Mennt er máttur – og lengir lífið

Karl­ar með há­skóla­gráðu lifa tæp­lega fjór­um ár­um leng­ur en þeir sem eru með grunn­skóla­próf. Thor Asp­e­lund pró­fess­or seg­ir mennt­un sjálf­stæð­an þátt sem hef­ur áhrif á heilsu og lang­lífi. „Mennt­un sem slík ger­ir þig hæf­ari til þess að tak­ast á við vanda­mál.“

Mennt er máttur – og lengir lífið
Langlífar stúdínur? Þessar ungu konur útskrifuðust úr Menntaskóla Reykjavíkur á dögunum. Klári þær framhaldsnám, mega þær búast við löngu og vonandi gæfuríku lífi. Mynd: Golli

Ævilengd íslenskra karlmanna með grunnskólamenntun hefur styst um hálft ár síðasta áratug, á meðan konur með háskólamenntun lifa ári lengur en þá. Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands, segir þetta ekki séríslenska söðu, heldur sé það þekkt víða og verið til umfjöllunar á Norðurlöndunum að fólk með grunnskólapróf lifi skemur en fólk með háskólamenntun. Það sé áhyggjuefni að bilið sé að breikka. Hann hefur meðal annars rannsakað tengsl á milli menntunarstigs og áhættu á kransæðasjúkdómum, þar sem í ljós kom að fólk með minni menntun er líklegra til að fá hjartaáfall en aðrir sem eru með lengri skólagöngu. 

Nýjar tölur frá Hagstofu Íslands sýna að árið 2025 var ólifuð meðalævi 30 ára kvenna með grunnskólamenntun 52,5 ár á meðan þrítugir grunnskólamenntaðir karlar máttu búast við því að lifa 48,5 ár til viðbótar. Konur með framhaldsskólamenntun gátu vænst þess að lifa tæplega þremur árum lengur en stallsystur þeirra með …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár