Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja nei-hreyfinguna og öfgahægri öfl í Evrópu

Rann­sókn­ar­fjöl­mið­ill­inn Follow the Money full­yrðir að íslenskir styrkt­ar­að­ilar nei-her­ferða fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið hafi einnig styrkt Brexit-hreyf­ing­una og öfga­hægri öfl í Evrópu.

Sjávarútvegsfyrirtæki styrkja nei-hreyfinguna og öfgahægri öfl í Evrópu
Áfram Ísland Öfl sem styrkja nei-hreyf­ingu fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðilda­við­ræður að ESB styrktu einnig Brexit-hreyf­ing­una. Mynd: Golli

Ný rann­sóknin sem er á vegum hol­lenska rann­sókn­ar­fjöl­mið­ils­ins Follow the Money sýnir að styrkt­ar­að­ilar nei-her­ferða fyrir þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um aðild­ar­við­ræður Íslands við Evr­ópu­sam­bandið, hafi einnig styrkt Brexit-hreyf­ing­una á sínum tíma. Höfundar rann­sókn­ar­innar not­uðu upp­lýs­ingar frá fyr­ir­tækja­skrá Skatts­ins við grein­ingu sína. 

Í grein Follow the Money kemur fram að her­ferð nei-sinna svipi til her­ferðar Brexit-hreyf­ing­ar­innar. Í báðum til­fellum hafi sjáv­ar­út­veg­ur­inn reynst eld­fimt umræðu­efni í við­ræðum, þar með talið skipt­ing fiskikvót­ans. Höfundar rann­sókn­ar­innar segja lík­indin ekki ein­ungis til­komin vegna svip­aðra her­ferða heldur hafi Íslend­ingar verið virkir í Brexit-hreyf­ing­unni sem og í bar­áttu nei-sinna hér heima. Þannig hafi íslensk fyr­ir­tæki sem eru tor­tryggin á Evrópu (e. eurosceptic) nýtt sér hug­mynda­fræði Brexit-hreyf­ing­ar­innar hér heima í núver­andi kosn­inga­bar­áttu.

Fyr­ir­tækin sem studdu hreyf­ing­una á sínum tíma eru íslensk sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki á borð við Brim og Ísfé­lagið. Þau styrktu Bandalag íhalds­manna og umbóta­sinna í Evrópu (ACRE, nú ECR) og hug­veitu þess, New Direction, um 17.000 evrur eða um 2,4 …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Evrópumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár