Rífandi stemning og rifinn liðþófi

Það er ríf­andi stemn­ing í Þjóð­leik­hús­inu þessa dag­ana. Tvær gjör­ólík­ar sýn­ing­ar sem báð­ar byggja á alda­göml­um sögn­um eru sýnd­ar sam­tím­is hvor á sínu svið­inu.

Rífandi stemning og rifinn liðþófi
Nánd og þéttleiki Leikhópur Óresteiu hitar upp rétt áður en þau stíga á svið. „Það skapast mikill þéttleiki og traust við svona nána samvinnu,“ segir Atli Rafn Sigurðsson. Mynd: Golli

Ormstunga er sýnd á Stóra sviðinu, nýr íslenskur söngleikur byggður á Gunnlaugs sögu ormstungu, og Óresteia, sem byggð er á þríþættum grískum harmleik eftir Æskýlos, í Kassanum. Báðar hafa fengið afburðalof gagnrýnenda og eru stöðugt sýndar fyrir fullu húsi. „Það eru sögulegir tímar í húsinu. Ég man ekki eftir svona velgengni áður,“ segir Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri og bætir við að þau séu búin að sýna Línu Langsokk 75 sinnum samhliða við fádæma undirtektir og frábæra dóma. 

Hrikaleg átök og örlög söguhetja leiksviðanna hafa áhrif langt út fyrir veggi leik­hússins enda gefa leikararnir allt sitt í sýningarnar. Atli Rafn Sigurðarson ökkla­brotnaði milli sýninga og lék slasaður í viku áður en brotið greindist og hann fékk spelku sem hann hefur notað síðan. Það fimmtudagskvöld sem ljósmyndari Heimildarinnar fékk að flakka um baksvið Þjóðleikhússins og fanga fjölmörg augnablik, reif Ebba Katrín Finnsdóttir liðþófa í hné en beit þó á jaxlinn og lauk …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár