er ljóst að þróun innviða á Vestfjörðum hefur dregist aftur úr og á það sérstak­lega við um samgöngur. Vestfjarða­kjálkinn er tæplega 9% af flatar­máli Íslands og djúpir dalir og heiðar gera að verkum að samgöngur eru óvíða erfiðari hérlendis, sem snertir beint þá tæplega 8000 einstaklinga sem þar búa, eða 2,4 % þjóðarinnar.

Vestfirðir hafa þó skilað þjóðar­búinu miklum tekjum í gegnum öflugan sjávar­útveg, en fengsæl fiskimið auk einstakrar náttúru er óneitanlega forgjöf sem þeir hafa miðað við aðra lands­hluta. Af þessum sökum hafa Vestfirðir skipað sér sérstakan sess hjá flestum Íslendingum en einnig hjá sívaxandi fjölda erlendra ferða­manna sem sækja Vestjarðakjálkann heim.

RjúkandiFossinn Rjúkandi í sam­nefndri á er ein helsta nátt­úruperlan á fyr­ir­hug­uðu virkj­ana­svæði. Rennsli í honum mun minnka um 40%, sem aug­ljós­lega hefur mikil áhrif á ásýnd þessa fal­lega sköp­un­ar­verks nátt­úr­unnar.

Hvalárvirkjun er stórvirkjun

Íslendingar framleiða meiri orku á íbúa en nokkurt annað land í heiminum, og fara 80% þessarar orku til stóriðju, aðallega álvera (3/4) en einnig járn­blendis og kísiliðju. Þrír fjórðu af þessari raforku er fram­leiddur með vatnsafl­virkjunum, en fjórðungur með gufuafli. Í saman­burði við risa­virkjanirnar við Kára­hnjúka (670 MW) og Búrfelli (270 MW) gæti 55 MW virkjun í Hvalá við fyrstu sýn virst lítil. Það er hún hins vegar ekki, enda er ársframleiðsla Hval­árvirkjunar metin á 260 gígawattstundir sem er talsvert umfram orku­þörfina á Vestfjörðum sem er metin í kringum 230 gígawattstundir.

„Þróun innviða á Vestfjörðum hefur dregist aftur úr.“

Hvert fer rafmagnið?

Helstu rökin fyrir Hval­árvirkjun eru þau að hún styrki innviði á Vestfjörðum; aðallega með bættu rafmagns­öryggi en einnig aukinni atvinnu­uppbyggingu og fjölgun starfa, betri samgöngum og lagningu ljós­leiðara og þriggja fasa rafmagns til íbúa Árnes­hrepps. Við nánari skoðun virðast mörg þessara atriða varla standast skoðun.

Ljóst er að rafmagn frá Hvál­árvirkjun verður að stórum hluta nýtt til stóriðju fyrir sunnan, enda fram­leiðslan langt umfram þarfir Vestfjarða, sérstak­lega þar sem Orkubú Vestfjarða fram­leiðir í dag í kringum 90 gígawattstundir árlega, aðallega í Mjólkur­árvirkjun. Framkvæmda­aðilar við virkjunina eru aðallega tveir, HS Orka og Vestur­verk. Tengsl HS Orku við stóriðju á Íslandi eru sterk en hún er í 68% eigu kanadísks fjár­festis. HS Orka er síðan eigandi að 70% Vestur­verks. Ljóst er að orku vantar til stóriðju fyrir sunnan, til dæmis fyrir umdeild kísil­iðjuver United Silicon í Helguvík. Áhugi HS Orku og Vestur­verks á virkjun Hvalár er því mikill.

Mörgum hefur reynst erfitt að henda reiður á hvert leiða á rafmagnið frá Hval­árvirkjun, en bæði Nauteyri við Ísafjarðar­djúp og Gils­fjörður hafa verið nefnd í því sambandi. Forsvars­menn HS Orku segjast vilja grafa háspennu­línur frá virkjuninni í jörð, aðallega til að takmarka sjón­mengun. Landsnet, sem myndi sjá um línu­lögnina, hefur hins vegar ekki getað staðfest þetta, enda umtals­vert dýrari lausn en loftlínur. Það er því margt á huldu um hvort Hval­árvirkjun muni í raun bæta öryggi á afhendingu rafmagns á Vestfjörðum – enda orkunni fyrst og fremst ætlað annað.

Óveruleg fjölgun starfa og ófullnægjandi samgöngur

Á meðan byggingu virkjunarinnar stendur mun störfum fjölga tíma­bundið og heimamenn eflaust njóta góðs af. Í dag eru virkjanir að mestu sjálf­virkar og veita fáum atvinnu eftir að byggingu virkjunar er lokið. Fjölgun starfa til lengri tíma í Árneshresppi verður því óveruleg.

Verði af virkjun munu samgöngur í nágrenni Norður­fjarðar batna, sérstak­lega frá höfninni til Ófeigs­fjarðar. Vegurinn frá Hólmavík til Norður­fjarðar, sem er helsti flösku­hálsinn í samgöngu­málum Árnes­hrepps, mun hins vegar taka litlum breytingum. Þennan veg þarf að uppfæra og það er á annarra höndum en HS Orku að gera það. Þessi vegur hefur verið á samgöngu­áætlun svo áratugum skiptir og alþingis­mönnum og ráðherrum ætti að vera löngu ljóst hversu brýnt er að hann sé lagfærður. Íbúar Árnes­hrepps eru hins vegar aðeins tæplega 50 atkvæði og eru því afskiptir þegar kemur að fjár­veitingum til vega­gerðar.

Þriggja fasa rafmagn er ekki forgangsatriði

Það eru helst ísvélar í frysti­húsinu á Norðfirði sem gætu haft not af slíku rafmagni, en rekstur slíkra véla má leysa með öðrum hætti en virkjun Hvalár. Ljós­leiðari yrði eflaust kærkominn fyrir íbúa Norður­fjarðar og nágrennis en loforð forsvars­manna virkjunarinnar um lagningu ljós­leiðara eru þó engan veginn föst í hendi, enda ekki ljóst með hvaða hætti slíkur leiðari yrði lagður frá virkjuninni. Eðlilegt verður að telja að opinberir aðilar sjái um að skaffa bæði ljós­leiðara og þriggja fasa rafmagn, enda skilst mér að slíkar framkvæmdir séu ráðgerðar á næstu árum. Ég get þó sjálfur vottað að á Norður­firði og í nágrenni hans er ágætt 3G síma­samband og góð nettenging, – sem til dæmis er forsenda öflugrar ferða­þjónustu.

Ferðamenn fíla ósnortin víðerni

Því er haldið fram að vegir að virkjuninni, meðal annars frá Ísafjarðar­djúpi, muni auka ferðamanna­straum á Ströndum. Eflaust verður auðveldara að komast inn á svæðið, en ég efa þó stórlega að ferðamenn flykkist til Ófeigs­fjarðar til að skoða þar mann­gerðar virkjanir og stíflur. Staðreyndin er sú að 80% ferða­manna sem sækja Ísland heim nefna sérstaka náttúru sem helstu ástæðu fyrir komu sinni – en hvorki virkjanir né álver.

Ferðamanna­iðnaður er nú stærsta atvinnu­greinin á Íslandi og skapar okkur meiri tekjur en bæði sjávar­útvegur og álbræðsla. Í nýlegri skýrslu bendir OECD á að náttúran og þá sérstak­lega ósnortin víðerni séu einhver mesta auðlind sem Íslendingar eigi og þau beri að fara varlega með. Í dag eru um 40% af yfirborði landsins skilgreind sem ósnortin víðerni, en þau hafa minnkað um 70% á síðustu 70 árum. Stærstu ósnortnu víðernin er að finna á miðhálendinu og á Vestfjörðum, aðallega á Horn­ströndum en líka á Ströndum upp af Hvalá. Hval­árvirkjun mun rýra víðerni Vestjarðakjálkans um 18–36%, allt eftir því hvernig reiknað er. Síðari talan er sennilega nærri lagi þegar tekin eru með sjónræn áhrif af háspennu­línum og vegum tengdum þeim. Línurnar munu kljúfa víðernin í tvennt og umferð um vegina spilla þeirri einstöku kyrrð sem þarna ríkir.

„Stærstu ósnortnu víðernin er að finna á miðhálendinu og á Vestfjörðum.“

Sérlega óheppilegt er að virkjunin er í næsta nágrenni við frið­landið á Horn­ströndum, en það svæði var friðlýst árið 1975 og er ákvörðun sem ég held að svo til allir Íslendingar séu afar stoltir af. Það er skoðun mín að í stað Hval­árvirkjunar ætti frekar að stækka núverandi friðland á Horn­ströndum þannig að það næði suður fyrir Ingólfs­fjörð. Um leið myndu Ófeigs­fjörður en einnig Jökulfirðirnir og Snæfjalla­ströndin vera innann frið­landsins. Virkjana­framkvæmdum á þessu sérstaka og ósnortna svæði yrði þar með ýtt út af borðinu – komandi kynslóðum til hagsbóta.

Rafmagn sem vantar til Vestfjarða yrði þá að framleiða annars staðar á landinu og flytja vestur, án verulegs tengi­kostnaðar eins og í dag. En til þess að takist að stækka frið­landið þurfa ráðamenn að sýna sömu djörfung og kollegar þeirra á Alþingi sem samþykktu frið­lýsingu Horn­stranda á áttunda áratug síðustu aldar. 

Hvalárvirkjun er skammgóður vermir

Vandamál Vestfjarða verða ekki leyst með virkjun Hvalár og því miður er tilfinning mín að verið sé að plata Vestfirðinga. Nærtækara og skynsamlegra er að leggja frekar áherslur á bættar samgöngur og sann­gjarnari byggða­kvóta til fiskveiða en virkja ósnortna náttúru­perlu.

Fækkun íbúa á Vestfjörðum hefur minnkað tekjur sveitar­félaga sem í óðagoti eiga til að grípa til vanhugsaðra ákvarðana eins og að virkja vatns­fljót, sem vissulega er það stærsta á Vestfjörðum, sem um leið skapar stórkost­lega fossa og gljúfur á ósnortnum öræfum við þröskuldinn á frið­landinu á Horn­ströndum. Þetta svæði er miklu meira virði ósnortið en virkjað og mun nýtast komandi kynslóðum Vestfirðinga betur, líkt og lands­mönnum öllum. Þegar fótkuldi sækir að er freistandi að pissa í skóinn. Sá varmi er þó tíma­bundinn og lyktin vond.

Náttúru­fegurð er óvíða meiri en á Vestfjörðum og tækifæri tengd ferða­mennsku óteljandi. Frekari áhersla á aukinn straum ferða­manna er því lykil­atriði. Að virkja ósnortin víðerni – sem eru einstök á heimsvísu – er ekki góð byrjun.

Mið­næt­ur­sól í Ing­ólfs­firðiÞegar farið er út í Ófeigs­fjörð er ekið eftir þessum firði endi­löngum á jeppa­slóða, en þarna eru spenn­andi rústir gam­allar síld­ar­verk­smiðju.

Virkjun Hvalár:

Hvaða náttúruperlur verða undir?

Öræfin upp af Ófeigs­firði og Eyvindar­firði eru einstök. Þarna eru grasi grónar heiðar með smáum tjörnum sem eru bækistöð fugla. Óteljandi fossar og flúðir í ánum Rjúkanda, Hvalá og Eyvind­arfjarðará eru þó helstu náttúru­perlurnar. Þar má helst nefna Rjúkandifoss í ánni Rjúkanda, fossa­röðina í Eyvind­arfjarðará og Drynjandi í Hvalá áður en hún sameinast ánni Rjúkanda. Allir fossarnir eru vatns­miklir með tæru og bláu vatni, en Hvalá er þar að auki mesta vatnsfall á Vestfjörðum. Við virkjun Hvalár mun fossinn Drynjandi þurrkast alveg upp og vatnsmagn í hinum fossunum tveimur minnka um 40–70%. Fossinn Rjúkandi dregur nafn sitt af miklum úða sem stígur upp af fossinum þegar hann fellur niður fossa­raðir ofan af Ófeigs­fjarðar­heiði. Honum svipar óneitanlega til Gullfoss og eins og hann heldur áin Rjúkandi áfram í gljúfrum uns Hvalá, sem einnig er stór á, rennur í hann nokkrum km neðar, rétt neðan við fossinn Drynjandi. Eftir það kallast sameinað vatnsfall Rjúkandi og Hvalár, Hvalá, sem síðan rennur til sjávar í Ófeigs­firði. Ofanvið ósinn eru magnaðir risa­vaxnir fossar, Hval­árfossar, sem steypast í nokkrum þrepum niður að ósnum. Eyvindar­árfossar renna í eins konar kletta­stokkum ofan af heiðunum sunnan Dranga­jökuls og liggur leiðin marga km leið niður í Eyvind­arfjörð. Eyvindar­árfossar eru einstök fossaröð sem er ekki hvað síst tilkomu­mikil séð af sjó. Þessi fossaröð er jafnfram sú sem heima­mönnum þykir hvað vænst um enda ljóst að þeir munu að mestu leyti þorna.

Hvaða náttúruperlur eru í nágrenni Hvalárvirkjunar?

Þarna ber helst að nefna hin risavöxnu Dranga­skörð, sem eru vafalaust ein fallegasta náttúru­smíð á Íslandi. Í næsta nágrenni við Rjúkanda er Húsárfoss, en sjómenn á Ströndum kalla hann mun fallegra nafni, Blæju, sem hann minnir óneitanlega á. Ekki stendur til að virkja Blæju né heldur fossinn rétt norðan við Hvalá sem heitir Dagverðar­dalsárfoss. Frá honum er ekki ýkja langt í firðina norðan Dranga­skarða þar sem helst má nefna Drangavík, Meyjardal, Bjarnar­fjörð og Skjaldbarnarvík, og Reykjar­fjörð nyrðri. Suður af fyrir­hugaðri Hval­árvirkjun er enn einn fallegur fjörður, Ingólfs­fjörður, og aðeins austar Norður­fjörður. Upp af öræfum Ófeig­fjarðar­heiði er Dranga­jökull sem er fimmti stærsti jökull landsins, og suður af honum óteljandi vötn og ár. 

Hvernig er komist að þessum náttúruperlum?

Ótrúlega fáir Íslendingar hafa séð fossana og gljúfrin sem verða undir verði Hval­árvirkjun að veruleika, einfald­lega vegna þess hversu erfitt er að komast að þeim akandi. Fyrst er ekið í Norður­fjörð en þangað er tæplega 5 klst. akstur frá Reykjavík. Frá Norður­firði tekur tæpa klst. að aka inn í botn Ófeigs­fjarðar, en þar er lítið tjald­stæði. Á vel búnum jeppa er hægt að keyra yfir vað á Húsá (mæli með efra vaðinu) að Hval­árfossum. Þaðan er upplagt að ganga nokkra kílómetra meðfram stórfeng­legum gljúfrum sameinaðrar Hvalár og síðan áfram eftir ánni Rjúkandi. Fyrst er komið að fossinum Drynjandi, en verður að virða fyrir sér úr fjarlægð þar sem hann er hinum megin við bakka Hvalár. Fossinn Rjúkanda sem steypist ofan í gljúfrin nokkrum km ofar, er auðvelt að skoða í návígi. Frá Rjúkanda er upplagt að ganga að fossinum stórkost­lega Blæju í Húsá. Frá Blæju er síðan hægt að ganga eftir akveginum aftur að Hval­árfossum, en þessi ganga, sem er eins konar hringur, tekur í heild í kringum 4–5 klst. Hægt er að komast nær Drynjanda með því að halda yfir göngu­brúna á Hvalá við Hval­árfossa. Síðan er gengið í rúma klst. að fossinum meðfram nyrðri barmi Hval­árgljúfra. Til að komast að Dagverðar­dalsárfossi og Eyvind­arfjarðar­árfossum er haldið í norður frá göngu­brúnni við Hval­árfossa og tekur gangan að síðarnefndu fossunum tæpar 3 klst. Eyvindar­árfossar eru sérlega tilkomu­miklir og hægt að komast yfir þá á göngubrúm. Hægt er að ganga upp með Eyvind­arfjarðará og virða fyrir sér enn fleiri tilkomu­mikla fossa í þessari kröftugu og vatns­miklu á. Síðan er gengin sama leið aftur til baka í Ófeigs­fjörð, nema ef ákveðið er að halda áfram með allt á bakinu að Drangárskörðum, og tekur það nokkrar klst. Þaðan er upplagt að ganga áfram yfir Drangavík að Dröngum norðan við Skörðin, þaðan yfir Meyjardal í Bjarnar­fjörð, Skjald­bjarnarvík og Reykja­fjörð nyrðri. Úr Reykjar­firði er síðan hægt að taka bát aftur til Norður­fjarðar. Þetta er stórkostleg ganga og tekur nokkra daga með allt á bakinu.

Hvalár­fossarHvalár­fossar rétt áður en Hvalá steyp­ist út í ós Ófeigs­fjarðar. Þessir fossar eru þeir vatns­mestu á Vest­fjörðum og ekki hægt annað en að hríf­ast af kraft­inum og blá­tæru vatn­inu. Til stendur að koma stöðv­ar­húsi virkj­un­ar­innar ofan við Hvalár­fossa en spurn­ingin er hvaða áhrif það mun hafa á rennsli í þessum mögn­uðu fossum.
Hvalár­fossarHægt er að kom­ast að Hvalár­fossum Í Ófeigs­firði á vel útbúnum jeppa en þá þarf að aka yfir vaðið á Húsá.
Hvalár­fossarEfri hluti Hvalár­fossa í mið­næt­ur­sól.
Dag­verð­ar­dalsár­fossNorður af Hvalár­fossum er þessi lítt þekkt en snotri foss, Dag­verð­ar­dalsár­foss, sem einnig rennur út í Ófeigs­fjörð. Rennsli í þessum fossi mun ekki skerð­ast verði af virkjun.
Fossa­röðin í Evind­ar­fjarð­aráSyðri hluti fossar­að­ar­innar í Eyvind­ar­fjarð­ará, rétt áður en hún steyp­ist út í sam­nefndan fjörð. Kraft­ur­inn er með ólík­indum og flúð­irnar mik­il­feng­legar í umhverfi sem er algjör­lega ósnortið, enda aldrei verið búið í Eyvind­ar­firði.
Eyvind­ar­ár­fossKraft­ur­inn í Eyvind­ar­ár­fossi er með ólík­indum og auð­velt að kom­ast gang­andi mjög nærri flúð­unum.
BlæjaFossinn Blæja (einnig kall­aður Húsár­foss) í ánni Húsa, rétt áður en hún rennur út í botn Ófeigs­fjarðar. Þessum fossi stendur til að hlífa verði af virkjun, en hann á a.mk. fjögur “fossa-syst­kyni” sem eru í næsta nágrenni.
Dranga­skörðEkki ýkja langt frá fyr­ir­hug­uðu virkj­ana­svæði upp af Ófeigs­firði er ein stór­kost­leg­asta nátt­úrú­smíð á Íslandi, Dranga­skörð.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið undanfarið ár