Formaður í ræðu­stól Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í ræðu sinni um helg­ina flokk­inn munu hverfa aftur á fyrri braut. „Við misstum sjónar á því fyrir hvað við stöndum. Þess vegna vil ég segja það skýrt hér í dag: Það mun ekki ger­ast aftur.“ Mynd: Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn boðar stórfellda skattalækkun

Frjáls­hyggja í skatta­málum snýr aftur í nýrri stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins sem mótuð var á flokks­ráðs­fundi um helg­ina. Hátekju­skattur og erfða­fjár­skattur verður afnum­inn, fjár­magnstekju­skattur lækk­aður og eignir rík­is­ins seldar, ef hug­myndir flokks­manna ná fram að ganga.

Á fjöl­menn­asta flokks­ráðs­fundi Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá upp­hafi um helg­ina kall­aði Guðrún Haf­steins­dóttir for­maður eftir aft­ur­hvarfi til fyrri gilda flokks­ins, þar sem flokks­menn hefðu „misst sjónar á því“ fyrir hvað hann stendur.

Aft­ur­hvarfið til fyrri stefnu birt­ist í stjórn­mála­á­lyktun flokks­ráðs­fund­ar­ins, þar sem ítrekað er að „hlut­verk Sjálf­stæð­is­flokks­ins er að auka frelsi og draga úr opin­berum umsvifum“.

Í álykt­unin er staða efna­hags­mála gagn­rýnd, vegna „þrá­látrar verð­bólgu, vax­andi atvinnu­leysi og hárra vaxta“ sem er „mætt með aðgerð­ar­leysi og skatta­hækk­unum sem kynda enn frekar undir verð­bólgu“.

Afnám hátekjuskatts

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur til stór­fellda skatta­lækkun. Af 1.490 millj­arða króna skatt­tekjum rík­is­sjóðs vill Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn lækka skatta „á heim­ili“ um 140 millj­arða króna, eða sem jafn­gildir tæp­lega 10 pró­sent allra skatt­tekna rík­is­sjóðs.

„Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill lækka skatta á heim­ili um ríf­lega 140 millj­arða króna og mæta þeirri skatta­lækkun með hag­ræð­ingu í rík­is­rekstri og eigna­sölu, sem dregur úr vaxta­greiðslum rík­is­sjóðs og eykur hag­vöxt með betri nýt­ingu eigna,“ segir í álykt­un­inni. 

Stærsti hluti skatta­lækk­ana yrði afnám þrepa­skipt­ingar tekju­skatts ein­stak­linga. Það þýðir með öðrum orðum að skattur hækkar ekki lengur á hækk­andi tekjur, en sú skatt­lagn­ing snýr að því að auka jöfnuð. Skatt­tekjur rík­is­ins af tekjum og hang­aði ein­stak­linga voru í heild­ina 280 millj­arðar króna í fyrra. 

Ein­stak­lingar greiða nú 31,49%  skatt af tekjum upp að 498 þús­und krónum, en 37,99% af tekjum fram að tæp­lega 1,4 millj­ónum króna og yfir því er tekju­skattur 46,29%, eða svo­kall­aður hátekju­skattur. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill að allar tekj­urnar sæti 35% skatti og þannig hækki skattur á lægstu tekj­urnar en lækki veru­lega á hæstu tekj­urnar.

Á móti vill flokk­ur­inn hækka per­sónu­af­slátt um ótil­greinda upp­hæð, sem vegur gegn skatta­hækkun lág­tekju­fólks, eins og segir í álykt­un­inni: „Tekju­skattur og útsvar ein­stak­linga verði í einu 35% skatt­þrepi um leið og per­sónu­af­sláttur er hækk­aður.“

Minnka skattbyrði þeirra eignamestu

Flokk­ur­inn vill líka lækka fjár­magnstekju­skatt, sem er lagður á sölu­hagnað, arð vegna verð­bréfa­við­skipta og vaxta­tekna. Skatt­ur­inn hvílir þannig þyngst á þeim eigna­mestu. Í dag er fjár­magnstekju­skattur 22% en flokk­ur­inn vill færa hann í 20%. 

Fjár­magnstekju­skattur skil­aði rík­inu 76,7 millj­örðum króna í fyrra og myndi skatta­lækk­unin því lækka tekjur rík­is­sjóðs um 7 millj­arða króna, miðað við fyrra ár. Hins vegar vill Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn líka hækka frí­tekju­mark fjár­magnstekna úr 300 þús­und í 500 þús­und krónur á ári, sem minnkar skatt­tekj­urnar meira.

Erfða­fjár­skattur skil­aði rík­inu 12,8 millj­örðum króna í tekjur í fyrra, en hann leggst á útgreiddan arf af eignum lát­inna. Þar af leið­andi leggst hann þyngst á eigna­mestu fjöl­skyld­urnar. Sjálf­stæði­flokk­ur­inn vill afnema hann.

Sömu­leiðis vill Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn aft­ur­kalla ákvörðun núver­andi rík­is­stjórnar um að hætta sam­sköttun hjóna, en sam­skött­unin gagn­ast mest þegar annar maki er tekju­hár en hinn tekju­lágur.

Meðal ann­arra skatta­lækk­ana sem full­trúa­ráð Sjálf­stæð­is­flokks­ins vill áorka eru að „kolefn­is­gjöld verði afnumin sem og krónu­tölu­gjöld á ýmsum vörum lækkuð. Inn­heimtu stimp­il­gjalds verði hætt og útvarps­gjald fellt niður.“ 

Þá vill flokk­ur­inn end­ur­greiða allan virð­is­auka­skatt við fram­kvæmdir á íbúð­ar­hús­næði.

Eignir ríkisins seldar

Flokk­ur­inn vill selja eignir til þess að fjár­magna skatta­lækkun og svo borga upp skuldir rík­is­sjóðs.

Ekki kemur fram hvaða eignir rík­is­ins eigi að selja, en meðal þeirra stærstu eru Lands­bank­inn og Lands­virkjun, en Lands­virkjun skilar rík­is­sjóði minnst 20 millj­örðum króna í arð vegna síð­asta árs og Lands­bank­inn til­kynnti um 35 millj­arða króna arð í síð­ustu viku.

Árið 2025 greiddi ríkið 183 millj­arða króna í vaxta­gjöld, en inn­heimti 62 millj­arða á móti í vaxta­tekjur. Vaxta­gjöldin eru því umfram alla þá skatta­lækkun sem flokk­ur­inn vill inn­leiða.

Í áherslum stjórn­mála­á­lykt­un­ar­innar  er minna rætt um hvar eigi að skera niður útgjöld. Þó kemur fram að draga eigi úr eft­ir­liti, inn­leiða gervi­greind í þjón­ustu rík­is­ins, 

Á sama tíma á „heil­brigð­is­þjón­usta að vera traust og aðgengi­leg öllum“.

Treysta á Bandaríkin

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill standa vörð um full­veldi Íslands og forð­ast aðild að Evr­ópu­sam­band­inu, vegna þess að „afskipti og ákvarð­anir erlends valds“ er varða auð­lindir þjóð­ar­innar, gangi gegn „grund­vall­ar­gildum Sjálf­stæð­is­flokks­ins“. Flokk­ur­inn lítur á varn­ar­samn­ing við Banda­ríkin sem horn­stein örygg­is­stefnu. 

Um leið vill flokk­ur­inn að „Ísland taki aukna ábyrgð á eigin vörnum og efli borg­ara­legar stofn­anir sem sinna örygg­is­málum“.

„Við misstum sjónar á því fyrir hvað við stöndum.“
Guðrún Haf­steins­dóttir
Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á flokks­ráðs­fundi 2026

Forsenda Sjálf­stæð­is­flokks­ins, eins og sam­bæri­legra stjórn­mála­flokka um allan heim, er að skatta­lækk­anir muni auka fjár­fest­ingu og umsvif í hag­kerf­inu, sem auki á móti skatt­heimtu.

Í ræðu sinni á flokks­ráðs­fund­inum um helg­ina sagði Guðrún Haf­steins­dóttir for­maður að flokks­menn yrðu að „við­ur­kenna eitt“: „Við fjar­lægð­umst um stund það sem áður gerði Sjálf­stæð­is­flokk­inn sig­ur­sælan og sterkan. Við misstum sjónar á því fyrir hvað við stöndum. Þess vegna vil ég segja það skýrt hér í dag: Það mun ekki ger­ast aftur,“ sagði hún.

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnúsdóttir skrifaði
    JÁÞAÐEREKKIGOTTAÐSELJAFRÁSERÞÆRSKEPNURÚRBÚINUSEMGEFAAFSERMESTUOGBESTUAFURÐIRNARFYRIRLANDIÐENGRÓÐINNBLINDARMANNSKEPNUNAOFTÍLAAÞVÍMIÐUR
    0
  • SG
    Sigurlaug Gísladóttir skrifaði
    Ótrúleg þessi árátta hægri manna og kvenna að vilja alltaf selja frá sér bestu "mjólkurkúnna". Það gerir ekki góður bóndi i sínu búi. En æ já auðvitað, þeir vilja aðrinn af Bröndu og Skjöldu auðvitað beint í sína vasa en ekki til þjóðarinnar. Þá skil ég þetta auðvitað.
    0
  • JAT
    Jon Arvid Tynes skrifaði
    Eftir margra ára forustu í ríkisstjórn: Vegakerfið úr sér gengið og heilu landshlutarnir með ónýta vegi. Mörg hundruð bíða eftir hjúkrunarheimili. Ríku verða ríkari og þeir fátæku fátækari. Svona væri hægt að telja áfram. Nei takk. Höldum Sjálfstæðisflokknum frá völdum.
    12
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Væri til bóta, ef einhver gæti aðstoðað Sj.fl. við að rífa af dagatalinu. Það urðu stjórnarskipti í landinu fyrir fyrir meira en ári.
    4
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Lítið að frétta þaðan annað en frekjurembingurinn að leysa áfram upp samfélagið. Mikil eftirspurn eftir því. Gott mál.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Skattamál

Mest lesið undanfarið ár