Hliðarbisness alþingismanna

Hliðarbisness alþingismanna

Nokkrir alþing­is­menn sinna laun­uðum verk­efnum sam­hliða þing­störfum og enn fleiri eiga félög í ýmiss konar við­skiptum, eins og Bergþór Ólason. Sumir hafa þegið arð­greiðslur frá félögum sem þeir eiga að miklu eða öllu leyti.

Alþing­is­menn eiga margir hverjir stóra eign­ar­hluti í félögum sem eru í fullri starf­semi þó að þeir sitji hvorki í stjórn né fram­kvæmda­stjórn. Fjöldi þeirra á hlut í skráðum bréfum félaga, til að mynda í sjáv­ar­út­vegi, fjár­mála­þjón­ustu og flug­rekstri. Enn aðrir sinna auka­störfum með­fram þing­mennsku.

Heim­ildin greindi frá því nýverið að Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins, ætti hlut í fjölda félaga í bygg­ing­ar­iðn­aði og kæmi beint að ein­hverjum verk­efna þeirra. Félögin eru í eigu Bergþórs og föður hans, en kröfu­hafar hafa farið fram á nauð­ung­ar­sölu á þremur lóðum félags þeirra, Render Centium, í Mos­fellsbæ. Slaga kröf­urnar hátt upp í millj­arð króna.

Í sam­tali við Heim­ild­ina stað­festi Bergþór að hann hefði komið að kaup­unum á lóð­unum en sagð­ist hvorki þiggja laun frá fjöl­skyldu­fé­lög­unum né arð­greiðslur. „Þetta er ekki tíma­frek aðkoma,“ sagði hann.

Bergþór hefur …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hagsmunafélagið Alþingi er svo rekið af íslensku þjóðinni, af því er víst engin hagnaður en gott utanumhald og aðstaða til fyrirmyndar. Sama gildir um forseta lýðveldisins, þokkalega launað, allar heimsóknir til vina skráðar sem ristna og smá arður vegna hlutdeildar í einhverjum félögum. Sannleikurinn sagna bestur þó hann sé ekki alltaf sannur (tilvitnun í stjórnmálamann)
    -2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár