Mynd: Golli

Baðlónin standa sterkt meðan eigendur mótmæla nýju skattþrepi

Íslensk bað­lón hafa vaxið hratt á und­an­förnum árum og flest þeirra skila nú veru­legum hagn­aði. Stjórn­völd telja ekki lengur ástæðu til að bað­lón njóti lægra þreps virð­is­auka­skatts og ætla að færa þau í almenna skatt­þrepið. Eigendur og stjórn­endur bað­stað­anna mót­mæla því af miklum móð.

Íslenski bað­lóna­mark­að­ur­inn stendur sterkt eftir öran vöxt síð­ustu ára. Nýjustu árs­reikn­ingar sýna að flest stærstu bað­lón lands­ins eru rekin með mynd­ar­legum hagn­aði og millj­arðar hafa ratað í vasa eig­enda þeirra í formi arðs á síð­ustu árum. Eigendur lón­anna virð­ast líka hafa trú á að greinin geti vaxið enn meira, því víða hafa millj­arðar króna farið í stækkun, end­ur­bætur, nýja bað­staði og fjöl­breytt­ari þjón­ustu við stað­ina.

Nýbirtir árs­reikn­ingar fyrir síð­asta rekstr­arár sýna að Sky Lagoon hagn­að­ist um 1,6 millj­arða króna á síð­asta ári og greiddi eig­endum 1,4 millj­arða í arð og ætlar að greiða 1,5 millj­arða króna til við­bótar í arð í ár. Gamla laugin á Flúðum hagn­að­ist um 318 millj­ónir af 833 millj­óna tekjum. Skóg­ar­böðin skil­uðu 248 millj­óna hagn­aði, Jarð­böðin við Mývatn 210 millj­ónum og Vök rúm­lega 100 millj­ónum.

Stærsti aðil­inn, Bláa lónið, sneri jafn­framt úr tapi árið 2024 í tæp­lega millj­arðs króna hagnað á síð­asta ári, eftir …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Umdeild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Samkvæmt lóða­leigu­samn­ingi hefur fyr­ir­tækið Reykja­nes Aurora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra rad­íus við Reykja­nes­vita þrátt fyrir að leigja aðeins hluta af því landi. Eig­and­inn segir að reynt hafi verið á gjald­heimt­una fyrir dómi og hún úrskurðuð honum í vil. „Þetta er búið að vera vand­ræða­mál,“ segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár